Fréttablaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 16
3. mars 2006 FÖSTUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Vilja
velta
Þórarni
úr sessi
„ÉG MÆTI RÓLEGUR Á NÆSTA
AÐALFUND,“ SEGIR ÞÓRARINN
Framkvæmdastjórar hjá SÁÁ flýja ofríkið
2x15 - leisð 2.3.2006 21:07 Page 1
Jóhann Guðni Reynisson,
sveitarstjóri í Þingeyjar-
sveit, lætur af störfum í vor
og hefur nám í húsasmíði
við Verkmenntaskólann á
Akureyri. Hann segir vel
koma til greina að taka að
sér smíði álvers við Húsa-
vík að námi loknu.
„Þetta hefur lengi blundað í mér og
ég hef klambrað svolítið heima
við,“ segir Jóhann Guðni spurður
hvenær hann hneigðist til smíða-
starfa. „Það hefur hins vegar farið í
taugarnar á mér að kunna þetta
ekki almennilega.“
Það kemur í ljós að Jóhann
Guðni er hógvær þegar hann segist
hafa klambrað svolítið. Fyrir
nokkrum árum tók hann við fok-
heldu húsi og gerði íbúðarhæf, en
reyndar með aðstoð góðra manna.
Þá hefur hann smíðað skjólvegg og
í kringum heita pottinn í garðinum
heima á Laugum.
Stutt er síðan hann fékk þá flugu
í höfuðið að setjast á skólabekk og
nema húsasmíði. „Hugmyndin kom
fyrst upp fyrir ekki löngu síðan og
ég tók ákvörðun á nokkrum dögum.
Ég spjallaði um þetta við Kristján
Snæbjörnsson, byggingaverktaka á
Laugum, og eftir tíu daga var þetta
afgreitt og ég kominn á samning
hjá honum.“
Jóhann Guðni segir að eftir að
hann tók ákvörðunina hafi hann
rætt málið við kunningja sína og í
ljós hafi komið að smiðurinn blund-
ar í mörgum. Fæstir láta hins vegar
verða af því að söðla um og læra
það sem til þarf.
Sú staðreynd að fjörlegt er á
byggingamarkaði nú um stundir
hafði sín áhrif á ákvörðunina. „Það
spillir allavega ekki fyrir að svo
virðist sem nóg verði að gera í
framtíðinni og ég tel mikla mögu-
leika felast í að hafa þessa mennt-
un.“ Áður nam Jóhann Guðni
íslensku og fjölmiðlafræði og síðar
uppeldis- og kennslufræði við
Háskóla Íslands. Enn síðar settist
hann svo á skólabekk í Endur-
menntunarstofnun HÍ og lærði
opinbera stjórnsýslu og stjórnun.
Almenn hamingja ríkir á heimili
Jóhanns Guðna með þessa ákvörð-
un hans. „Börnin eru ánægð. Pabbi
smiður segja þau og sjá fram á að
fá loksins kofa í garðinn. Og konan
mín er ánægð með að fá loksins
hinn handlagna heimilisföður.“
Fjölskyldan ætlar að búa áfram
á Laugum enda líður henni vel þar.
Þau fluttust norður þegar Jóhann
Guðni var ráðinn sveitarstjóri fyrir
fjórum árum.
Sama dag og Jóhann Guðni til-
kynnti um þessa ákvörðun sína
skrifaði álrisinn Alcoa undir sam-
komulag við stjórnvöld um að
stefna að því að reisa álver við
Húsavík, nágrannabæ Lauga.
Jóhann Guðni útilokar ekki að álver
verði einmitt það fyrsta sem hann
smíðar að námi loknu. „Það getur
vel verið,“ segir hann og hlær. „En
ég held að það verði svo mikið að
gera hér á næstu árum, hvort sem
það verður álver eða sumarbústað-
ir eða allt þar á milli, að menn hafi
nóg að gera. En ég er alveg til í að
taka að mér að smíða eitt stykki
álver fyrir þá.“
bjorn@frettabladid.is
JÓHANN GUÐNI REYNISSON VERÐANDI HÚSASMIÐUR „Það spillir allavega ekki fyrir að svo virðist sem nóg verði að gera í framtíðinni og ég
tel mikla möguleika felast í að hafa þessa menntun.“
Eiginkonan fær loksins
handlaginn heimilisföður
Samtals eru 16.594 rúm á hótelum
og gistiheimilum á Íslandi. Hefur
þeim fjölgað um 4.123 síðan árið
2000 en þá voru rúmin 12.471.
Flest eru rúmin á höfuðborg-
arsvæðinu eða 5.657 en fæst á
Vestfjörðum, 393.
Þessar upplýsingar er að finna
á vef Hagstofunnar.
Hótel- og gistiheimilarúm á
höfuðborgarsvæðinu voru 3.800
árið 2000 og hefur því fjölgað að
meðaltali um 370 á ári síðustu ár.
Enn er fyrirhuguð fjölgun á þessu
ári og má nefna að í gamla Fiski-
félagshúsinu á horni Skúlagötu
og Ingólfsstrætis er verið að inn-
rétta 130 herbergja hótel og í
Þingholtsstræti er verið að reisa
viðbyggingu við Ísafoldarhúsið
og samtals verða þar 54 her-
bergi.
Hótelum og gistiheimilum
hefur líka fjölgað talsvert á þessu
árabili; árið 2000 voru þau 244 en
fimm árum síðar voru 319 hótel
og gistiheimili á Íslandi. Og sé
litið til fjölgunar hótelherbergja
má sjá að þau voru 7.989 árið 2005
en árið 2000 voru þau 6.045.
4.000 hótelrúm á fimm árum
HÓTEL PLAZA Í MIÐBORG REYKJAVÍKUR Eitt
hinna nýju hótela á höfuðborgarsvæðinu.
