Fréttablaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 33
[ ]
Bára Grímsdóttir tónlistar-
maður safnar uglum í ýmsu
formi. Hún ætlar samt ekki
að syngja um þær í Norræna
húsinu í kvöld heldur eitthvað
þjóðlegra.
„Þetta byrjaði með því að þegar
ég varð 25 ára fékk ég stóra uglu-
styttu í afmælisgjöf frá félögum
mínum í hljómsveit sem ég var í
þá og hét Frílist. Upp úr því fór
ég að gefa uglum gaum ef þær
urðu á vegi mínum og þá fyrstu
keypti ég á götumarkaði í Amster-
dam. Síðan hefur þeim fjölgað
í kringum mig,“ segir Bára um
uglusafnið sitt og heldur áfram:
„Eysteinn sonur minn hefur
verið mér hjálplegur. „Mamma,
þú verður að koma og sjá þessa,“
segir hann stundum ef hann hefur
komið auga á álitlega uglu í búð.“
Ekki kveðst Bára samt eyða miklu
í þetta áhugamál og í stað þess að
safna einungis styttum hefur hún
keypt ýmsa nytjahluti með uglum.
Ein er snagi, önnur sykurkar og
salt- og piparbauka á hún með
vísdómsfuglinum mikla. Í Belgíu
varð fyrir henni uglusparibaukur
úr leðri og á Írlandi fann hún uglu-
penna. „Mér finnst skemmtilegra
að hafa þetta blandað,“ segir hún
brosandi og sýnir eina mjúka. „Ég
var lasin um daginn og þá rétti
yngsti sonur minn mér þessa og
spurði hvort ég vildi ekki hafa
hana hjá mér!“ Að lokum tekur
hún fram forláta taktmæli með
uglu sem hún fékk að gjöf frá syni
og sambýlismanni og kemur sér
vel fyrir tónlistarmanninn. Ekki
segir Bára samt uglur koma við
sögu á tónleikunum sem hún ætlar
að halda í kvöld kl. 20 í Norræna
húsinu ásamt breska söngvaran-
um Chris Foster, enda verða þeir
á þjóðlegum nótum og ekki mikið
til um uglur í íslenskum kveðskap.
„Við Chris ætlum að syngja og
kveða um sama efni á okkar móður-
málum,“ segir Bára og bætir við
til skýringar: „Ég syng um hesta á
íslensku og Chris á ensku.“
Á taktmæli með uglu
Meðal þess sem Leikfanga-
smiðjan í Garði selur er hand-
smíðaðar klukkur.
„Þetta eru allt handsmíðaðar
vörur,“ segir Viktor Þór Reynis-
son, sem ásamt eiginkonu sinni
Önnu Kristínu Kristófersdóttur
rekur fyrirtækið Leikfangasmiðj-
una í Garðinum.
Auðvelt er að skoða framleiðslu
fyrirtækisins á vefnum www.leik-
fangasmidjan.is. Þar getur meðal
annars að líta fagrar klukkur sem
flestar kosta á bilinu 3.500 til 6.500
nema hvað brúðarklukkan kostar
15.000 enda stór í sniðum og sér-
smíðuð með nöfnum hjónanna.
Viktor segir hana þó meðal
vinsælustu vara fyrirtækisins.
Íslandsklukkan og fleiri sem eru
einkennandi fyrir landið eiga
orðið sinn sess í ferðamannaversl-
unum en hinar fást enn einungis
með því að panta þær á netinu
netið. Að sögn Viktors er fyrir-
tækið ársgamalt og eins og nafn
þess ber með sér eru meðal ann-
ars framleidd þar leikföng en hér
eru það klukkurnar sem fókusinn
er settur á.
Allt handsmíðað
Bára á alls konar uglur. Þá stærstu fékk hún á 25 ára afmælinu og þá útskornu lengst til vinstri í jólagjöf frá syni sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Brúðarklukkan er sérsmíðuð og birtir nöfn
og giftingardag brúðhjónanna.
Mótorhjól eru draumur margra. Engill sem vakir.
Rúmteppi eru góð lausn í barnaherbergi þar sem engin
rúmfatageymsla er. Börn komast fljótt upp á lagið með að búa um
rúmið þannig að þau geti leikið sér á því.
Opið frá 11-18 virka daga. Laugardaga 11-15
Hlíðarsmára 11, Kópavogi s: 565 1504
Silkiblóm og gjafavara
FERMING 2006
SILKIBLÓM
Gerberur frá 140 kr
Kringlunni - sími : 533 1322
Vandaðar heimilis-
og gjafavörur
Nýkomnir hvítir
Damaskdúkar
3. stærðir
Vandaðar
og gjaf