Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.02.2006, Qupperneq 29

Fréttablaðið - 16.02.2006, Qupperneq 29
FIMMTUDAGUR 16. febrúar 2006 3 Úr háborg tískunnar BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS Nýlega lauk í París „Haute cout- ure“ tískusýningunum en hátísk- an er sá fatnaður sem eingöngu er sérsaumaður og aðeins ein flík saumuð af hverju. (Ólíkt því sem tískuskríbentar Moggans halda þá skapaði Tom Ford aldrei „Haute couture“ fyrir Gucci eða YSL heldur „ready-to-wear“, svo munurinn sé skýrður.) Verðið er eftir því, hleypur á nokkrum milljónum kjóllinn. Um nokkurt skeið hefur verið talað um þessa hátísku sem deyjandi listgrein. Hönnuðir telja þetta ekki aðeins vera tísku heldur listsköp- un. Eftir seinna stríð hönnuðu hundrað og sex frönsk tískuhús hátísku. Í dag eru ekki eftir nema tíu og gæti enn fækkað ef marka má afkomu þeirra og þá kröfu í dag að allt skili hagnaði og marg- ir hönnuðir segja það ekkert leyndarmál að engan gróða sé að hafa af hátískunni, aðeins kostn- að. Áður var allt saumað í hönd- unum í Frakklandi, nú er margs- konar handverk að hverfa vegna þess að það þykir of dýrt að nota strútsfjaðrir eða handsaumaðar blúndur, handverksiðnaðurinn færist til Asíu þar sem vinnu- aflið kostar lítið. Tísku- og lúxusiðnaðurinn hefur heilmikið breyst síðustu ár og viðskiptavinir láta sífellt verr að stjórn. Þeir eru ekki tryggir einu merki lengur held- ur velja úr mörgum. Ekki nóg með það heldur getur nú peysa frá Zöru gengið með gallabuxum með fínu merki og eftirlíkingu af Chanel-jakka. Þetta hefði verið óhugsandi hjá þeim sem eru loðnir um lófana fyrir tveimur til þremur árum. Nú heitir þetta lífsstíll og þykir flott. Áður voru það tískuhönnuðir sem lögðu lín- urnar en nú er öldin önnur. Hönn- uðirnir hafa sífellt minni áhrif því nú eru það tískuskrifstofur (bureaux de styles) sem gefa út tískuhefti (cahiers de tendances) með því sem koma skal í efnum, litum, sniðum og fleiru og tísk- an verður fyrir vikið einsleitari. Tískuhúsin hafa reyndar eitt af öðru verið gleypt af stórum keðj- um, aðallega tveimur (LVMH og Gucci-group) ef frá eru taldar nokkrar undantekningar eins og Chanel svo dæmi séu tekin. Þess vegna er það nú fyrsta reglan að skila hagnaði, ekki að hanna eitt- hvað ódauðlegt og bylta tískunni. Hönnuðir eyða í dag eins miklum tíma í fundi yfir fjárhagsáætlun- um eins og við teikniborðið. Samkeppnin verður sömuleið- is sífellt harðari og ódýru merkin eins og H&M, Zara og Gap taka sífellt stærri sneið af kökunni, hvert með sinni aðferð. Zara getur tekið upp snið frá öðrum á tíu dögum og H&M fær heims- fræga hönnuði eins og Karl Lag- erfeld og Stellu McCartney til að hanna fyrir sig, sem tryggir biðraðir fyrir framan búðirnar. Það blæs því ekki byrlega fyrir hátískunni með sína tvöhundruð viðskiptavini í heiminum. Hátíska á heljarþröm Verslunin Trílógía selur fallega hönnun sem nú má fá á góðu verði. Verslunin Trílógía á Laugaveginum sker sig úr hvað varðar ýmislegt sem viðkemur rekstrinum. Vörurn- ar eru einstakar, íslenskar og erlend- ar, listasýningar og aðrar uppákom- ur eru haldnar þar með reglulegu millibili og nú þegar útsölutíðin er á enda í öllum verslunum er Ungfrú útsala að stíga á stokk í Trílógíu. Ungfrú útsala er afskaplega lag- leg þetta árið, girnilegar hátísku- flíkur eru nú falar á flottu verði enda er 35 prósenta afsláttur af öllum vörum nema þeim sem versl- unin tekur að sér í umboðssölu. Næstu tvær vikurnar mun Ungfrú útsala spígspora um sandsteinalagt gólf Trílógíu svo fyrir þá sem áhuga hafa á hátísku er skilyrði að skreppa á Lauga- veginn og berja ungfrúna augum áður en vor- og sumarlínan yfir- tekur verslunina. Ungfrú útsala Bleik peysa á 5.100 kr. Hvítur toppur 6.400 kr. Pallíettukjóll 59.900 kr. Hálsmen á 3.900 kr. Pils með sebramynstri 6.900 kr. Appelsínugular blúndubuxur 3.900 kr. Buxur 20.700 kr. www.jbj.is - fyrir árshátíðina VOR 2006 Grófir málmskartgripir og fylgihlutir eru nokkuð áberandi um þessar mundir. Vinsælt er um þessar mundir að pönka útlitið örlítið upp með fylgi- hlutum úr málmum með miðalda- legum skreytingum. Hönnuðurinn Ugo Cacciatori frá Toskana-héraði á Ítalíu aðhyllist þennan stíl og sækir hugmyndir sínar til endur- reisnarinnar á Ítalíu og rómantíska tímabilsins á Englandi. Stíllinn hjá honum er sjóræningjalegur og einskorðast ekki aðeins við fylgi- hluti því hann hannar einnig föt og húsgögn í þessum stíl. Ekki er auðvelt að innrétta húsið sitt í sjóræningjastíl hér á landi en hægt er að flikka upp á útlitið og njóta þess að vera flottur og spes á sama tíma. Hálsmen og eyrnalokk- ar með steinaskreyttum smáhníf- um, þykk armbönd úr ópússuðu silfri með flúri og steinum ásamt rifnum gallabuxum og belti með hauskúpusylgjum eru hlutir sem fullkomna pönkaralúkkið. Það er varla nokkrum blöð- um að fletta um það að vinsældir pönkaða sjóræningjaútlitsins hafa fylgt í kjölfarið á myndinni Pirates of the Caribbean þar sem Johnny Depp fór með aðalhlutverkið. Sjóræn- ingjastíll Húfa með hauskúpumunstri passar vel inn í pönkaralúkkið og kemur sér vel hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.