Fréttablaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 32
[ ]
Húsgögn og handunnar gjafa-
vörur frá Indónesíu eru aðals-
merki verslunarinnar Bungu.
Á horni Laugavegar og Klappar-
stígs, þar sem verslunin Hygea
var áður, er nú komin ný búð. Hún
heitir Bunga - Handicraft gallery.
„Bunga þýðir blóm,“ segir
afgreiðslumaðurinn brosandi.
Hann heitir Einar Þór Ólason og
reynist vera eigandi verslunarinn-
ar, ásamt konu sinni Lucky R. Óla-
son. Þarna eru gjafavörur úr
kopar, messingi, áli, taui og fleiri
efnum. Að sögn Einars er ekkert
af verksmiðjuframleiddum
munum í búðinni heldur eru vör-
urnar handunnar. Vegleg húsgögn
úr tekki og mahóní fást líka í
Bungu og boðin er frí heimsend-
ing á þeim. „Okkur finnst sjálf-
sagt að láta flytja vörurnar heim
til fólks þegar um jafn þunga hluti
og húsgögn er að ræða,“ segir
Einar. Einungis er flutt inn eitt
stykki af hverju húsgagni þannig
að engin tvö eru eins. „Þegar við
förum út að ná í meira komum við
með eitthvað alveg nýtt,“ lofar
Einar Þór.
Bunga þýðir blóm
Koparljós á veggina kostar 11.500.
Þessi guli lampi er óneitanlega glæsilegur.
Hann kostar 36.000.
Koparvasar fást í ýmsu formi í Bungu og
kosta frá 8.500.
Salatsett úr áli kostar 5.800
Eigendur Bungu, þau Einar Þór Ólason og Lucky R. Ólason, fara sjálf út til Indónesíu að velja vörurnar í verslunina.
Lopapeysur
Stuttar, þröngar
með rennilás
Handprjónasamband Íslands
Skólavörðustíg 19 • sími: 552 1890
www.handknit.is
Full búð af
vorfatnaði
Laugaveg 56 • Sími 551 7600
Diza
Ingólfsstræti 6 • www.diza.is
opið 11-18 virka daga • 12-16 laugardaga
Diza ehf er lífsstílsverslun sem selur bútasaumsefni, prjónagarn
og fatnað fyrir konur sem vilja skapa sér og sínum huggulegt
umhverfi og fallegan fatnað til að njóta þess í.
Tilboðsverð á
bútasaumsbókum
föstudag og laugardag.
Síðustu afsláttardagar á Lopa!
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 5 SÍMI 551 5215
Vor
vörurnar
komnar
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Afgreiðslutími Á löngum laugardegi er opið lengur en vanalega í
miðbænum eins og nafnið gefur til kynna. Verslanirnar eru opnaðar ýmist
klukkan tíu eða ellefu að morgni og verður ekki lokað fyrr en fimm síðdegis.