Fréttablaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 47
FIMMTUDAGUR 16. febrúar 2006 Myrkrið sem hefur grúft yfir Lýð- veldinu Kongó kann að vera á und- haldi. Þorri 25 milljóna skráðra kjósenda guldu nýrri stjórnarskrá jáyrði sitt á dögunum og sýndi það von og vilja þjóðarinnar til að snúa endanlega baki við styrjaldarátök- um og reisa nýtt Kongó. Í júní verða fyrstu fjölflokka- kosningar í Kongó, þriðja stærsta landi Afríku, frá árinu 1960. Kosn- ingarnar hafa kveikt nýja von sem ætti að hlúa að með áþreifanlegri aðstoð. Á hverjum einasta degi deyja 1.200 manns í Kongó af völdum eftirkasta borgarastríðs; vannæringar, sjúkdóma og umróts. Þetta er álíka fjöldi á hálfu ári og lést í flóðbylgjunni á Indlandshafi. Nú þegar frjálsar kosningar eru við sjóndeildarhringinn höfum við besta tækifæri nokkru sinni til að lina þjáningar milljóna Kongóbúa. Á mánudag verður ýtt úr vör í Brussel aðgerðaáætlun í mannúðar- málum fyrir Kongó að andvirði 43 milljarða króna (682 milljónir dollara). Þetta er vissulega ekki lág upphæð. En þetta er sú upphæð sem það kostar að stöðva að þjóð- inni blæði út og hjálpa henni til að geta aflað brýnustu þarfa. Kongó er tröllaukið land, stærra en Þýskaland, Frakkland, Pólland, Úkraína og Hvíta-Rússland sam- anlagt, en þar eru fáir vegir með bundnu slitlagi og fá samgöngu- mannvirki. Þúsundir kílómetra ógreiðfærra frumskóga eru á milli höfuðborgarinnar Kinshasa og austurhéraðanna þar sem neyð- in er stærst. Oft og tíðum hindra ofbeldisverk aðgang að fólki sem líður skort. En Kongó hefur einn- ig mikla möguleika sem hægt er að þróa og efla. Á fáum stöðum á jörðu er jafn mikið bil á milli þarfa fólksins og fáanlegs lífsviðurvær- is. En jafnframt eru fáir staðir á jörðu þar sem hægt væri að snúa ástandinu við með jafnafgerandi hætti og í Kongó. Á aðeins sex árum (1998-2004) er talið að 3,9 milljónir manna hafi látist af völdum afleiðinga styrj- aldar. Þetta er mannskæðasta stríð á jörðinni frá lokum síðari heims- styrjaldar. Þúsundir barna hafa látist af völdum sjúkdóma sem ætti að vera hægt að koma í veg fyrir og lækna, svo sem niðurgangs og malaríu. Eftir sex ára bardaga er heilbrigðiskerfi landsins í rúst, fólk hefur misst lifibrauð sitt og vannæring er landlæg. Árið 2002 var komið á brothætt- um friði. Bráðabirgðastjórn nýtur stuðnings alþjóðasamfélagsins og viðveru friðargæslu Sameinuðu þjóðanna. Framþróun hefur orðið nokkur undir hennar stjórn og hún nær sífellt betri tökum á vígahóp- um í austurhéruðunum. En harm- leiknum er ekki lokið. Hver einasta fjölskylda í landinu hefur orðið fyrir barðinu á ofbeldi. Þar eystra verða tugir þúsunda manna að flýja að heiman í hverjum mánuði. Framtíð milljóna kongóskra barna er í veði en þau skortir lágmarks heilsugæslu, tækifæri á skólagöngu og aðgang að hreinu drykkjarvatni. Konur hafa líka þjáðst gríðarlega. Kynferðislegu ofbeldi hefur verið beitt af öllum stríðandi fylkingum og heldur enn áfram í austurhluta Kongó. Vígamenn komast upp með að nauðga, misþyrma kynferðis- lega og pynta refsilaust. Konur sem verða fórnarlömb kynferðisofbeld- is eru oft gerðar útlægar frá fjöl- skyldum sínum og eru skildar eftir með jafnt sálræn sem líkamleg sár. Um það bil fimmta hvert fórnar- lamb er sýkt af HIV-veirunni. Ólíkt fórnarlömbum flóðöld- unnar á Indlandshafi hefur athygli heimsins ekki beinst að þjáning- um Kongó. Í Bandaríkjunum var aðeins varið sex mínútum í frétta- tímum