Fréttablaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 6
6 16. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR
á mann í tvíbýli á Hotel Moskva, 16.–20. mars.
Allar upplýsingar á www.icelandair.is/serferdir
+Bókaðu á www.icelandair.is
ÍSLENSK FARARSTJÓRN
MEÐ PÉTRI ÓLA PÉTURSSYNI
PÉTURSBORG
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
FLUG OG GISTING
Í 4 NÆTUR FRÁ 72.800 KR.
ÍS
L
E
N
S
K
A
A
U
G
L
Ý
S
IN
G
A
S
T
O
F
A
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
3
1
3
9
8
0
2
/2
0
0
6
KJÖRKASSINN
Gafstu blóm í tilefni Valentínus-
ardagsins?
Já 7,9%
Nei 92,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Óttastu að fuglaflensan berist
hingað til lands?
Segðu þína skoðun á Vísir.is
eftir 2 daga !
LETTLAND Neðanjarðarhagkerfið
er gríðarlega stórt í Lettlandi og
virðist ekki fara hratt minnka
ndi. Samkvæmt opinberum tölum
er Lettland
fátækasta ríkið
innan Evrópu-
sambandsins.
Ieva Pukit-
se, blaðamað-
ur á stærsta
dagblaði Lett-
lands, Diena,
segir að stór
hluti viðskipta
séu á svörtu og fólk fái gjarnan
launin sín greidd í peningum fram
hjá kerfinu án þess að njóta félags-
legra réttinda eða greiða skatta.
Lífskjör fólks eru ágæt í Lett-
landi, að minnsta kosti í höfuð-
borginni Ríga. Bilið milli þeirra
fátæku og þeirra ríku eykst
stöðugt en Ieva segir að millistétt
sé þó að myndast.
Þeir efnuðu eru gjarnan gaml-
ir stjórnmálamenn eða fólk sem
hefur tekist að skara eld að sinni
köku á þeim umbrotatímum sem
hafa verið í landinu frá því það
öðlaðist sjálfstæði fyrir fimmtán
árum.
Verðbólgan í Lettlandi er um
20 prósent á ársgrundvelli en hag-
vöxturinn er hraður þar eins og í
hinum Eystrasaltsríkjunum.
Allir sem vilja geta fengið
vinnu en margir Lettar hafa farið
utan, aðallega til Írlands þar sem
enskumælandi Lettar eiga auðvelt
með að fá vel launaða vinnu. ■
GÖTUMYND FRÁ RÍGA Hagvöxturinn er
hraður í Lettlandi og þar er auðvelt að fá
vinnu. FRÉTTABLAÐIÐ/GHS
Verðbólga er há og atvinnuleysi lítið í Lettlandi:
Hagkerfið stórt neðanjarðar
FRÉTTABLAÐIÐ
Í LETTLANDI
GUÐRÚN HELGA
SIGURÐARDÓTTIR
ghs@frettabladid.is
STÓRIÐJA Straumi var hleypt á
fyrstu kerin í nýjum áfanga Norð-
uráls á Grundartanga í gær. Hinir
nýju kerskálar álversins hafa
samtals 260 ný ker og munu þau
auka framleiðslugetu Norðuráls
úr 90.000 tonnum í 220.000 tonn
þegar stækkuninni lýkur seinna á
þessu ári.
Aukning framleiðslugetu verk-
smiðjunnar veitir að minnsta
kosti 160 nýjum starfsmönnum
atvinnu og með þeim talið verða
starfsmenn Norðuráls rúmlega
350 talsins. Miðað við áætlað með-
alverð áls reiknað nokkur ár fram
í tímann þá mun þessi stækkun
verksmiðjunnar auka útflutn-
ingstekjur þjóðarinnar um sextán
milljarða á ári.
Þessi nýja framleiðsluein-
ing álversins á Grundartanga er
eingöngu knúin jarðvarmaorku
frá Orkuveitu Reykjavíkur og
Hitaveitu Suðurnesja. Þetta eru
tímamót þar sem eining af þessu
tagi hefur aldrei áður verið knúin
jarðvarmaorku eingöngu. Fram-
kvæmdum við Norðurál á Grund-
artanga lýkur árið 2008 og verður
þá framleiðslugetan 260.000 tonn.
Heildarkosnaður við þennan
áfanga er 30 milljarðar króna og
tíma- og kostnaðaráætlanir við
framkvæmdirnar stóðust. - shá
Straumi hleypt á fyrstu kerin í nýjum áfanga Norðuráls:
Alls 130.000 tonna aukning
NORÐURÁL Á GRUNDARTANGA Svona kemur álverið til með að líta út eftir að stækkun
þess er lokið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Stakk föður sinn Maður með geð-
ræn vandamál stakk föður sinn í bakið
eftir að þeim varð sundurorða. Grunur
leikur á að maðurinn hafi neytt fíkni-
efna. Hann er nú í gæsluvarðhaldi.
