Fréttablaðið - 16.02.2006, Síða 66

Fréttablaðið - 16.02.2006, Síða 66
 16. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR46 DHL-deild karla: HAUKAR-VALUR 33-28 Mörk Hauka: Árni Sigtryggson 10, Andri Stefan 10, Kári Kristjánsson 4. Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 10, Jónas Stefánsson 7/2 Mörk Vals: Sigurður Eggertsson 6, Davíð Hös- kuldsson 6, Mohamedi Loutotifi 5. Varin skot: Pálmar Pétursson 13/2, Hlynur Jóhannesson 7. HK-KA 35-32 Mörk HK: Tomas Eitutis 9, Elías Már Halldórsson 9, Valdimar Þórsson 7. Mörk KA: Jónatan Magnússon 8, Nikola Jankovic 7, Ólafur Sigurgeirsson 5. ÍR-STJARNAN 27-27 Mörk ÍR: Hafsteinn Ingason 6, Tryggvi Haraldsson 6, Ragnar Helgason 5. Mörk Stjörnunnar: Titi Kalandadze 12, Arnar Theódórsson 4, Þórólfur Nielsen 4. ÞÓR AK.-SELFOSS 33-27 Mörk Þórs: Arnór Gunnarsson 9, Aigans Lazdins 7, Rúnar Sigtryggsson 6. Mörk Selfoss: Atli Kristinsson 10, Davíð Ágústsson 7, Vladimir Duric 4. VÍK/FJÖ-ÍBV 34-29 Mörk Vík/Fjö: Björn Guðmundsson 9, Sverrir Hermannsson 7, Sæþór Fannberg 5, Sveinn Þor- geirsson 5. Mörk ÍBV: Grétar Þór Eyþórsson 7, Michal Dostalik 6, Mladen Cacic 5. AFTURELDING-FRAM 18-27 Mörk Aftureldingar: Ernir Hrafn Arnarson 4, Vlad Trufan 3. Mörk Fram: Jóhann G. Einarsson 9, Sergei Ser- enko 6, Þorri Gunnarsson 5. FH-FYLKIR 28-27 Mörk FH: Valur Örn Arnarson 10, Daníel Berg Grétarsson 6, Hjörtur Hinriksson 4. Mörk Fylkis: Heimir Örn Árnason 6, Eymar Kruger 6, Arnar Jón Agnarsson 5. STAÐA EFSTU LIÐA FRAM 16 12 2 2 453-407 26 HAUKAR 16 12 1 3 477-428 25 VALUR 16 11 1 4 495-444 23 FYLKIR 16 8 2 6 441-409 18 STJARNAN 15 7 4 4 433-405 18 KA 15 7 3 5 412-407 17 ÍBV 16 7 1 8 472-503 15 AFTURELD. 16 6 2 8 400-415 14 ÍR 16 6 2 8 511-501 14 HK 16 6 2 8 444-457 14 FH 16 6 1 9 444-451 13 ÞÓR 16 4 3 9 450-473 11 SELFOSS 16 3 1 12 428-499 7 VÍK/FJÖ 16 3 1 12 433-494 7 DHL-deild kvenna: VALUR-FH 27-26 Mörk Vals: Ágústa Edda Björnsdóttir 11, Alla Gor- gorian 7, Rebekka Skúladóttir 4, Drífa Skúladóttir 4. Mörk FH: Maja Gronbæk 8, Þóra B. Helgadóttir 6, Eva Albrectsen 3. STAÐA EFSTU LIÐA VALUR 13 11 0 2 358-298 22 HAUKAR 12 10 0 2 374-313 20 ÍBV 12 9 1 2 327-277 19 STJARNAN 12 8 1 3 312-271 17 Evrópukeppni félagsliða: L. LOVECH-STRASBOURG 0-2 L. MOSKVA-SEVILLA 0-1 A. BRATISLAV-L. SOFIA 0-1 HERTHA BERLIN-R. BUCHAREST 0-1 BASIL-MÓNAKÓ 1-0 LILLE-S. DONETSK 3-2 HEERENVEEN-ST. BÚKAREST 1-3 ROSENBORG-ZENET 0-2 SCHALKE-ESPANYOL 2-1 BOLTON-MARSEILLE 0-0 UDINESE-LENS 3-0 CLUB BRUGGE-ROMA 1-2 Enska úrvalsdeildin: BLACKBURN-SUNDERLAND 2-0 1-0 Craig Bellamy (38.), 2-0 Craig Bellamy (63.). Enska 1. deildin: COVENTRY-SHEFF. WED 2-1 SOUTHAMPTON-PRESTON 0-0 ÚRSLIT GÆRDAGSINS KÖRFUBOLTI Áfrýjunardómstóll KKÍ staðfesti í gær dóm dómstóls KKÍ í máli Hamars/Selfoss gegn Keflavík. Hamar/Selfoss kærði leikinn þar sem Guðjón Skúlason var í leikmannahópi Keflavíkur í leiknum en hann hafði ekki leik- heimild. Dómstóll KKÍ dæmdi því Hamri/Selfossi sigurinn í leikn- um en Keflavík áfrýjaði á þeirri forsendu að Guðjón hefði engan þátt tekið í leiknum og þar af leið- andi ekki verið beinn