stóru sjónvarpsstöðvanna í málefni Kongó á síðasta ári. Nú er loks komið að tímamótum. Við getum og viljum gera meira til að lina þjáningar kongósku þjóðarinn- ar. Nú er tími til kominn að láta til skarar skríða. Kongó mun kannski aldrei fá aftur jafn gott tækifæri og nú til að ganga til móts við frið- sæla framtíð. Og við fáum sjaldan ef nokkru sinni jafn gott tækifæri til að hjálpa kongósku þjóðinni til að flýja örbirgð og angist. Við þurfum að lyfta grettistaki og veita þá mannúðaraðstoð sem þarf í samræmi við hinar miklu þarfir landsins og þau miklu tæki- færi sem aðstoð myndi skapa. Við hvetjum veitendur aðstoðar til að auka verulega fjárfestingu þeirra og fjármagna að fullu Mannúðar- ákall Sameinuðu þjóðanna. Það er hægt að bjarga mannslífum og það gerist ef við bregðumst fljótt og rausnarlega við. Að baki mannúðarákallinu standa stofnanir Sameinuðu þjóð- anna og alþjóðleg og staðbundin félagasamtök og auðveldar það veit- endum aðstoðar að setja þarfirnar undir einn hatt. Með því móti er hægt að greina heildstæða, skýra mynd af þörfum og því myndast ekki göt í aðstoðina, að ekki sé talað um óþarfa tvíverknað. Ákallið miðar að því að efla heimamenn og gera þá sjálfbjarga. Kongóska þjóðin hefur sýnt af sér ótrúlegt hugrekki og þraut- seigju frammi fyrir ólýsanlegum þjáningum. Þjóðin getur nú bjargað landinu - hún á skilið að fá hjálp. Jan Egeland er aðstoðarfram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna á sviði mannúðaraðstoðar. Louis Michel fer með þróunarmál og mannúðaraðstoð í framkvæma- stjórn Evrópusambandsins. Sætum lagi og stöðv- um þjáningarnar UMRÆÐAN KONGÓ JAN EGELAND OG LOUIS MICHEL Ólíkt fórnarlömbum flóðöld- unnar á Indlandshafi hefur athygli heimsins ekki beinst að þjáningum Kongó. Í Banda- ríkjunum var aðeins varið sex mínútum í fréttatímum stóru sjónvarpsstöðvanna í málefni Kongó á síðasta ári. FRÁ KONGÓ Fáir staðir á jörðu eru þar sem hægt væri að snúa ástandinu við með jafn afgerandi hætti og í Kongó, segja greinarhöfundar. aukaafsláttur af lítranum með ÓB-frelsi 16 stöðvar sæktu um á www.ob.is H im in n o g h af / SÍA 13:00–13:10 Setning Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri 13:10–13:30 Breyttar áherslur í jafnréttismálum Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir formaður jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar 13:30–13:50 Stefna Háskóla Íslands gegn mismunun Baldur Þórhallsson dósent í stjórnmálafræði 13:50–14:10 Skilningur á jafnréttishugtakinu Þorgerður Þorvaldsdóttir sagn- og kynjafræðingur 14:10–14:30 Jafnrétti og minnihlutahópar Rannveig Traustadóttir prófessor 14:30–15:00 Kaffihlé 15:00–15:20 Jafnrétti og þjónusta sveitarfélaga – er hægt að þjónusta alla jafn vel? Óskar Dýrmundur Ólafsson framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvarinnar Vesturgarðs 15:20–16:10 Jafnrétti út frá mínum sjónarhóli Kristín Tómasdóttir nemi, Sigursteinn R. Másson formaður Öryrkjabandalagsins, Amal Tamini fræðslufulltrúi, Viðar Eggertsson leikari, Stefán Benediktsson arkitekt 16:10–16:30 Umræður og fyrirspurnir Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis Fundarstjóri er Þóra Arnórsdóttir, fréttakona jafnrétti fyrir alla Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar heldur fund á Hótel Sögu föstudaginn 17. febrúar 2006 S p o r n u m g e g n m i s m u n u n – s t u ð l u m a ð þ á t t t ö k u
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.