Árekstur á Snorrabraut Harður
árekstur varð á mótum Snorrabrautar og
Egilsgötu laust fyrir klukkan hálf fimm í
gær. Tvær bifreiðar skullu saman þegar
önnur þeirra ók yfir á rauðu ljósi. Eldri
hjón voru flutt á slysadeild með minni-
háttar meiðsl.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Grunur um bilun Þota frá flugfélag-
inu Delta lenti á Keflavíkurflugvelli á
fimmta tímanum í dag vegna gruns um
bilun í hreyfli. Vélin, sem er af gerðinni
Boeing 767, var á leiðinni frá Frankfurt
vestur um haf með 77 manns um borð.
FLUG
SVEITASTJÓRNARMÁL Aldís Haf-
steinsdóttir, oddviti Sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn í Hveragerði,
segir líklegt að samningur við
Eykt um byggingu um 900 íbúða,
sem var samþykktur af meiri-
hluta á fundi bæjarstjórnar í gær,
verði kærður.
Ef að til kæru kemur er það í
þriðja skipti sem minnihluti kærir
uppbyggingarstarf bæjarstjórnar
til félagsmálaráðuneytisins og því
um hefðbundin viðbrögð að ræða,
að sögn Orra Hlöðverssonar bæj-
arstjóra í Hveragerði. Úrskurð-
ur ráðherra var meirihluta í vil í
bæði skiptin. - sdg
Átök um Eykt í Hveragerði:
Samingurinn
líklega kærður
SAKAMÁL Jón Þór Ólafsson og
Brenda Salinas Jovel voru að
fara af veitingastað í hverfinu
Zona Rosa í San Salvador þegar
síðast sást til þeirra, segir blaða-
maðurinn Carlos Henriquez sem
fjallað hefur um þetta sakamál
í El Salvador. Jón Þór og Brenda
fundust látin á sunnudagsmorgun.
Þeim hafði verið ráðinn bani.
Henriques kom á vettvang þegar
lögregla var að flytja líkin af
vettvangi. Hann segir að þau
hafi verið með skotsár á höfði og
bringu.
Ekki er vitað
hvort þau hafi
verið tekin af
lífi þar sem þau
fundust í veg-
arbrúninni um
klukkan hálf sjö
að sunnudags-
morgni. Þau
voru ekki með skilríki á sér svo
þau voru færð í líkhús í Santa
Ana og eftir að fregnin um morð-
in barst út fóru ættingjar Brendu
og báru kennsl á hana og eftir það
voru kennsl borin á Jón Þór.
Að sögn lögreglumanns sem
Fréttablaðið talaði við er búið að
setja á laggirnar nefnd sem starfa
mun fyrir utanríkisráðuneytið í
El Salvador. Nefndin mun rann-
saka málið með rannsóknarlög-
reglunni í El Salvador. Krufning
er hafin en ekki fengust fregnir af
því hvort sú rannsókn hefði leitt
eitthvað nýtt í ljós.
Violeta Polanco, fjölmiðlafull-
trúi lögreglunnar í El Salvador,
segir sex til átta morð vera fram-
in í landinu að meðaltali á degi
hverjum. Lögreglan hefur mikinn
viðbúnað vegna glæpagengjanna
Mara Salvatrucha sem þekkt eru
fyrir illræmd glæpa- og ofbeldis-
verk þar í landi en ekkert hefur
komið fram að sögn lögreglunar
sem getur tengt þetta voðaverk
við þau. Lög hafa verið sett í land-
inu sem nefnd eru La mano super
dura eða „með mjög harðri hendi“
sem heimila lögreglu að hand-
taka hvern þann sem grunaður er
um að vera meðlimur í La Mara
Salvatrucha.
Henriquez segir að þetta mál
hafi vakið mikla athygli í landinu
jafnvel þó hrottaverk sem þessi
séu ekki fátíð. „Við erum vön að
heyra fregnir af því að lík landa
okkar finnist svona útleikin en það
hefur vakið athygli að útlendingur
verði fyrir þessu,“ segir hann.
Helgi Ágústsson, sendiherra í
Bandaríkjunum, sem einnig sinn-
ir þessu svæði, segir að verið sé
að aðstoða ættingja við að flytja
lík Jóns Þórs heim en getur þó
ekki um það sagt hvenær það
muni verða. - jse@frettabladid.is
Lögregla í El Salvador rannsakar morðin á Jóni Þór Ólafssyni og Brendu Jovel.
Um sex til átta morð eru framin í landinu að meðaltali á degi hverjum. Utan-
ríkisráðuneytið í El Salvador ætlar að skipa nefnd til aðstoðar við rannsóknina.
Á VETTVANGI Skömmu eftir að líkin tvö
fundust við vegarbrúnina var þessi mynd
tekin. Lögreglan flutt þau í líkhús í Santa
Ana.
ó
EL SALVADOR
San Salvador
Santa Ana
Steingrímsfjarðarheiði ófær
Ófært var um Klettsháls, Eyrarfjall og á
Steingrímsfjarðarheiði í gær og hálka
var víða á Austurlandi. Ferðaveður var
slæmt víða um land.
SAMGÖNGUR
JÓN ÞÓR ÓLAFSSON
Morðin vekja mikla
athygli í El Salvador
EL SALVADOR Lík Jóns Þórs og Brendu fundust við þjóðveginn sem liggur á milli Santa Ana
og San Salvador.