UPPÁBÚIÐ RÚM Frá Hótel Heklu á Skeið-
um.
Þar hafið þið það
„Reynsla unglækna er
mjög takmörkuð og heims-
sýn þeirra mjög þröng.“
JÓHANNES M. GUNNARSSON,
LÆKNINGAFORSTJÓRI LSH, UM
UNGLÆKNA. FRÉTTABLAÐIÐ.
Fábreytt er saga
Húsavíkur
„Þetta er ein mesta há-
tíðarstund hér frá því að
Garðar kom 870.“
HREINN HJARTARSON, ORKU-
VEITUSTJÓRI Á HÚSAVÍK, Á LÉTT-
UM NÓTUM Í MORGUNBLAÐINU
VEGNA ÁKVÖRÐUNAR ALCOA.
„Ég er ekki viss um að þetta sé málið,“
segir Margrét Sigurðardóttir, Magga
massi, líkamsræktarþjálfari í Pumping
iron, um áform bandaríska álrisans
Alcoa um að reisa álver á Bakka við
Húsavík. Magga er smeyk um að hér
verði alltof mörg álver og spyr: „Er ekki
komið nóg af þessu?“
Hún telur rétt að stjórnvöld hugi að
öðrum atvinnugreinum þegar horft er
til uppbyggingar á landsbyggðinni.
Magga er hrædd um að efnahags-
leg áhrif svo margra álvera hafi þær
afleiðingar að þenslan í hagkerfinu
verði óbærileg, en umhverfisverndar-
sjónarmiðin eru henni einnig ofarlega
í huga þegar hún mótar skoðun sína
á málinu.
SJÓNARHÓLL
ÁLVER VIÐ HÚSAVÍK
Ekki
sannfærð
LÖGREGLAN Á BLÖNDUÓSI Margur hefur
þurft að taka upp veskið eftir að hafa ekið
of hratt í Húnavatnssýslum.
Á fjórða tug umsókna barst um
fjögur skrifstofustörf hjá nýrri
ríkisstofnun, Innheimtumiðstöð
sekta, sem tekur til starfa á
Blönduósi í apríl. Miðstöðinni er
ætlað að annast innheimtu allra
sekta og sakarkostnaðar á landinu
og tekur hún við innheimtunni stig
af stigi. Áætlað er að þegar allt
verður komið í fullan gang verði
starfsmenn í kringum tíu.
Erna Jónmundsdóttir lögreglu-
maður mun stýra innheimtumið-
stöðinni.
Þessi mikli fjöldi umsókna
gefur nokkra mynd af atvinnu-
ástandinu á Blönduósi en þar
hefur atvinnutækifærum fækkað
á undanförnum árum.
Gárungarnir hafa gaman af
því að miðstöðinni sé valinn stað-
ur á Blönduósi en lögreglan í
bænum hefur verið ötulli en jafn-
an gerist við að sekta ökumenn
fyrir of hraðan akstur. Er haft á
orði að sektirnar munu streyma í
ríkissjóð enda vanir menn á ferð-
inni í innheimtunni. -bþs
Marga langar í
innheimtuna
Það er nú kannski fyrst að frétta að nú fer
að volgna í pólitíkinni fyrir vorið,“ segir Soffía
Vagnsdóttir, fulltrúi óflokksbundinna í minni-
hluta bæjarstjórnar í Bolungarvík. Soffía hugar
að framboði fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar
og vonar að þá verði kosningaúrslitin önnur en
síðast þegar hlutkesti réð því hvor fylkinganna
færi með völdin: „Ég er tilbúin að vinna áfram
ef fólk telur að ég geti orðið að liði.“
Þrátt fyrir að Soffía láti mikið að sér kveða
er hún hvað þekktust á landsvísu fyrir að koma
á fót hinni frægu ástarviku í Bolungarvík. Sú var
haldin í annað sinn í september. „Ástarvikan
var lítil fíflagangshugmynd sem sló svona í gegn
og vakti mikla lukku. Ég er dauðhrædd og hef
ekki þorað að taka púlsinn á því hvort von er á
börnum í bænum í maí. Ég verð að grafa mig
lifandi ef það er ekki,“ segir Soffía og skellir upp
úr. „Ég var búin að segja að það hlyti að verða
að minnsta kosti 100 prósenta fjölgun frá maí í
fyrra, þegar eitt barn fæddist eftir ástarvikuna.“
Soffía segir þó ástarvikuna fjarri huga
bæjarbúa um þessar mundir. Þeir bíði eftir nið-
urstöðum rannsóknarboranna í Óshlíð vegna
jarðganga. Þær berist á næstu vikum: „Lykillinn
að okkar björtu framtíð eru góðar samgöng-
ur,“ segir Soffía og að þá skipti miklu máli að
Vestfirðingar sameinist um eina leið. Þrátt fyrir
að dýrara sé að fara úr Syðridal í Tungudal sé
hún sú rétta. „Það skiptir engu máli að keyra tíu
kílómetra lengri leið ef maður þarf ekki að byrja
á því að líta til veðurs,“ segir hún og bendir á
að verði aðrar leiðir fyrir valinu náist ekki að
komast fyrir alla hættulegu kaflana á leiðinni og
þó að kostnaðurinn sé meiri séu áhrifin mun
fjölþættari: „Ef samgöngurnar verða lagaðar
er til dæmis engin fyrirstaða fyrir sameiningu
Ísafjarðar og Bolungarvíkur.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SOFFÍA VAGNSDÓTTIR
Gæti þurft að grafa sig lifandi
Soffía Vagnsdóttir, bæjarstjórnarmaður
í Bolungarvík