þátttakandi í leiknum. Á þau rök féllst áfrýj- unardómstóllinn ekki og dómur- inn stendur því óhaggaður. - hbg Mál Hamars gegn Keflavík: Fyrri dómur staðfestur GUÐJÓN SKÚLASON Vera hans á vara- mannabekk gegn Hamri/Selfossi er búin að kosta Keflavík tvö stig. GOLF Suður-afríski kylfingur- inn Ernie Els snýr aftur í PGA- mótaröðina eftir átta mánaða fjarveru vegna meiðsla um helg- ina þegar hann tekur þátt í opna Nissan-mótinu sem fram fer á Riviera-golfvellinum. Allir fimm efstu kylfingarnir á heimslistan- um verða með á mótinu en það gerist æ sjaldnar núorðið. Þeir fimm efstu eru auk Els, Tiger Woods, Vijay Singh, Retief Goos- en og Phil Mickelson. Hinn 36 ára gamli Els sleit krossband í fyrra og hefur tekið sér góðan tíma til að ná sér að fullu vegna meiðslanna. Els á von á mikilli samkeppni, þá sérstak- lega frá Woods sem hefur sigrað á síðustu þremur mótum sem hann hefur tekið þátt í og er því sjóð- heitur um þessar mundir. Els stefnir á að taka árinu með meiri ró en áður til að einbeita sér heldur að góðum árangri í stór- mótunum, en Els keppir iðulega á öllum mótum sem hann kemst á, hvar í heiminum sem þau eru haldin. - hþh Nissan-mótið í golfi: Els snýr aftur ERNIE ELS Snýr aftur um helgina. NORICPHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, bíður í ofvæni eftir leiknum gegn Liverpool í FA bikarkeppninni á laugardaginn. Þessir fornu fjendur mætast á Anfield Road og vilja Evrópu- meistararnir ólmir hefna ófar- anna í deildarleik liðanna fyrir skömmu þegar Rio Ferdinand skoraði sigurmark leiksins þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma. „Augljóslega vilja bæði lið komast áfram í næstu umferð. Andrúmsloftið, hefð klúbbanna og saga þeirra, leikir þeirra og stuðningur áhorfenda, þetta blandast allt saman í stórkost- legan knattspyrnuleik. Þetta er leikurinn sem ég hlakka alltaf mest til,“ sagði Ferguson en liðin há einnig harða baráttu um annað sæti deildarinnar. - hþh Liverpool og Man. Utd. leika: Sir Alex getur ekki beðið FÓTBOLTI Fáir, ef nokkrir, eru jafn blóðheitir og dyggir stuðn- ingsmenn síns félags en Ruth Crawshaw, 63 ára gömul amma frá Bolton. Crawshaw var valinn stuðningsmaður mánaðarins hjá ensku úrvalsdeildinni í nóvem- ber sl. og þótt fyrr hefði mátt vera − amman hefur ekki misst af deildarleik með Bolton í bráð- um 47 ár. Þeir eru orðnir yfir tvö þús- und talsins, leikirnir sem hún hefur samfellt mætt á með Bolt- on frá árinu 1959, bæði heima og heiman, og hefur hún á þeim tíma heimsótt um 250 útivelli á Bret- landseyjum og víðar. Að sjálf- sögðu fylgir hún liði sínu einnig á Evrópuleikina ytra og á þessari leiktíð einni hefur hún farið til Búlgaríu, Tyrklands og Póllands. Þá sér hún einnig flesta leiki vara- og unglingaliði Bolton. „Ég hef verið aðdáandi frá því að ég var 15 ára og áhuginn á liðinu fer ekki minnkandi. Liðið hefur sjaldan verið betra og ég skemmti mér konunlega á vell- inum í hvert sinn sem ég mæti,“ sagði Crawshaw þegar hún tók við verðlaununum í lok síðasta árs. - vig Dyggasti aðdáandi Bolton á Englandi er 63 ára gömul kona: Hefur ekki misst af leik frá árinu 1959 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FEBRÚAR 13 14 15 16 17 18 19 Fimmtudagur ■ ■ SJÓNVARP  08.55 Vetrarólympíuleikarnir á RÚV. Bein útsending.  