Fréttablaðið - 16.02.2006, Síða 52
16. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR32
timamot@frettabladid.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
Svavar Sigurður Sæbjörnsson
Miðnestorgi 3, Sandgerði,
verður jarðsunginn frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði
laugardaginn 18. febrúar kl. 14.00.
Guðbjörg Svala Guðnadóttir
Sesselja Svavarsdóttir Grétar Sigurbjörnsson
Sigurgeir Svavarsson Soffía Gunnþórsdóttir
Fjóla Svavarsdóttir Torfi Gunnþórsson
Sæbjörn Ágúst Svavarsson Bryndís Guðrún Kristjánsdóttir
barnabörn og systkini.
Á þessum degi árið 1959 var
Fidel Castro svarinn í embætti
forsætisráðherra Kúbu. Hann
var aðeins 32 ára gamall og því
yngsti maðurinn til að gegna því
embætti frá upphafi.
Fidel Castro fæddist 13. ágúst
árið 1926 og vann sem ungur
drengur á sykurreyrsekrum og
sótti skóla jesúíta og síðar Belén-
framhaldsskólann í Havana. Árið
1945 hóf Castro háskólanám og
lauk laganámi árið 1950. Sem
lögmaður í Havana gætti hann
hagsmuna hinna fátæku.
Hann bauð sig fram til kúb-
verska þingsins árið 1952 en þáver-
andi einræðisherra Kúbu, Fulgencio
Batista, aflýsti kosningunum.
Fidel Castro gerði fyrstu bylt-
ingartilraun sína 26. júlí 1953, en
þá gerði hann misheppnaða árás
á herstöð í Santiago de Cuba. Eftir
árs útlegð í Mexíkó gekk Castro
á land í Oriente-héraði á Kúbu
ásamt 80 mönnum í desember
1956. Flestir þessara manna féllu
eða voru handteknir, en eftir rúm-
lega tveggja ára skæruliðabaráttu
Castros og manna hans hraktist
einræðisherra Kúbu, Fulgencio
Batista, frá völdum og flýði í
útlegð.
Manuel Urrutia var skipaður
forseti hinnar nýju stjórnar, en
Castro varð yfirmaður hersins.
Castro var gerður forsætisráð-
herra árið 1959 en í júlí sama ár
var forsetanum ýtt út úr stjórninni
og varð Castro þar með leiðtogi
Kúbu og hefur verið það síðan.
ÞETTA GERÐIST > 16. FEBRÚAR 1959
Castro settur forsætisráðherra Kúbu
CASTRO
MERKISATBURÐIR
1878 Silfurdollari er tekinn í
notkun sem gjaldmiðill í
Bandaríkjunum.
1916 Rússneski herinn nær
borginni Ezerum í Armeníu
úr höndum Tyrkja í fyrri
heimstyrjöldinni.
1920 Fyrsta dómþing Hæstaréttar
Íslands er háð.
1963 Lag Bítlanna, Please, please
me, kemst í efsta sæti
breska vinsældarlistans.
1981 Eitt mesta ofviðri í manna
minnum á Íslandi hefst um
kvöldið.
1994 Um 200 látast þegar harður
jarðskjálfti skekur eyna
Súmötru
1995 Hornsteinn er lagður að
nýju húsi Hæstaréttar við
Lindargötu.
VALA FLOSADÓTTIR (1978-)
FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Sá sem hefur trú á
sjálfum sér getur tekið
sínar ákvarðanir og
staðið fyrir sínu.“
Vala Flosadóttir er stangarstökkv-
ari sem hefur náð geysilega
góðum árangri. Hún var kosin
íþróttamaður ársins árið 2000.
ANDLÁT
Jón Pálmi Rögnvaldsson
matsveinn, Hvanneyrarbraut 42,
Siglufirði, er látinn.
Jóhannes G. Svavarsson, lést
á heimili sínu þriðjudaginn 7.
febrúar.
Sigríður Kristjánsdóttir frá Súða-
vík, lést þriðjudaginn 7. febrúar.
Sigurður Sveinsson, Gullsmára
10, Kópavogi, lést á gjörgæslu-
deild Landspítalans við Hringbraut
mánudaginn 13. febrúar.
JARÐARFARIR
13.00 Guðmundur Jónsson
(Mannsi), verður jarðsung-
inn frá Langholtskirkju.
13.00 Erlendur Steinar Ólafsson,
Miðtúni 46, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá
Laugarneskirkju.
15.00 Huldar Örn Andrésson
verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju.
Heljarmikil veisla var haldin í félags-
miðstöðinni Frostaskjóli í Vesturbæ
í vikunni. Tilefnið var tuttugu ára
afmæli Frostaskjóls en það var opnað
með pomp og prakt 14. febrúar árið
1986 sem félagsmiðstöð fyrir ungl-
inga. „Það má í raun segja að Frosta-
skjól sé að verða fullorðið,“ segir Jón
Ragnar Jónsson forstöðumaður glað-
lega, en Frostaskjól er ekki eingöngu
félagsmiðstöð í dag heldur ber heitið
Frístundamiðstöðin Frostaskjól og
hefur umsjón með starfsemi félags-
miðstöðvarinnar Frosta í Frosta-
skjóli, félagsmiðstöðvarinnar 101 í
Austurbæjarskóla og frístundaheim-
ila Grandaskóla, Melaskóla, Vestur-
bæjarskóla og Austurbæjarskóla.
