Fréttablaðið - 03.03.2006, Qupperneq 29
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Ómar Guðjónsson er ekki bara leikinn
á strengi gítarsins heldur er hann líka
liðtækur í eldhúsinu og býr þar oft til
eitthvað gómsætt.
„Ég hef gaman af að elda og hef prufað
ýmislegt í eldhúsinu en er ekki fyrir mjög
flókna rétti heldur læt meisturunum þá
eftir,“ segir Ómar, sem á til bæði lærðra og
leikra kokka að telja. Þekktastir eru líklega
móðurbræður hans, Brynjar Eymundsson í
Heitt og kalt og Óðinn Eymundsson hótel-
haldari á Höfn. Ómar segir Óskar bróður
sinn, saxófónleikara, líka hafa erft mat-
reiðslugenin. „Óskar er í allt öðrum klassa
en venjulegur mataráhugamaður eins og
ég,“ segir hann brosandi og bætir við með
ögn meira sjálfstrausti: „Ég hef þó smitast
að einhverju leyti af honum og hef mallað
eitt og annað í gegnum tíðina.“
Ómar hefur ekki alltaf mikinn tíma í
matreiðsluna og því eru einfaldir og fljót-
legir réttir í uppáhaldi enda er hann oft að
spila á kvöldin. Nú á sunnudagskvöldið
ætlar hann til dæmis að spila í poppmessu í
Vídalínskirkju í Garðabæ í tilefni æskulýðs-
dagsins þar sem gospeltengd tónlist mun
hljóma ásamt öðru. Ómar var æskulýðsfull-
trúi Garðasóknar í tvö ár og ætlar nú meðal
annars að leika undir hjá söngkonunni
Rannveigu Káradóttur sem hefur tekið við
því hlutverki af honum.
En fyrst ætlar hann að elda handa fjöl-
skyldunni sojakjúkling sem er bæði góður
og þægilegur í meðförum. Í hann notar hann
kjúklingabringur sem hann brúnar á pönnu
og raðar í eldfast mót, hrærir saman eina
dós af satay-sósu frá Thai Choi, eina dós af
jógúrt án bragðefna og 3-4 matskeiðar af
hnetusmjöri með hnetum og hellir yfir
kjúklinginn. Bakar þetta svo í ofninum í 15-
20 mínútur og ber fram með salati, hrís-
grjónum og brauði.
Eldar einfalda og
fljótlega rétti
Ómar Guðjónsson gítarleikari.
Gallerí Húsgögn að Dalvegi
er með allt að sjötíu prósenta
afslátt af vörum sínum um helg-
ina á lokadögum útsölunnar.
Duka Kringlunni er með tuttugu
prósenta afslátt af stálpottum.
Flúðasveppirnir eru nú komnir
í nýjar umbúðir. 250 gramma
sveppaöskjurnar er nú orðnar
svartar á lit í stað fyrir að vera
bláar. Var þetta gert svo neyt-
endur ættu auðveldara með að
greina milli íslenskra og erlendra
sveppa.
Kauphlaup í Smáralind um helg-
ina. Mikið af góðum tilboðum á
nýjum vörum.
ALLT HITT
[MATUR TILBOÐ]
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn
3. mars, 62. dagur ársins
2006
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 8.29 13.40 18.52
Akureyri 8.17 13.24 18.33
MANGÓ FYRIR
BLÓÐLAUSA
Mangó er ættaður
frá Asíu og er einn
vinsælasti suðræni
ávöxturinn. Hann
er ríkur af vítamínum,
steinefnum og járni.
MATUR 6
ÍSLENSK HÖNNUN Í
NÝRRI VERSLUN
Í dag verður opnuð verslunin KVK
þar sem íslensk föt og skart fylla
hillur og rekka. Fatahönnuðurnir
Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir og Íris
Eggertsdóttir eiga veg og vanda
af búðinni.
LANGUR LAUGARDAGUR 5
Njótum
náttúrunnar
Skoðið
ferðaáætlun
Útivistar á
www.utivist.is