Fréttablaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Tyrkland
Marmaris og Içmeler sumarið 2006
Nánari uppl‡singar um fer›ir ásamt l‡singum á hótelum
er a› finna á www.urvalutsyn.is
Úrval-Útsýn, Lágmúla 4: 585 4000 – Akureyri: 460 0600 – Vestmannaeyjum: 481 1450
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
3
16
10
03
/2
00
6
Vinsælir gististaðirað seljast upp.Bókaðu strax!
Stórar, glæsilegar
íbúðir með 2 svefnherb.
39.800*
á mann m.v. 3 fullorðna og 2 börn,
2ja-11 ára, í íbúð m/2 svefnherbergjum
í 7 nætur, 27. júní.
Faber
Nýtt og notalegt
íbúðahótel
42.600*
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2ja-11 ára, í íbúð m/1 svefnherbergi
í 7 nætur, 18. júlí.
Forum
*Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Upplifðu hið fullkomna
sumarfrí fjölskyldunnar:
• Glæsilegir gististaðir
• Vikulegt leiguflug frá 23. maí
• Ótrúlegt verðlag
• Iðandi mannlíf
• Einstök gestrisni
• Stórkostleg náttúrufegurð
• Óteljandi menningarperlur
• Spennandi skoðunarferðir
Ferðanýjung ársins!
Fagurt og framandi - fyrir þig!
����������
���������������������
Þ ar á andinn óðul sín/öll sem verða á jörðu fundin, sungu
Þingeyingar um sitt hérað hér
forðum daga. Í dag mætti ætla að
þeir hefðu verið beittir vúdú
göldrum. Þeir hafa sannað þá stað-
reynd að búi menn við of mikla
fegurð of lengi, hætti þeir að sjá
hana.
HAMINGJAN sem yfirvofandi
álversframkvæmdir boða er sögð
mikil. Birtar myndir af henni í
sjónvarpsfréttum. Er það líklega í
fyrsta sinn sem landslýður fær að
sjá fögnuð að hætti Þingeyinga og
tímabært að við hin fáum að berja
þvílíka stuðbolta augum. Hvergi
annars staðar á byggðu bóli finnst
flokkur sem situr eins þykkju-
þungur, þögull og úlpuklæddur,
mænandi ofan í kollurnar sínar á
bæjarbarnum af einskærri ham-
ingju. Fagnaðarlæti af slíku tagi
sjást helst í jarðarförum sunnan
heiða. Hefði verið forvitnilegt að
sjá hinn þingeyska óðalsanda í
herbúðum hinna, sem ekki vilja
álver í sína sveit. En það er nú eins
og það er. Nú skal troða rökum
álvers oní þjóðina og hverjum er
þá ekki sama um hina hlið máls-
ins?
SVO kemur málsvari ál-myrkra-
höfðingjanna á Íslandi, ráðherra
orkumála, og boðar lýðnum mik-
inn fögnuð. Veifar gulrótum á við
göng undir Vaðlaheiði sem hún
segir hafa verið alllengi í umræð-
unni, jafnvel veg og brú yfir
Skjálfandafljót þar sem fram-
kvæmdir yrðu að hluta í höndum
einkaaðila, væntanlega þing-
eyskra...
VÆRI ég Þingeyingar myndi ég
spyrna við fótum á þann einstaka
þvergirðingshátt sem þeirri sýslu
er tamur og selja mína jarðarmóð-
ur dýrt. Láta lofa meiru. Fyrst
byrjað er á því að lofa göngum og
brúm og vegum er aldrei að vita
hvað fæst þegar frammí sækir.
Kannski væri hægt að fá fullkom-
ið bókasafn í hverja sveit með
bókum á velflestum tungumálum
heims eins og tíðkaðist þar á önd-
verðri tuttugustu öldinni, láta
byggja upp atvinnuleikhús og
reisa tónlistarhús utan um þá stór-
merkilegu tónlistariðkun sem
þrífst í héraði þar sem menn fæð-
ast svona almennt með músík í
blóðinu. Væri ég Þingeyingur
myndi ég krefjast þess að fá mörg
óðul til að rækta þann anda sem
skáldin hafa bent á að hafi heimil-
isfesti í héraðinu.
Í ÁLSAMHENGINU segir téður
ráðherra stjórnvöld „náttúrulega“
fara með efnahagsmál í landinu,
þótt sú lítilsiglda kvenpersóna
sem þetta ritar sjái ekkert nátt-
úrulegt við það lögmál, heldur
staðfestingu á því að stjórnvöld
séu algerlega orðin ringluð þegar
muninn á náttúru og peningum
ber á góma. Það sem er náttúru-
legt í Þingeyjarsýslu er fegurðin
og mannauðurinn og hefði verið
þúsund vega, brúa og gangna
virði. Hvers konar stjórnvöld eru
það sem sjá það ekki?
Blessuð sértu
sveitin mín