Fréttablaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 66
3. mars 2006 FÖSTUDAGUR50
David Beckham sagði í gær að eitt-hvert yfirnáttúrulegt afl hefði leitt
hann í gegnum lífið og haft stór áhrif á
allar þær ákvarðanir
sem hann hefur tekið
á knattspyrnuferlin-
um. „Það er eitthvað
þarna sem fylgist með
mér og dæmir gjörðir
mínar. Ég trúi því að
einhver yfirnáttúrulegur kraftur búi í
öllum,“ sagði Beckham.
Christian Christianssen, danski sóknarmaðurinn í herbúðum Fylkis,
er handarbrotinn og verður frá æfingum
og keppni næstu 10 daga. Christianssen
er með brotna pípu sem þykir minni
háttar handarbrot.
Englandsmeistarar Chelsea leiða kapphlaupið um heitasta fenginn
fyrir næsta sumar, miðjumanninn
Michael Ballack. Þjóðverjinn verður
samningslaus í
sumar og mun
yfirgefa Bayern
München sem hann
kom til árið 2002 frá
Leverkusen. „Það er
ekki búið að skrifa
undir neitt en við
munum halda áfram að ræða við Chel-
sea. Það er mikill áhugi hjá báðum aðil-
um og Chelsea er líklegasti kosturinn,“
segir umboðsmaður leikmannsins.
Þó að flest bendi til þess að Sir Alex Ferguson og Roy Keane hafi skilið
í illu þá stöðvar það ekki Fergie frá því
að mæra gamla fyrirliðann sinn í bak og
fyrir og spá honum
miklum frama sem
knattspyrnustjóra.
„Hann er mjög
hvetjandi og ákveð-
inn karakter. Ég sé
margt af mér í Roy
og öfugt. Hann stóð sig frábærlega hjá
mér og er sá besti sem ég hef þjálfað,“
sagði Ferguson.
ÚR SPORTINU
KÖRFUBOLTI Stórstjarnan Allen
Iverson var ekki valin í 22 manna
æfingahóp bandaríska körfu-
boltalandsliðsins fyrir HM í körfu-
bolta sem fram fer næsta sumar.
15 munu síðan fara á HM en mótið
fer fram í Japan að þessu sinni.
„Ég var einfaldlega ekki val-
inn. Ég er hvorki bitur né svekkt-
ur. Í staðinn fæ ég að eyða meiri
tíma með fjölskyldunni í sumar
sem er frábært. Ég vona samt að
liðið næli í gullverðlaun,“ sagði
Iverson sem fór fyrir liði Banda-
ríkjamanna sem olli gríðarlegum
vonbrigðum á Ólympíuleikunum í
Aþenu. - hbg
Allen Iverson:
Komst ekki í
landsliðið
ALLEN IVERSON Spilar ekki með landsliðinu
á HM í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
Intersport-deild karla:
GRINDAVÍK-NJARÐVÍK 116-112
Stig Grindavíkur: Jeremiah Johnson 44, Þorleif-
ur Ólafsson 30, Páll Axel Vilbergsson 22, Nedsad
Biberovic, Davíð Hermannsson 6, Páll Kristinsson 3,
Björn Brynjólfsson 3, Helgi Jónas Guðfinsson 2.
Stig Njarðvíkur: Jeb Ivey 30, Brenton Birmingham
23, Jóhann Ólafsson 18, Friðrik Stefánsson 13,
Guðmundur Jónsson 12, Egill Jónasson 7, Halldór
Karlsson 6, Ragnar Ragnarsson 3.
SNÆFELL-KR 59-63
Stig Snæfells: Magni Hafsteinsson 21 (5 af 7 í
þriggja), Igor Belenski 15 (11 fráköst)
Stig KR: Pálmi Sigurgeirsson 18 (5 stolnir), Melvin
Scott 17 (10 frák., 7 stoðs.).
HÖTTUR-SKALLAGRÍMUR 87-98
Stig Hattar: Milojica Zekovic 23, Eugene Cristop-
her 21, Peter Gecelovsky 19(6 varin ), Loftur Þór
Einarsson 13, Viðar Örn Hafsteinsson 10.
Stig Skallagríms: Jovan Zdravevski 30, Dimitar
Karadzovski 30, Pétur Már Sigurðsson 16.
HAMAR/SELFOSS-ÞÓR 87-85
Stig Hamars/Selfoss: Clofton Cook 32, Friðrik
Hreinsson 12.
Stig Þórs: Helgi Margeirsson 23, Hrafn Jóhannes-
son 10.
KEFLAVÍK-FJÖLNIR 97-91
Ekki fengust upplýsingar um stigahæstu menn
áður en blaðið fór í prentun.
ÍR-HAUKAR 83-80
Ekki fengust upplýsingar um stigahæstu menn
áður en blaðið fór í prentun.
STAÐAN:
NJARÐVÍK 20 16 4 1763-1451 32
KEFLAVÍK 20 16 4 1816-1668 32
KR 20 14 6 1674-1556 28
GRINDAVÍK 20 13 7 1939-1732 26
SKALLAGR. 20 13 7 1779-1598 26
SNÆFELL 20 12 8 1669-1589 24
Intersport-deild kvenna:
HAUKAR-KR 102-51
Stig Hauka: Helena Sverrisdóttir 23, Pálína Gunn-
laugsdóttir 15, Sigrún Ámundadóttir 15.
Stig KR: Vanja Pericin 15.