Starfsemin er því umfangsmikil
enda starfa um sjötíu manns á þess-
um sex vinnustöðum og hátt í fimm
hundruð börn sækja þjónustu þangað
að einhverju leyti.
Jón Ragnar telur styrk Frosta-
skjóls hafa falist í staðsetningunni.
„Hér er sterk hverfavitund og við
erum hluti af því sérstöku andrúms-
lofti sem ríkir hér í Vesturbænum,“
segir hann og telur að þeir sem hafi
stundað félagsmiðstöðina hafi sterk-
ar taugar til hennar. „Við erum til
dæmis með marga starfsmenn sem
hafa verið unglingar í félagsmiðstöð-
inni,“ segir Jón Ragnar sem segir
engan einn atburð standa upp úr í
sögu Frostaskjóls. „Við reynum að
gera hvert starfsár eftirminnilegt
bæði fyrir þá sem hér vinna og þá sem
sækja þjónustuna. Kannski má segja
að það merkilegasta sem við gerum sé
að skapa minningar,“ segir Jón Ragn-
ar og telur unglinga í dag frábæra.
Hátíðahöldum er langt í frá lokið
og verða ýmsar uppákomur á næst-
unni tileinkaðar afmælinu. Í gær var
haldið þorrablót í boði bændafélags
Frostaskjóls, í dag fer fram svokölluð
barátta um Vatnsmýrina þar sem full-
trúar félagsmiðstöðvanna Frosta og
101 keppa í ýmsum greinum. Á föstu-
daginn ætlar hljómsveitin Í svörtum
fötum að spila fyrir dansi á afmæl-
isballi Frosta og glæsilegt sundpartí
verður í Sundhöll Reykjavíkur föstu-
daginn 24. febrúar. ■
FRÍSTUNDAMIÐSTÖÐIN FROSTASKJÓL: HELDUR UPP Á 20 ÁRA AFMÆLI
Frostaskjólið fullorðnast
SKAPAR MINNINGAR
Jón Ragnar Jónsson,
forstöðumaður
Frostaskjóls, segir að
mikilvægasta starf
félagsmiðstöðvarinn-
ar sé að skapa góðar
minningar.
Í GÓÐUM GÍR Þessir hressu krakkar af frístundaheimilum í Vesturbæ sungu lagið Við Reykjavíkurtjörn fyrir gesti og gangandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nýr vefur Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðis ins
var opnaður í gær af Jóni
Kristjánssyni heilbrigð-
isráðherra. Heilsugæslu-
stofnanir á höfuðborgar-
svæðinu sameinuðust í eina
stofnun 1. janúar 2006. Þá
var útbúinn nýr vefur sem
inniheldur upplýsingar um
þjónustu allra starfseininga
stofnunarinnar. Það eru
fimmtán heilsugæslustöðv-
ar auk starfsemi Heilsu-
verndarstöðvarinnar, Mið-
stöðvar heimahjúkrunar og
Geðheilsu eftirfylgd/iðju-
þjálfun.
Starfsmenn stofnunar-
innar eu 678 og þjóna alls
187 þúsund manns.
Á hinum nýja vef verð-
ur boðið upp á að senda
skráningarbeiðni rafrænt
á heilsugæslustöð auk þess
sem aðgengi að upplýsing-
um hefur verið auðveldað
til muna. ■
Nýr heilsugæsluvefur
UPPLÝSINGAVEITA Á vefnum er hægt að nálgast upplýsingar um allar starfs-
einingar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
AFMÆLI
Guðjón Már
Guðjónsson, forstjóri
Industria, er 34 ára.
Björn Thoroddsen
gítarleikari er 48 ára.
Ægir Frímann
Sigurgeirsson
prestur er 61 árs.
Svanhildur Sigurðar-
dóttir myndhöggvari
er 61 árs.
VINALEGUR TÍGUR Tígurtemjar-
inn Budi leikur við sex mánaða
Súmötru-tígurinn Eka í Raguna
dýragarðinum í Jakarta í Indónesíu.
Súmötru-tígrar eru í útrýmingar-
hættu en bein þeirra er og vinsælt
að nota við hefðbundnar austur-
lenskar lækningar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Grunnskólahátíðin í Hafn-
arfirði verður haldin í dag.
Hún er fyrir nemendur í
unglingadeildum sem einnig
standa að hátíðinni ásamt
íþrótta og tómstundaráði
Hafnarfjarðar. Sýnd verða
leikrit og atriði úr söngleikj-
um í hátíðarsal Víðistaða-
skóla klukkan tvö og fjögur
en í kvöld verður dansleikur
í íþróttahúsi skólans. Hljóm-
sveitirnar Sign, Jakobínar-
ína og Í svörtum fötum leika
fyrir dansi og sigurvegarar
úr Hraunrokki og söngva-
keppni Hafnarfjarðar koma
fram. ■
Grunnskólahá-
tíð í Hafnarfirði
LEIKA FYRIR DANSI Hljómsveitin Jakobínarína heldur ásamt öðrum uppi
stuði á dansleik fyrir hafnfirsk ungmenni í kvöld.