Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.02.2006, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 16.02.2006, Qupperneq 46
TILKYNNINGAR 16 FASTEIGNIR 16. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR Stórhöfða 27 // 110 Reykjavík akkurat@akkurat.is // www.akkurat.is Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali 594 5000 Fr u m Mjög falleg 209 fm hæð og ris á þessum vinsæla stað. 4 svefnherb. Þ.a. 29,8 fm bílskúr, arinn í stofu, eikarparket og flísar á gólfum. Suðursvalir. VERÐ 36,0 millj. FISKAKVÍSL - 110 RVK. Stórhöfða 27 // 110 Reykjavík akkurat@akkurat.is // www.akkurat.is Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali 594 5000 Fr u m Mjög falleg 3ja 74 fm íbúð á 3.hæð í lyftuhúsi. Stórar suður- svalir. Þvottahús í íbúðinni Parket og flísar, vandað bað og eldhús. VERÐ 16,7 millj. DAGGARVELLIR - 221 HFJ. Stórhöfða 27 // 110 Reykjavík akkurat@akkurat.is // www.akkurat.is Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali 594 5000 Fr u m EFSTAHLÍÐ - 220 HFJ. Fallegt raðhús á rólegum og góðum stað í Hafnarfirði. Húsið er á tveimur hæðum alls 180,5 fm þar af 28,7 fm bíl- skúr. Garður er vel gróinn, stór timburverönd er að baka til með heitum potti og grillaðstöðu. VERÐ 41,5 millj. KÓPAVOGSBÆR AUGLÝSING UM AFGREIÐSLU BÆJARRÁÐS OG BÆJARSTJÓRNAR KÓPAVOGS Á AUGLÝSTUM TILLÖGUM AÐ SKIPULAGI. Í samræmi við 3. mgr. 18. gr. og 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar Kópavogs á eftirfarandi skipulagstillögum: Ögurhvarf 4. Breytt deiliskipulag. Bæjarráð Kópavogs samþykkti þann 22. júlí 2005 tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 4 við Ögurhvarf. Í breytingunni felst heimild til að reisa atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum í stað einnar hæðar byggingu með risi; grunnflöt- ur minnkar úr 900 m2 í 750m2 en gólfflötur stækkar úr 1.350 m2 í 1.500m2; hæð bygginga verður 8 metrar í stað 7 og fjöldi og fyrirkomulag bílastæða ásamt byggingarreit breytist. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:500 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 6. maí 2005 og breytt 19. júlí 2005. Tillagan var auglýst frá 1. júní til 29. júní 2005 með athugasemda- fresti til 13. júlí 2005. Athugasemd barst. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Auglýsing um AZ gildistöku deiliskipulagsins birtist í B-deild Stjórnartíðinda 17. febrúar 2006. Reykjanesbraut. Undirgöng. Breytt aðalskipulag. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 19. des- ember 2005 tillögu að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2000-2012. Tillagan nær til nýrra und- irganga fyrir bílaumferð undir Reykjanesbraut í framhaldi af Digranesvegi inn á lóð Linda IV. Til- lagan sem sett er fram á uppdrætti í mkv. 1:10.000 dags. í júlí 2005 var auglýst í samræmi við 18. gr. ofangreindra laga, frá 12. september til 10. október 2005 með athugasemdafresti til 24. októktóber 2005. Athugasemdir og ábendingar bárust. Bæjaryfirvöld hafa afgreitt athugasemd- irnar og sent þeim sem þær gerðu umsögn sína. Aðalskipulagsbreytingin var send Skipulagsstofn- un sem gerði tillögu til umhverfisráðherra um staðfestinu tillögunnar þar sem hvorki form- né efnisgallar væru á tillöguinni. Breytingin var stað- fest af umhverfisráðuneytinu 27. janúar 2006. Skemmuvegur 4. Breytt deiliskipulag. Bæjarráð Kópavogs samþykkti þann 19. janúar 2006 tillögu að breyttu deiliskipulagi við Skemmuveg 4. Í tillögunni felst heimild til að reisa einnar hæðar viðbyggingu við norðvestur enda núverandi byggingar samtals um 700 m2 að grunnfleti. Fjöldi og fyrirkomulag bílastæða breytist. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 og 1:500 dags. í október 2005. Tillagan var auglýst frá 18. nóvember til 26. desember 2005 með athugasemdafresti til 3. janúar 2006. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofan- greind lög mæla fyrir um. Auglýsing um gildis- töku deiliskipulagsins birtist í B-deild Stjórnartíð- inda 17. febrúar 2006. Frostaþing 2. Breytt deiliskipulag. Bæjarráð Kópavogs samþykkti þann 19. janúar 2006 tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2 við Frostaþing. Í tillögunni felst að lóðinni, sem er 3.500 m2 er skipt upp í fjórar lóðir fyrir sérbýli. Lóðin Frostaþing 2, sem nú þegar er byggð einbýlishúsi, fær nýja aðkomu og verðu nr. 1 A við Dalaþing. Eins og í gildandi deiliskipulagi verður áfram möguleiki á að byggja hesthús á lóðinni. Þar norðan við verður til ný lóð fyrir tveg- gja hæða einbýlishús Dalaþing 1 B, um 1.300 m2 að flatarmáli og einnig með möguleika á hesthúsi. Sunnan við núverandi hús (Frostaþing 2) er enn fremur gert ráð fyrir nýrri lóð, um 600 m2 að flatarmáli, fyrir einnar hæðar einbýli með risi Engjaþing 2. Vestan hennar er síðan gert ráð fyrir parhúsalóð fyrir einnar hæðar parhús, Frostaþing 2 A og 2 B. Opið svæði sunnan Dala- þings 1 er felt út og gönguleiðir og reiðleiðir breytast. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 dags. 27. október 2005. Tillagan var aug- lýst frá 18. nóvember til 26. desember 2005 með athugasemdafresti til 3. janúar 2006. Engar at- hugasemdir eða ábendingar bárust. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins birtist í B-deild Stjórnartíðinda 17. febrúar 2006. Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreindar deiliskipulagsáætlanir og afgreiðslur þeirra er hægt að nálgast á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 200 Kópavogi, milli kl. 8:00 og 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudög- um frá 8:00 til 14:00. Skipulagsstjóri Kópavogs 38-46 smáar 15.2.2006 16:08 Page 10
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.