LOGI MEÐ 43 STIG
Logi Gunnarsson var í miklu stuði og skoraði 43
stig fyrir lið sitt Bayeruth í þýsku 2. deildinni í
fyrrakvöld en þá sigraði liðið Breitengusbach 111-
105. Logi var langstigahæstur á vellinum.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar voru
sterkari í fyrri hálfleik og öllu
heppnari en Njarðvíkingar en
þeim gekk illa að láta skot sín rata
rétta leið. Grindvíkingar voru bar-
áttuglaðari en fyrsti leikhluti var
jafn og spennandi. Í öðrum leik-
hluta dró meira í sundur hjá liðun-
um þar sem Grindvíkingar tóku
yfirhöndina og voru þeir ávallt
skrefinu á undan.
Þjálfarar liðanna voru báðir
óhressir með dómarana á köflum
en spennustigið var hátt, innan
sem utan vallar. Þessir erkifjend-
ur börðust af miklum krafti og
ósjaldan hentu menn sér á eftir
boltanum sem skipti oft sköpum.
Áhorfendur tóku engan þátt í
leiknum fyrr en undir lok annars
leikhluta þegar Grindvíkingar
röðuðu niður körfunum en í honum
skoruðu þeir 36 stig gegn 22 stig-
um Njarðvíkinga.
Jeremiah Johnson fór fyrir
Grindvíkingum allan leikinn og
spilaði frábærlega. Auk þess að
skora 44 stig stal hann boltanum,
tók fráköst og fann samherja sína
hvað eftir annað. Njarðvíkingar
réðu ekkert við Bandaríkjamann-
inn sem lék við hvern sinn fingur
og var lykillinn að sigri Grindvík-
inga.
Njarðvíkingar komu ákveðnir
til leiks í síðari hálfleik en Grind-
víkingar gáfu ekkert eftir. Gest-
irnir löguðu stöðu sína með betri
varnarleik í þriðja leikhluta og
þeir minnkuðu muninn jafnt og
þétt. Lokamínúturnar voru æsi-
spennandi og Jeb Ivey jafnaði úr
þriggja stiga skoti þegar átta sek-
úndur oru eftir og tryggði Njarð-
víkingum framlengingu þar sem
spennan var í algleymingi.
Njarðvíkingar byrjuðu betur
og jafnt var á nánast öllum tölum
en Grindvíkingar höfðu þrem stig-
um yfir þegar hálf mínúta var
eftir. Njarðvíkingar gátu jafnað
en tvö þriggja stiga skot þeirra
geiguðu og Grindvíkingar tryggðu
sér sigurinn.
„Við vorum lélegir í venjuleg-
um leiktíma. Varnarleikurinn var
slakur og ég er alls ekki ánægður
með það. Það voru margir skrítnir
dómar í þessum leik og ég var sér-
staklega ósáttur í framlenging-
unni en heilt yfir voru þetta lík-
lega jafn mörg mistök á báða
bóga,“ sagði Einar Árni Jóhanns-
son, þjálfari Njarðvíkur, eftir leik-
inn.
„Þetta var rosalegur körfu-
boltaleikur sem bauð upp á allt
sem góður íþróttaviðburður hefur
upp á að bjóða. En ég er fyrst og
fremst gríðarlega stoltur af mínu
liði að stíga upp. Svona leikir gefa
körfuboltanum aukið gildi fyrir
áhorfendur og það er alltaf gaman
að vinna svona leiki, það er jafn
skemmtilegt og það er leiðinlegt
að tapa þeim,“ sagði Friðrik Ingi
Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur,
eftir leikinn. hjalti@frettabladid.is
Grindavík hafði betur í
rosalegum körfuboltaleik
Grindvíkingar unnu topplið Njarðvíkur í Iceland-Express deild karla í gærkvöld
en framlengingu þurfti til að knýja fram lokaúrslitin, 116-112.
FÓTBOLTI Framarar eru Reykja-
víkurmeistarar í knattspyrnu
eftir sannfærandi 2-0 sigur á
Víkingi í Egilshöllinni í gær-
kvöld. Sigur Fram var sann-
gjarn og eftir að hafa náð 2-0
forystu í fyrri hálfleik varðist
liðið fimlega í þeim síðari og
hélt hreinu.
Það var Þorbjörn Atli Sveins-
son sem skoraði fyrsta markið
af stuttu færi þegar skammt var
liðið af leiknum en Ingvar Óla-
son bætti við öðru markinu með
skoti beint úr aukaspyrnu í lok
fyrri hálfleiks. Fram, sem spilar
í 1. deildinni á næstu leiktíð, var
sterkari aðilinn í fyrri hálfleik
gegn úrvalsdeildarliðinu Vík-
ingi en dæmið snerist við í þeim
síðari þar sem þeir röndóttu
reyndu sitt besta til að minnka
muninn, án árangurs. Næstur
komst Grétar Sigfinnur Sigurðs-
son en skot hans hafnaði í stöng-
inni um miðbik hálfleiksins.
Úrslitin í Reykjavíkurmótinu í fótbolta réðust í gær:
Fram sigraði örugglega
REYKJAVÍKURMEISTARAR Gunnar Sigurðsson og Helgi Sigurðsson tóku glaðbeittir á
móti sigurlaununum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
JEB IVEY Var bestur Njarðvíkinga í gærkvöldi og skoraði 30 stig. Hér sést hann skora eina af
körfum sínum án þess að Páll Axel Vilbergsson komi vörnum við. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR