Fréttablaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 63
Talsmaður Tom Cruise og Katie
Holmes hefur vísað því algerlega
á bug að þau séu að hætta saman.
Samkvæmt frétt í tímaritinu Life
& Style ætla þau að búa saman
þangað til barnið þeirra fæðist.
Eftir það munu þau hætta öllum
leikaraskapnum og fara hvort
í sína áttina í sumar. Cruise er
sagður ætla að kaupa hús handa
Holmes skammt frá sínu svo hann
geti tekið þátt í að ala upp barnið.
„Þrátt fyrir illgjarnan fréttaflutn-
ing Life & Style hlakkar parið til
að lifa hamingjuríku lífi saman
sem ein fjölskylda,“ sagði tals-
maðurinn.
Holmes, sem er 27 ára, og hinn
43 ára Cruise hafa verið trúlofuð
síðan í júní í fyrra. Talsmaður
tímaritsins segist standa fast við
fréttina. Segir hann að heimild-
armennirnir séu tveir ónefndir
vinir Cruise.
Engin sambandsslit
CRUISE OG HOLMES Leikaraparið er ekki að hætta saman þrátt fyrir fregnir þess efnis.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Norska hljómsveitin Det Betales
heldur tónleika á Broadway á
laugardag. Det Betales er talin ein
allra besta Bítlalagahljómsveit í
heimi og er árlegur gestur á Bítla-
hátíðinni í Liverpool.
Auk heimaborgar Bítlanna
hefur sveitin troðið upp um víða
veröld, til að mynda í Þýskalandi,
Spáni og Argentínu.
Hljómsveitin Hunang hitar upp
á Broadway. Húsið verður opnað
á miðnætti og stígur Det Beta-
les á svið klukkan eitt. Miðaverð
er 1.850 krónur auk miðagjalds
og fer miðasala fram á midi.is, í
verslunum Skífunnar, í BT Akur-
eyri og Selfossi, auk Broadway.
Bítlasveit á
Broadway
DET BETALES Norska sveitin þykir með
þeim betri í heiminum sem spila lög
Bítlanna.
Fréttablaðið stendur um þessar
mundir fyrir kosningu um hvaða
lag sé besta framlagið okkar til
Eurovision-keppninnar í tilefni af
því að á laugardaginn getur þjóðin
valið framlag sitt til keppninnar í
Grikklandi í sumar.
Viðtökurnar hafa verið vonum
framar en í gær höfðu hátt á
annað þúsund manns kosið. Það
er ljóst að hverjum þykir sinn fugl
fagur en nokkur lög eru þegar
farin að skera sig úr og því ljóst
að það verður hörð barátta fram á
síðasta dag.
Úrslitin verða kunngjörð á
laugardaginn í aukablaði um
keppnina sem fylgir Fréttablað-
inu en þar kennir margra grasa.
Þátttakendur geta átt von á því
að vera dregnir út og munu hinir
heppnu hljóta vinning frá Senu.
Kosningin gengur vel
NÍNU-GENGIÐ Ekkert er gefið upp um gengi einstakra laga en það er ljóst að lagið Nína á
eflaust eftir að skipa sér í efstu sætin.