18.30 Vetrarólympíuleikarnir á RÚV. Samantekt.  20.10 Golf á Sýn. Inside the PGA  20.35 Aflraunir á Sýn. Sterkasti maður heims 2005.  21.55 Kappakstur á Sýn. A1 Grand Prix. Umfjöllun um heimsbikarinn.  23.55 Vetrarólympíuleikarnir á RÚV. Samantekt (e). FÓTBOLTI Þær staðhæfingar hinna fjölmörgu spekúlanta um að Real Madrid væri ekki lengur knatt- spyrnufélag með helsta áherslu á fótbolta heldur gróða, fengu byr undir báða vængi í gær þegar upplýst var að spænska stórveldið væri búið að steypa Manchester United af stóli sem ríkasta fót- boltafélag heims. Þetta er í fyrsta sinn síðan endurskoðendafyrir- tækið Deloitte hóf að reikna út lista ríkustu félaga heims fyrir níu árum sem Man. Utd er ekki í efsta sæti. Ekki er tekið tillit til auðæfa þeirra sem eiga félögin, heldur aðeins veltu og gróða félaga á síðustu leiktíð. Tekjur Real Madr- id jukustu um heil 17% á milli tímabila á síðasta ári þrátt fyrir að árangur liðsins hafi verið einn sá lakasti í áraraðir. Heildargróð- inn reyndist vera 328 milljónir dollara en gróði Man. Utd var 293 milljónir dollara. AC Milan er í þriðja sæti með gróða upp á 234 milljón dollara en þar á eftir kemur Juventus með fimm millj- ónum minna. Chelsea er í 5. sæti listans með tæplega 221 milljón dollara í gróða á síðasta ári. Í skýrslu Deloitte kemur fram að stærstur hluti gróða Real Madrid sé tilkomin vegna auglýs- inga og sölu ýmiss konar varnings en tekjur enskra félaga megi að stærstum hluta rekja til miðasölu á leikjum en tekjur ítalskra félaga stafi fyrst og fremst af sölu á sjónvarpsrétti. Helstu ástæðurn- ar fyrir minni gróða Man. Utd eru sagðar vera slakur árangur liðs- ins í meistaradeildinni á síðustu leiktíð og sjónvarpstekjurnar sem félagið varð af í kjölfarið. Þrjú félög féllu af lista 20 rík- ustu félaga í ár – Marseille, Aston Villa og Rangers, en í stað þeirra koma Everton, Lyon og Valencia inn á listann. - vig Manchester United er ekki lengur ríkasta félagslið í heimi: Real Madrid býr til mestu peningana DAVID BECKHAM Stendur sig kannski ekki vel á vellinum en færir Real Madrid miklar tekjur í gegnum auglýsingar. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES 10 RÍKUSTU FÉLÖGIN FÉLAG GRÓÐI* 1. Real Madrid 328 2. Man. Utd 246 3. AC Milan 234 4. Juventus 229 5. Chelsea 221 6. Barcelona 208 7. Bayern Munchen 190 8. Liverpool 181 9. Inter 177 10. Arsenal 171 * Í milljónum dollara HANDBOLTI „Við horfðum upp á algjörlega ömurlega dómgæslu hér í kvöld,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Valsmanna, eftir að liðið beiðlægri hlut gegn Haukum í toppslag DHL-deild- ar karla í handbolta sem fram fór í gærkvöldi. Atvikið sem Óskar Bjarni vísar helst til með þessum ummælum sínum átti sér stað strax á 8. mínútu leiksins þegar dómar- arnir, þeir Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson, vísuðu Baldvini Þorsteinssyni af velli fyrir að