Fréttablaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 24
3. mars 2006 FÖSTUDAGUR24
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.403 -1,75% Fjöldi viðskipta: 633
Velta: 4.506 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 55,30 -1,43% ... Alfesca
4,00 -2,44%... Atorka 6,05 -1,63% ... Bakkavör 52,00 -3,17% ...
Dagsbrún 6,53 -2,83% ... FL Group 26,00 -2,26% ... Flaga 3,85
+0,00% ... Íslandsbanki 20,10 -1,47% ... KB banki 921 -1,715%
... Kögun 66,50 +0,00% ... Landsbankinn 28,00 -1,75% ... Marel
68,30 -0,73% ... Mosaic Fashions 17,10 -1,16% ... Straumur-Burða-
rás 19,00 -1,55% ... Össur 110,50 -3,91%
MESTA HÆKKUN
HB Grandi +0,51%
MESTA LÆKKUN
Össur -3,91%
Bakkavör -3,17%
Dagsbrún -2,83%
VIÐSKIPTI Brú Venture Capital,
fjárfestingarfélag í eigu Straums
-Burðaráss fjárfestingabanka,
hefur selt 38 prósenta hlut sinn í
tölvuleikjafyrirtækinu CCP. Kaup-
andi er NP ehf., félag í eigu Novat-
ors, fjárfestingarfélags í eigu
Björgólfs Thors Björgólfssonar.
Björgólfur Thor á stóran hlut í
Straumi-Burðarási.
Söluverðið er ekki gefið upp en
Gísli Hjálmtýsson, framkvæmda-
stjóri Brúar, segir söluna í sam-
ræmi við þá stefnu að selja eignir
úr eldra eignasafni félagins, sem
er í raun tvískipt. Eldri hlutinn
var stofnaður upp úr Íslenska hug-
búnaðarsjóðnum, Talentu og fleir-
um, en svo er sjóðurinn Brú 2, sem
er í eigu Straums og lífeyrissjóða
og leggur áherslu á nýjar fjárfest-
ingar.
Aðalfundur CCP, sem bjó til
netleikinn EVE Online, verður
haldinn síðar í þessum mánuði og
má þá búast við mannaskiptum í
stjórn, að sögn Gísla, en eignar-
hlutur Brúar hefur tryggt félag-
inu tvo af fimm stjórnarmönnum.
„Við óskum nýjum eigendum
til hamingju með kaupin, enda
teljum við CCP eiga mikla mögu-
leika og bjarta framtíð,“ segir
Gísli og áréttar að tekist hafi að
tryggja rekstrarstöðu CCP bæði á
kostnaðarhliðinni, en einkum með
fjölgun áskrifenda, sem nú séu
yfir 100 þúsund talsins. - óká
38 prósent hlutafjár í fyrirtækinu sem framleiðir Eve Online skiptir um hendur:
Novator kaupir CCP af Brú
HILMAR V. PÉTURSSON Hilmar er fram-
kvæmdastjóri CCP, sem hyggur á landvinn-
inga á heimsvísu og horfir sérstaklega til
Kína í þeim efnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Lítil útgáfa ríkisvíxla
vinnur á móti vaxta-
hækkunum Seðlabank-
ans. Ríkissjóður á nóg af
peningum og Lánasýsla
ríkisins gefur því ekki út
víxla nema til að halda í
horfinu. Vextir ríkisvíxla
eru komnir undir vexti
á reikningi ríkissjóðs í
Seðlabankanum.
„Auðvitað er þetta mjög bagalegt
og truflar miðlunarferli peninga-
stefnunnar þegar ekki eru til þau
bréf sem vextir Seðlabankans
þurfa að miðlast í gegnum og
alvarlegt vandamál fyrir peninga-
stefnuna,“ segir Arnór Sighvats-
son, aðalhagfræðingur Seðlabanka
Íslands.
Í síðasta útboði ríkisvíxla, sem
fram fór í byrjun vikunnar lækk-
uðu vextir þeirra um 50 punkta.
Skortur á ríkispappírum hefur
valdið því að vextir þeirra fara
langt undir vexti á millibanka-
markaði og staðan er nú
þannig að vextir á ríkis-
víxlum eru komnir undir
vexti á reikningi ríkis-
sjóðs í Seðlabankanum.
„Það má hins vegar segja
að ríkið hafi ákveðnar skyld-
ur á þessu sviði og sjái til þess að
fljótandi markaður sé með þessi
bréf. Þá er ákveðið vandamál að
ríkisstjórnin skuli ekki hafa þörf
fyrir þessa útgáfu, en það gæti
verið þess virði að halda þessum
markaði í gangi. Útgáfan má ekki
eingöngu taka mið af þörfum rík-
issjóðs, heldur þarf líka að taka
mið af þörfum markaðarins,“ segir
hann og bætir við málið sé enn til
umræðu innanhúss í Seðlabankan-
um.
