Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.02.2006, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 16.02.2006, Qupperneq 58
maturogvin@frettabladid.is 16. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR38 > Dragðu fram grillið ...og útbúðu gómsætar sam- lokur með grilluðu eggaldini, sætum kartöflum og kúrbít. Þetta bragðast óstjórnlega vel. Vín frá Chianti svæðinu í Toskana eru einhver þekktustu vín Ítalíu. Picc- ini er prýðilegt Chianti-vín, dágott borðvín á hagstæðu verði. Vínið er framleitt úr 90-95% sangiovese og 5-10% canaiolo þrúgum sem eru mikið ræktaðar í Toskana. Þetta vín er með falleg- um ljós rúbínrauðum lit, miklu jafnvægi, rúnnuðu og mjúku bragði og mildu eftirbragði. Þetta ein- staklega þægilega vín er hentugt með súpum, pasta, ostum og rauðu kjöti. Það er fremur þurrt, sykur er undir 2 gr. í hverjum lítra og hentar vel eitt og sér. Verð í Vínbúðum 990 kr. PICCINI: Dágott borðvín frá Chianti DAX skammtari snertifrír DAX handspritt í snertifr. DAX handsápa mild 600ml m.dælu 197kr. 5.973 kr. 650 kr. Hreinar hendur örugg samskipti Jóhanna Runólfsdóttir Sjúkraliði, ráðgjafi hjá RV R V 62 03 C DAX handáburður 250ml 238 kr. Í da g 16 . feb rúar kyn nir Jóh ann a ha nds prit t, han dsá pu o g kr em frá DAX í ve rslu n RV mill i kl. 14: 00 o g 17 :00. Víntímaritið Wine Spectator velur árlega 100 bestu vínin að mati vínrýna tímaritsins. Listans er ævin- lega beðið með nokkurri eftirvæntingu enda hefur hann mikil áhrif á sölu þeirra vínframleiðenda sem eru svo heppnir að komast á listann. Listinn fyrir 2005 vakti nokkra athygli fyrir þá slagsíðu amer- ískra vína sem er á honum, en Kalifornía er ótví- ræður sigurvegari þetta árið með 24 vín á listan- um. Fjögur vín frá Oregon komast á listann og tvö frá Washington. Vagga vínmenningarinnar, Frakk- land, kemur næst með 20 vín og Ítalía með 15 en Spánn er sem dvergur með aðeins sex vín. Efst á lista trónir vínið Insignia frá Joseph Phelps. Meðalverð vínanna á topp 100 er um 4000 kr. en vínin á topp 10 eru flest dýrari, kosta að meðaltali um 10.000 kr. Afar fá toppvínanna fást hérlendis, Joseph Phelps fékkst hér fyrir nokkrum árum en er ekki lengur á markaði. Brunello di Montalcino frá Castello Banfi er eina topp 10 vínið sem fæst almennt í vín- búðum en einnig er hægt að sérpanta fleiri vín. Chât- eau d‘Yquem er á sérlista og Puente Alto Don Melchor frá Concha y Toro fæst á betri veit- ingahúsum. Wine Spectator velur 100 bestu vínin Hvaða matar gætir þú síst verið án? Skyndibita. Engin spurning. Fyrsta minningin um mat? Það er sjálfsagt hrá paprika sem ég gæddi mér á í kerrunni hjá móður minni á Strikinu fjögra eða fimm ára. Besta máltíð sem þú hefur fengið? Ég fór með hljómsveitinni minni, Jan Mayen, á Argentínu á föstudag og fékk nautasteik, sem er hugsanlega það besta sem ég hef bragðað. Er einhver matur sem þér finnst vondur? Mér finnst það sem kemur úr sjónum síst, en mér finnst ekkert vont þannig séð. Leyndarmál úr eldhússkápunum? Þetta snýst allt um krydd. Hvað borðar þú til að láta þér líða betur? Ég borða það mikið af nammi að ég fæ mér yfirleitt eitthvað hollt til að líða vel. Mér líður alltaf betur eftir að hafa borðað banana. Hvað áttu alltaf í ísskápnum? Kók. Ef þú yrðir fastur á eyðieyju, hvaða rétt tækir þú með þér? Harðfisk. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur borðað? Ég hef borðað alls konar exótískan mat, snigla, froskalappir og hvaðeina og finnst það fínt en ég held að það sé ekkert skrítnara en íslenski þorramaturinn. MATGÆÐINGURINN: ÁGÚST BOGASON ÚTVARPSMAÐUR Bananar bæta líðanina Margrét Kristín Sigurðardóttir söngkona sem jafnan kallar sig Fabúlu er einstaklega klár í að galdra fram glæsilegar afmæl- iskökur og gefur hér uppskrift að dýrindis sjóræningjaköku. „Ég hélt nýlega sjóræningjaafmæli þar sem allir voru klæddir eins og sjóræningjar og meira að segja afi líka,“ segir hún og hlær. „Þegar krakkarnir eiga afmæli velja þau hvers konar köku þau vilja og í þetta sinn varð sjóræninginn fyrir valinu. Þá baka ég venjulega súkkulaði köku í kringlóttu formi og sker hana í tvennt með tvinna svo ég hafi meiri flöt til að vinna úr. Svo sker ég kökuna með hníf og móta líkamshlutana og púsla þeim saman eins og formið á að vera,“ segir Margrét einbeitt og greini- legt að hún er enginn nýgræðing- ur í faginu. „Svo bý ég til kremið og þek alla kökuna með því, öll samskeyti og allar hliðar. Það er fínt að nota bara góðan hníf í það. Þegar því er lokið hefst aðalfjörið því þá skreytum við. Þá erum við búin að byrgja okkur upp af nammi sem notað er í skreytinguna og síðast fórum við í búð þar sem var svona „bland í poka“-standur. Þar völd- um við nammið eftir litum og svo hófst skreytingin. Það er óskap- lega gaman að leyfa krökkunum að taka þátt í þessu,“ segir Mar- grét og bætir við að kökurnar hafi vakið mikla lukku hjá yngri kyn- slóðinni. „Sjóræningjakakan varð þó fyrir því óhappi að hún hrundi í gólfið rétt áður en hún var borin fram í afmælinu. Vinkona mín púslaði henni saman og ég held að það hafi enginn tekið eftir því hversu krambúleraður sjóræning- inn var.“ KAKA: 250 gr hveiti 1 tsk lyftiduft 1/2 tsk matarsódi 1 tsk salt 4 msk kakó 300 gr sykur 125 gr smjörlíki 2 1/2 dl mjólk 2 egg KREM: 10 dl flórsykur 4 msk kakó 4 msk brætt smjör sjóðandi vatn eftir þörfum Hrærið saman smjörlílki og sykur. Bætið eggjunum út í og hrærið vel. Blandið saman þurr- efnum í skál og bætið þeim út í smátt og smátt um leið og mjólk- inni er hellt út í. Hellið í vel smurt, stórt kringlótt form og bakið neðst í ofni við 175° í um 40 mínútur. Þegar kakan er tilbúin, látið hana kólna. Kljúfið í tvennt með tvinna eftir henni endi- langri. Skerið svo formin út með hníf og leggið fígúruna á stóra plötu. Púslið fígúrunni saman og þekið með kreminu á öllum hliðum og samskeytum. Skreytið eftir vild. hilda@frettabladid.is Krambúleraður sjóræningi MARGRÉT KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR Söngkonan knáa valdi að deila uppskrift að dýrindis sjóræningjaköku með lesendum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.