fara með höndina í andlit Andra Stefans, leikmanns Hauka. Dómurinn var glórulaus í meira lagi, verðskuld- aði hugsanlega tvær mínútur en að gefa Baldvini beint rautt spjald var einfaldlega óskiljanleg ákvörðun hjá dómurunum, sem áttu annars hrikalegan dag og höfðu engin tök á leiknum. „Þetta var algjört grín og dóm- gæslan var nánast hlægileg allan leikinn. Þetta er dýrt því það lítur út fyrir að við verðum án Baldvins í leiknum mikilvæga gegn Fram í næstu viku,“ bætti Óskar Bjarni við en Baldvin mun að öllu óbreyttu fá eins leiks bann fyrir að hafa fengið beint rautt spjald. Fjarvera Baldvins hafði mikil áhrif á Valsliðið og var hans sárt saknað í sóknarleik liðsins. Brott- vísunin átti sér stað í stöðunni 4-3 fyrir heimamenn og var gestunum augljóslega brugðið. Haukar náðu í kjölfarið fjögurra marka forystu sem átti eftir að aukast jafnt og þétt það sem eftir lifði hálfleiksins og var staðan 19-13 í hálfleik, heima- mönnum í vil. Valsmenn komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og minnkuðu muninn jafnt og þétt. Með stífum varnarleik og miklum stuðningi áhorfenda náðu þeir að minnka muninn niður í eitt mark þegar um 15 mínútur voru eftir en þá spýttu heimamenn í lófana á ný og náðu forskoti sem þeir áttu ekki eftir að láta af hendi. Lokatölur urðu 33-28 og halda Haukar því 2. sæti deildar- innar. „Strákarnir sýndu frábæran karakter með því að koma til baka og hefðum við jafnað leikinn tel ég að leikurinn hefði farið á annan veg,“ sagði Óskar Bjarni. Leikmenn Vals léku flestir langt undir getu framan af leik en allir bættu leik sinn verulega í síð- ari hálfleik. Sigurður Eggertsson var bestur, skoraði 6 mörk auk þess sem hann átti fjölmargar stoðsend- ingar. Hjá Haukum áttu áðurnefnd- ur Andri Stefan og Árni Sigtrygg- son mjög góðan leik og skoruðu 10 mörk hvor. Fram heldur toppsæti deildar- innar eftir auðveldan sigur á Aftur- eldingu í Mosfellsbænum, 27-18, en í Austurbergi skildu ÍR og Stjarnan jöfn, 27-27 í hörkuleik. Það var horn- armaðurinn knái Ragnar Helgason sem skoraði jöfnunarmark ÍR þegar um hálf mínúta var eftir af leiknum í gær en heimamenn sluppu með skrekkinn á síðustu sekúndunni þegar þrumuskot Tite Kalandadze hafnaði í þverslánni. Leikurinn var mjög sveiflu- kenndur og höfðu heimamenn í ÍR yfirhöndina framan af leik. Leik- menn Stjörnunnar komu grimmir til leiks í síðari hálfleik og náðu fljótlega að snúa leiknum sér í vil. ÍR gafst hins vegar aldrei upp og uppskar sanngjarnt jafntefli á end- anum. Gestirnir söknuðu Patreks Jóhannessonar sem lék ekki með í gær en Kalandadze var frábær og skoraði 12 mörk. Þá vakti mikla athygli að Konráð Olavsson lék með Stjörnunni á ný eftir langa fjarveru og virtist í ágætu formi. - vig, - hþh. Glórulaust rautt spjald Haukar unnu góðan sigur á Valsmönnum í toppslag DHL-deildar karla í gær- kvöldi þar sem dómararnir voru í aðalhlutverki. Fram er sem fyrr á toppnum. RAUTT SPJALD Baldvin Þorsteinsson hjá Val trúði varla sínum eigin augum þegar hann fékk að líta rauða spjaldið í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.