Þórður Geir Jónasson, forstjóri
Lánasýslu ríkisins, segir lánsfjár-
þörf ríkisins nálægt því enga og
því sé ekki þörf á útgáfu ríkis-
víxla. „Þetta er velgengnisvanda-
mál fyrir skuldabréfaútgáfu. Í ár
gefum við ekki út neinar nýjar
skuldir heldur höldum bara í horf-
inu og breytum samsetningunni
á lánasafninu þannig að við
styrkjum þessa tvo mark-
flokka ríkisbréfa. Til þess
færum við einhverja 10
milljarða króna úr ríkisvíxl-
um yfir í ríkisbréf, af skamm-
tímamarkaði á langtímamark-
að,“ segir Þórður og kveður þetta
skapa ákveðin vandamál fyrir
fjárfesta sem þurfa að hafa rík-
isvíxla í eignasafni sína, eins
og til dæmis verðbréfa-
sjóði. „Þarna er því hörð
samkeppni og í raun svo
hörð að kjörin á víxlunum
sem við erum nú að bjóða
eru þannig að vextir sem
við greiðum af þeim eru lægri
en vextir sem við fáum á reikn-
ingi ríkisins í Seðlabankanum.“
Þórður Geir segist ekki telja að
lágir vextir í útboði ríkisvíxla hafi
teljandi áhrif á peningastefnu
Seðlabankans. „Þetta er ekki mikið
magn, einhverjir fimm milljarðar.
Bankastofnanir og aðrir eiga þess
kost að kaupa innstæðubréf í
Seðlabankanum sem bera töluvert
hærri vexti en þetta. Fyrir bank-
ana sjálfa eru þessi bréf ekki í
neinni samkeppni við stýritæki
Seðlabankans. Þessi markaðs-
brenglun kemur meira til, að ég
tel, vegna verðbréfasjóðanna.“
Hann segir stöðuna í útgáfu ríkis-
víxla hafa verið rædda í nóvember
og desember síðastliðnum og
stefnan ákveðin fyrir árið. „Þá
stóð valið á milli þess að halda
skuldabréfamarkaði í sæmi-
legu gengi og styrkja mark-
flokka ríkisbréfa, eða
horfa frekar á skamm-
tímamarkaðinn,“ segir
hann og bætir við að niður-
staðan hafi verið sú að
skuldabréfamarkaðurinn
skipti meira máli. „Ríkisjóður er
bara í mjög góðri stöðu og þá verð-
ur að vega og meta hvort afla eigi
fjár sem fer svo bara að sofa í
Seðlabankanum.“ olikr@frettabladid.is
Ríkið truflar peninga-
stefnu Seðlabankans
Í SEÐLABANKANUM Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, svarar spurning-
um þegar síðast voru kynntar breytingar á stýrivöxtum meðan Davíð Oddsson seðlabanka-
stjóri horfir á. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Jón Þorsteinn Jónsson, einn af eig-
endum Saxhóls og stjórnarfor-
maður í SPV, vísar því algörlega á
bug að félagið hafi fjármagnað
kaup annarra aðila á stofnfjárhlut-
um í SPH eins og kemur fram í
gögnum sem Morgunblaðið hefur
undir höndum og birti á fimmtu-
daginn.
Í tilkynningu frá Fjármálaeft-
irlitinu til ríkislögreglustjóra eru
ábendingar um möguleg brot A.
Holding SA og Haga, dótturfélaga
Baugs, Byggs ehf., Saxhóls ehf. og
Íslensk-ameríska ehf. og beinist
rannsókn efnahagsbrotadeildar á
meintum ólöglegum viðskiptum
beinist meðal annars að því.
Saxhóll keypti tvo stofnfjár-
hluti í SPH í nóvember fyrir 180
milljónir króna sem samsvarar
rúmum 4,5 prósentum stofnfjár.
„Við greiðum fyrir þá á lögmanns-
stofu [Lögmanna Laugardal] og
ég fékk greiðslukvittun fyrir
kaupunum. Síðan átti að málið að
fara fyrir stjórn SPH til sam-
þykkis.“ Lögmannsstofan var
milliliður milli kaupanda og selj-
enda. Einhverjar tafir urðu á því
að ganga frá endanlegu framsali,
sem fór fyrir stjórn SPH, og telur
Jón að Fjármálaeftirlitið hafi ekki
viljað heimila frekari framsöl.
Fjármálaeftirlitið óskaði eftir
skýringum frá Saxhóli og fékk
greiðslukvittunina í hendur. „Við
áttum einungis viðskipti með
stofnbréf eins og gengur og gerist
á hverjum degi á Íslandi. Þetta er
bara fjárfesting, enda er Saxhóll
fjárfestingafélag.“ - eþa
Hafna ásökunum
um misferli í SPH
Eigendur Saxhóls vísa á bug ásökunum um að
félagið hafi staðið í fjármögnun á kaupum annarra
í SPH. Áttu einungis viðskipti með tvo hluti.
Vinsælt sem Ericsson
Hlutabréf í FlyMe, sænska lággjaldaflugfélaginu,
hafa hækkað um 300 prósent frá áramótum og
hafa verið svo vinsæl meðal fjárfesta að veltan
hefur verið álíka mikil og með hlutabréf í Ericsson.
