Fréttablaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 49
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Vorl
ínan
er ko
min
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
3
13
16
02
/2
00
6
Nýja Útilífsbúðin
í Kringlunni
opnar í mars
Fyrir nokkrum árum opnaði Björn
Bjarnason, núverandi dómsmála-
ráðherra og fyrrverandi oddviti
Sjálfstæðisflokksins í borgar-
stjórn, nýja heimasíðu. Þessi síða
er afar vel úr garði gerð þar sem
hún hentar mjög vel þeim sem til
dæmis þurfa að nota stórt letur eða
annan búnað til þess að geta lesið
það sem þar stendur. Mættu marg-
ir taka Björn sér til fyrirmyndar
í þessum efnum enda vann hann
ötullega að upplýsingasamfélag-
inu þegar hann var menntamála-
ráðherra.
Þannig vill til að ég hef fylgst
með Birni í návígi nokkrum sinn-
um þegar ég hef setið borgar-
stjórnarfundi á vegum F-listans
sem varaborgarfulltrúi. Þá geri
ég það stundum að gamni mínu
að hlusta á borgarstjórnarfundi
á netinu og eins útsendingar frá
Alþingi. Að undanförnu hefur mér
lítt verið skemmt yfir skrifum
Björns og uppátækjum hans á net-
inu. Þegar tillaga Ólafs F. Magn-
ússonar borgarfulltrúa F-listans
um verndun Þjórsárvera var sam-
þykkt í borgarstjórn 17. janúar sl.
greiddu fulltrúar R-listans henni
atkvæði. Sjáfstæðismenn sátu hjá
með bókun sem sagði það eitt að
enn skyldi þráast við að leita uppi
fleiri vatnsaflsvirkjanir. Það var
óvenju þungt yfir sjálfstæðis-
mönnum á borgarstjórnarfund-
inum og mikill geðvonskublær
enda áttaði ég mig á því að Björn
Bjarnason var í hópi þeirra.
Á heimasíðu sinni fór Björn
offari í garð Ólafs eftir borgar-
stjórnarfundinn. Talaði hann um
sýndartillögu og fleira í þeim dúr.
Björn fór einnig offari þegar Ólaf-
ur F. Magnússon flutti tillögu um
það í borgarstjórn 1. nóvember sl.
að létta ábyrgðum af Reykvíking-
um vegna fyrirhugaðrar sölu á
eignarhlut borgarinnar í Lands-
virkjun. 23. janúar sl. þegar 33 ár
voru liðin frá eldgosinu í Heimaey
gaus svo upp úr Birni á heima-
síðunni hans. Líkaði honum það
illa að Sigurjón Þórðarson, einn
þingmanna Frjálslynda flokksins,
hafði í þinginu gagnrýnt fjáraust-
ur frambjóðanda forsætisráð-
herra í borgarstjórnarprófkjöri
framsóknarmanna og spurt hvort
s-hópurinn væri að styrkja fram-
bjóðandann.
Á heimasíðu sinni lét Björn
þess einnig getið að Ólafur F.
Magnússon hefði ákveðið það
einn að leiða lista Frjálslyndra og
óháðra í komandi sveitarstjórnar-
kosningum og vonandi yrði það
flokknum ekki dýrkeypt. Ætli
Björn viti það ekki mæta vel að
Ólafur lýsti því yfir að hann vildi
leiða F-listann í borginni áfram og
að allur borgarstjórnarflokkurinn
studdi þann vilja Ólafs eindregið.
Síðan hefur miðstjórn flokksins
samþykkt það einróma að Ólafur
leiði listann í kosningunum í vor
ásamt Margréti Sverrisdóttur.
Það er gott að Björn finni dulinni
góðmennsku sinni þennan farveg
í skrifum sínum að senda pólitísk-
um andstæðingum hlýjar kveðjur.
Hann minnir á gamlan fíl, en þeir
eru sagðir geðstirðir með aldrin-
um og verða sumir hættulegir.
Höfundur er varaborgarfulltrúi
Frjálslynda flokksins.
Gos á heimasíðu Björns Bjarnasonar
UMRÆÐAN
DÓMSMÁLA-
RÁÐHERRA OG
F-LISTINN
GÍSLI HELGASON
FIMMTUDAGUR 16. febrúar 2006 29
Ein af forsendum þess að byggð
eflist á landsbyggðinni er bættar
samgöngur. Þar eru samgöngur
til og frá höfuðstað Norðurlands,
Akureyri, engin undantekning.
Flýta þarf gerð Vaðlaheiðarganga
og þurfa ríkisvaldið og samgöngu-
yfirvöld að koma að því máli
sem allra fyrst. Vaðlaheiðargöng
styrkja ferðaþjónustu og eru til
þess fallin að bæta vegasamgöng-
ur austur á land verulega.
Millilandaflug um Akureyr-
arflugvöll er afar mikilvægt og
í raun nauðsynlegt til að byggja
megi upp ferðaþjónustu á heilsárs-
grundvelli þar sem ferðamenn geta
átt eftirminnilegar stundir á Norð-
urlandi. Miðhálendisvegur styttir
vegalengdir til suðvesturhornsins
og með tilkomu hans skapast líka
möguleiki á hringleið um þjóðveg
1 og nýjan veg t.d. yfir Kjöl. Það er
flestum ljóst að þjóðvegur 1, lífæð-
in út á land, er víða illa farinn og
þolir illa þá umferð sem á hann er
lögð í dag. Bætt viðhald er nauð-
synlegt og löngu tímabært.
Þá er ótalið mikilvægi þess að
koma á millilandafraktsiglingum
til og frá Akureyri. Slíkt myndi
efla þjónustu og verslun á Norð-
urlandi, á því leikur enginn vafi.
Verslunarfólk á Akureyri gerir
sér eflaust ljóst mikilvægi þess að
íbúar úr dreifðum byggðum Norð-
urlands nýti sér þá þjónustu sem
til boða er á Akureyri. Stytting
þjóðvegar 1 suður til höfuðborg-
arsvæðisins er líka afar mikilvæg
framkvæmd, þannig aukast líkur
á að fólk geri sér oftar ferðir til
Akureyrar og njóti þess sem þar
er að finna. Miðhálendisvegur
mun opna á möguleika til þess að
markaðssetja megi miðhálendið
yfir vetrartímann, auk þess að
fjölga afþreyingarmöguleikum
fólks á sumrin.
Þetta er mikilvægt að hafa
í huga þegar litið er til þess að
erlendum ferðamönnum mun
fjölga á landinu öllu á næstu árum
og þá verður að bjóða upp á vel
skipulagða afþreyingu á svæðum
sem rúma þá auknu umferð sem
framundan er. Allt þetta mun
styrkja stoðir atvinnulífsins, ef
heimamenn eru vakandi fyrir
þeim tækifærum sem verða í boði.
Framtíð landsbyggðarinnar velt-
ur m.a. á góðum samgöngum. Efl-
ing Akureyrar styrkir byggð við
Eyjafjörð og Norðurland. Byggð á
þeim svæðum treystir verslun og
viðskipti á Akureyri.
Höfundur býður sig fram í
1. sæti í prófkjöri Framsóknar-
flokksins á Akureyri.
Akureyri og
samgöngur
UMRÆÐAN
SAMGÖNGUR
ELVAR ÁRNI LUND
Það er flestum ljóst að þjóðveg-
ur 1, lífæðin út á land, er víða
illa farinn og þolir illa þá um-
ferð sem á hann er lögð í dag.