Fréttablaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 27
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. GÓÐAN DAG! Í dag er fimmtudagurinn 16. febrúar, 47. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 9.20 13.42 8.05 Akureyri 9.12 13.26 17.42 Rúna í eftirlætiskápunni sem er bæði hlý og flott. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Rúna á forláta kápu sem hún er mikið í. Hún er hrifin af tískunni í dag og lýsir henni sem rómantískri og fjölbreyttri. ,,Það er eins og maður sé kominn undir sæng þegar maður fer í kápuna,“ segir Rúna Gerður Stefánsdóttir söngkona um eftirlætisflík sína. ,,Þetta er yndisleg kápa sem ég keypti í Oasis. Hún er úr þveginni ull og kraginn úr mongólsku lambaskinni.“ Rúna hefur átt þessa flík í fimm ár og notar hana afskaplega mikið. Bæði því hún er smart og einnig þar sem hún er hlý í hálsinn, sem er söngvurum nauðsynlegt. ,,Mér þykir bara svo vænt um hana og held ég muni eiga þar til hún dettur í sundur,“ segir Rúna glöð í bragði. Rúna segir tískuna í dag bæði fallega og fjölbreytta. ,,Mér finnst þetta eitt skemmtilegasta tímabil sem ég hef upplifað í fatatísku. Tískan í dag er augnakonfekt. Það er gaman að sjá hvað yngri krakkarnir eru rómantískt klæddir með allar þessar keðjur, kúlur og hálsmen og pilsin svo falleg,“ segir Rúna brosandi en bætir því við að tískan fyrir nokkrum árum síðan hafi verið heldur síðri. ,,Konur áttu helst ekki að vera í neinu. Tískan í dag er sexí þó svo fólk sé ekki allsbert, í því felst einmitt galdurinn.“ Rúna hefur varla undan við að sinna vinnum sínum. Hún syngur á ýmsum fögnuðum með hópnum Prímadonnunum, starfar í gleraugnaversluninni Ég C og mun syngja á næstunni ásamt Árna Scheving og hljómsveit hans. Enn fremur tekur hún þátt í forkeppni Eurovision en úrslitin munu liggja fyrir næstkomandi laugardagskvöld. ,,Þá skipti ég um dress, mér finnst bara nauðsynlegt fyrir áhorfandann að fá að sjá eitthvað nýtt,“ segir Rúna spennt. mariathora@frettabladid.is Tískan í dag er augnakonfekt Buxnadragtir eru að koma mjög sterkar inn enn og aftur. Þar sem tískan er búin að vera mjög kvenleg upp á síðkastið er kominn tími á smá töffaraheit. Á tískusýningum fremstu fatahönn- uða heims má sjá buxnadragtir í ýmsum útfærslum, jafnt einlitar sem teinóttar. Reykingar íslenskra unglinga hafa dregist verulega saman síðustu ár og á síðasta ári voru reykingar nemenda í 10. bekk í sögulegu lágmarki samkvæmt frétt á vef Lýðheilsustöðvar, www.lydheilsustod.is. Gallery Turpentine á Ingólfs- stræti sérhæfir sig í samtímalist og nú stendur yfir sýning á verkum Eyjólfs Einarssonar sem lýkur 25. febrúar. Næsta sýning þar á eftir verður á verkum JBK Ransu en meðal þeirra sem sýnt hafa í gallerýinu eru Hallgrímur Helgason, Jón Laxdal og Húbert Nói Jóhannesson. ALLT HITT TÍSKA, HEILSA OG HEIMILI HÚFUR OG HATTAR Höfuðföt af ýmsu tagi hafa sótt á í tískunni í vetur. TÍSKA 4 HANDSMÍÐAÐAR KLUKKUR Leikfangasmiðjan í Garði selur handsmíðaðar klukkur. HEIMILI 7 SÍFELLT FÆRRI GREINAST NÚ MEÐ KLAMYDÍU EFTIR AÐ FJÖLDI TILFELLA NÁÐI HÁMARKI ÁRIN 2001-2002. Klamydíutilfellum árið 2005 fækkaði verulega frá árinu á undan samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu en tíðni sýkingarinnar hefur farið lækkandi jafnt og þétt síðan 2003. Árin 2001-2002 náði fjöldi klamydíusýkinga hámarki en virðist nú aftur vera orðinn svipaður og fyrir þann tíma. Fjöldi sýna sem rannsökuð eru hefur verið svipaður síðustu ár en sífellt færri þeirra greinast nú með klamydíu sem bendir til þess að tilfellum sé að fækka. Flest klamydíutilfelli greinast hjá aldursflokknum 20-24 ára og næstflest hjá aldursflokknum 15-19 ára en aukningin 2001-2002 var aðallega hjá þessum aldursflokkum. Klamydíusmit getur verið einkennalaust en ef það er ekki meðhöndlað tímanlega getur það valdið ófrjósemi. Klamydíutilfellum fer aftur fækkandi Flest klamydíutilfelli greinast hjá ungu fólki á aldrinum 15-24 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.