Gríðarlegar hækkanir á hlutabréfaverði og umfangs-
mikið og flókið hlutafjárútboð hafa valdið mörgum
miklum heilabrotum, meðal annars hjá fjölmörgum
íslenskum fjárfestum og verðbréfamiðlurum. Þá var
hlutaféð tífaldað og fengu þeir, sem áttu forkaups-
rétt, að kaupa ný bréf á genginu þrír aurar sem var
verulegur afsláttur frá þáverandi markaðsgengi.
Margir sem keyptu sér hlutabréf í FlyMe á þessum
tíma gerðu sér ekki grein fyrir því að þátttökuréttur
í útboðinu var liðinn og keyptu því köttinn í sekkn-
um. Þeir sem seldu áttu hins vegar „kaupréttinn“
– seldu hátt og keyptu lágt!
Óttinn við breytingar
Gömlu hlutabréfin og þau nýju hafa ekki runnið
saman í
eitt en það
gerist á næstunni.
Þannig eru tvenns
konar viðskipti í gangi á sænska
Nýja-Mark- aðnum þótt um sömu bréfin
sé að ræða. Gömlu bréfin kosta 8 aura en nýju
hlutabréfin 6 aura. Þannig er hægt að kaupa nýju
bréfin á 25 prósenta lægra verði. Afslátturinn var
reyndar mun meiri í síðustu viku þegar nýju bréfin
seldust á 7 aura en þau gömlu á ellefu. Hlutabréfa-
sérfræðingur segir í viðtali við Dagens Industri að
óvissan við breytinguna þegar öll hlutabréf FlyMe
renna saman í eitt kunni að skýra þennan mark-
aðsbrest; fjárfestar átti sig ekki á því hvert gengi
bréfanna verði eftir samrunann.
Peningaskápurinn...
Magnús V. Snædal, sem starfaði
sem sölustjóri hjá Þekkingu, hefur
verið ráðinn nýr forstjóri Tækni-
vals og tekur við af Sigrúnu Guð-
jónsdóttur. „Þetta er mjög spenn-
andi tækifæri. Við höldum að
Tæknival eigi mikið inni og sjáum
fram á aukna veltu og sölu á lausn-
um fyrir fyrirtæki.“
Að sögn Stefáns Jóhannesson-
ar, stjórnarformanns Eignarhalds-
félagsins Byrs sem keypti Tækni-
val ásamt öðrum fjárfestum,
vænta nýir eigendur þess að fyrir-
tækið skili hagnaði á þessu ári.
Umtalsvert tap varð á rekstri
félagsins á síðasta ári til viðbótar
við tap fyrri ára. Stefán segir að
efnahagur félagsins verði styrkt-
ur, enda muni viðsnúningur kosta
peninga. Velta félagsins var um
1,1 milljarður á síðasta ári.
Áfram verður unnið að þeim
aðgerðum sem ráðist var í undir
stjórn fyrri eigenda. Félagið mun
einbeita sér að fyrirtækjamarkaði
og lausnum fyrir þau. Leigu-
samningur Tæknivals í Skeifunni
er laus og er í skoðun að flytja
höfuðstöðvar félagsins. - eþa
Tæknival ætti að
skila hagnaði í ár
Beinn eignarhlutur FL Group
ásamt framvirkum samningum er
kominn í 9,4 prósent af hlutafé
Finnair. FL Group hefur verið að
auka hlut sinn jafnt og þétt í
finnska flugfélaginu undanfarnar
vikur.
Næststærsti hluthafinn í
Finnair er Straumur með um ell-
efu prósenta hlut þannig að
íslensku fyrirtækin eiga nú um
fimmtung alls hlutafjár í finnska
flugfélaginu.
Finnska ríkið er eftir sem áður
stærsti eigandinn en hlutur þess
er um 58 prósent. - eþa
Fimmtungur í Finnair
STEFÁN JÓHANNESSON STJÓRNARFORMAÐUR OG MAGNÚS V. SNÆDAL NÝR FORSTJÓRI Nýir
eigendur og stjórnendur Tæknivals koma meðal annars frá Þekkingu.
MARKAÐSPUNKTAR
Hagnaður fasteignafélagsins Stoða
hf. nam rúmum 2 milljörðum króna
á síðasta ári. Þetta er 766 milljónum
króna minna en árið á undan.
Evrópski seðlabankinn hækkaði
stýrivexti á evrusvæðinu um 0,25
prósent í dag og standa þeir nú í
2,50 prósentum.
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch
Ratings segir að þremur stærstu
bönkum landsins hafi tekist á síðast-
liðnum þremur árum að bregðast
með betri hætti við sveiflum á
gengis- og vaxtamarkaði hér á landi.
Þá ítrekar matsfyrirtækið fyrra mat
sitt á lánshæfismati ríkissjóðs þar
sem horfur breyttust úr stöðugum í
neikvæðar.