Fréttablaðið - 03.03.2006, Page 44
3. mars 2006 FÖSTUDAGUR16
VISSIR ÞÚ ...
... að hleraköngulóin frá Kaliforníu
getur staðist kraft sem er allt að 38-
faldri þyngd hennar? Þetta jafngildir
því að manni tækist að halda dyrum
lokuðum þrátt fyrir að lítil þota þrýsti
á hurðina hinu megin frá.
... að lengsta skordýrið sem mælst
hefur er broddskordýr sem finnst í
frumskógum Borneó?
... að búkur broddskordýrsins er 328
millimetrar en séu fótleggirnir teknir
með í reikninginn mælist dýrið 546
millimetrar?
... að oft vantar fótleggi á brodd-
skordýrið þar sem lappirnar eiga
það til að rifna af þegar dýrið hefur
hamskipti?
... að lengd kakkalakka er að jafnaði
á bilinu 0,6 til 7,6 millimetrar?
... að lengd Megaloblatta longipenn-
is kakkalakkans er 97 millimetrar og
hann er 45 millimetrar á breidd?
... að Megaloblatta longipennis hefur
vængi og því getur þessi hlussa
flogið?
... að lirfa pólýfemusarfiðrildisins er
gráðugasta kvikindið í dýraríkinu?
... að lirfan étur því sem samsvarar
86.000-faldri fæðingarþyngd sinni
fyrstu 56 daga ævi sinnar?
... að í samanburði við lirfuna jafn-
gildir þetta því að fjórtán marka barn
fengi 273 tonn af næringu á sama
tímabili?
Signý Sæmundsdóttir ætti að vera flestum
kunn en hún hefur tekið þátt í mörgum
óperum og söngdagskrám hér á landi sem og
erlendis. Hún kennir einnig við Söngskólann í
Reykjavík og Nýja Tónlistarskólann.
Signý hefði ekkert á móti því að eyða heilli
helgi í París.
„Ég myndi bóka mig á eitthvert flott hótel
þar sem þægindi og góð þjónusta væru í
fyrirrúmi, skila töskunum af mér og hafa
mig til svo ég gæti byrjað að skoða mig um
og njóta borgarinnar, enda mikið að sjá og
upplifa í París. Þegar færi að kvölda myndi ég
finna mér ekta gott franskt veitingahús sem
byði upp á sælkeramat í hæsta gæðaflokki. Ég
er ekki viss um hvað ég myndi fá mér en það
væri eitthvað sem kitlaði bragðlaukana. Eftir
matinn væri svo tilvalið að fara í leikhús eða
óperu og myndi það fullkomna kvöldið.“
Eftir sýninguna færi Signý í göngutúr með-
fram bökkum Signu og þaðan upp á hótel
að sofa þar sem sunnudagurinn yrði tekinn
snemma.
„Á sunnudeginum kæmi ekkert annað
til greina en að fara í messu í Notre Dame.
Það er ótrúleg upplifun.“ Eftir messuna væri
komið að fluginu heim og Signý myndi mæta
endurnærð til vinnu á mánudeginum eftir
þessa frábæru helgi.
Að njóta Parísar til fulls
Signý Sæmundsdóttir
HVUNNDAGURINN
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 10
Um 150.000 lesendur
Leitin hefst hér!
– mest lesna fasteignablaðið
Þú finnur allar nýjustu fasteignirnar í Allt – fasteignum sem
fylgir frítt með Fréttablaðinu alla mánudaga.
Ekki missa af mest lesna fasteignablaðinu í vikubyrjun!
Allar eignir eru skráðar á visir.is svo þú getur fylgst með
fasteignamarkaðnum jafnóðum!