Fréttablaðið - 03.03.2006, Síða 48
3. mars 2006 FÖSTUDAGUR32
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í
smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
„Ég er að prófa að standa á
einni löpp lengi og standa á
haus og svona, bara svona til
að gá hvort allt fúnkeri eins
og venjulega,“ segir Þor-
valdur, sem heldur upp á
fertugsafmælið sitt í dag.
Fyrir honum er dagurinn í
dag mikilvægur og bendir
hann á að miðað við lífslíkur
Íslendinga standi hann í
miðjunni á lífinu akkúrat
um þessar mundir. „Þetta er
kjörinn tími til að setjast
aðeins niður og fara yfir
hvað hefur verið í gangi,“
segir Þorvaldur, sem segist
meðal annars velta fyrir sér
hvort honum hafi gengið
gott til í lífinu.
Hann neitar alfarið að
hræðsla sé í honum vegna
afmælisins, hann sé frekar
forvitinn að sjá hvað gerist.
„Mér líður andlega og lík-
amlega eins og mér hefur
alltaf liðið. Ef eitthvað er þá
er ég töluvert betur á mig
kominn en þegar ég var þrí-
tugur. Maður er að spá í hve-
nær og hvort finnur maður
eitthvað svona: Heyrðu,
núna er ég byrjaður að vera
hinum megin.“ Þorvaldur
segist að minnsta kosti ætla
að gera heiðarlega tilraun til
að sjá á sér breytingarnar í
dag. „Ég ætla að prófa
að mæla mig allan og athuga
hvort ég finni það.“
Prófanirnar fara þó ekki
fram á heimili Þorvaldar, því
hann eyðir afmælinu í sól-
inni á Kanaríeyjum. „Ætli ég
sé ekki á flótta undan sjálf-
um mér, eða að minnsta kosti
einhverju, fyrst ég get ekki
verið heima,“ segir hann
hlæjandi. Aðspurður segist
hann ekki vera mikið afmæl-
isbarn í sér, að minnsta kosti
hafi hann aldrei haldið stór-
veislu heldur frekar valið að
gera vel við sig og sína nán-
ustu með ferðalögum eða
bústaðardvöl. Í ár bregður
hann því ekki frá reglunni en
bætir við að vegna flutninga
væri veisla í dag hvort eð er
úti úr myndinni. Þorvaldur
segist þó vel geta hugsað sér
að halda upp á tímamótin
með kollegum seinna í mán-
uðinum og jafnvel vígja nýja
húsnæðið í leiðinni. „Þá veit
ég líka aðeins hvernig þetta
er,“ bætir hann svo við og
hlær.
ÞORVALDUR BJARNI ÞORVALDSSON: FERTUGUR Í DAG
Mælingar í miðju lífsins
ÞORVALDUR BJARNI ÞORVALDSSON TÓNLISTARMAÐUR
Á þessum degi árið 1875 var
óperan Carmen eftir Georges
Bizet frumsýnd fyrir fullu húsi
í París. Þótt óperan sé ein sú
vinsælasta í heiminum í dag
voru áhorfendur sammála um
að óperan hefði verið hörmuleg
í flesta staði. Sagt var að allir Par-
ísarbúar sem eitthvað vildu hafa
að segja um almenningsálitið
hefðu verið viðstaddir sýninguna
í Comique óperunni og það
hefði verið samdóma álit þeirra
að Bizet hefði alvarlega stigið út
af sporinu með óperunni nýju.
Hún þótti allt of nútímaleg og
algjörlega siðlaus.
Söguþráðinn í óperuna sótti
Bizet í samnefnda smásögu eftir
Prosper Mérimée. Hún gerist í
Andalúsíuhéraði á Spáni og fjall-
ar um sígaunastúlkuna Carmen
og ástarraunir hennar.
Það var ekki fyrr en óperan
var frumsýnd í Englandi þremur
árum seinna sem vinsældir
hennar tóku að rísa. Því miður
var það of seint fyrir Bizet því
hann lést einungis þremur mán-
uðum eftir frumsýninguna og
fékk því aldrei að sjá frægðarsól
Carmen rísa.
Eins og flestir vita gefst
íslensku áhugafólki kostur á að
sjá þessa sögufrægu sýningu í
Borgarleikhúsinu.
ÞETTA GERÐIST > 3. MARS 1875
Carmen stígur á stokk í fyrsta sinn
ÁSGERÐUR JÚNÍUSDÓTTIR LEIKUR Í
CARMEN
MERKISATBURÐIR
1879 Fyrsta konan, Belva Ann
Bennett Lockwood, kemur
fram fyrir hæstarétti Banda-
ríkjanna.
1974 Þota frá flugvélaginu
Turkish Airlines brotlendir
nálægt París og allir 345
farþegar hennar látast.
1984 Kristján Harðarson slær
27 ára gamalt Íslandsmet í
langstökki og stekkur 7,79
metra.
1984 Kvikmyndin Atómstöðin er
frumsýnd. Myndin er byggð
á sögu Halldórs Laxness
og leikstýrt af Þorsteini
Jónssyni.
1991 Lettland og Eistland ganga
til atkvæða um sjálfstæði
frá Sóvíetríkjunum.
1997 Björk Guðmundsdóttir
tekur við tónlistarverðlaun-
um Norðurlandaráðs í Osló.
ALEXANDER GRAHAM BELL (1849-1922)
FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Þegar dyr lokast opnast aðrar; en
við horfum oft svo lengi og með svo
mikilli eftirsjá á lokuðu dyrnar að við
sjáum ekki þær sem eru okkur
opnar.“
ALEXANDER GRAHAM BELL KOMST Í SÖGUBÆKURNAR ÞEGAR
HANN FÆRÐI OKKUR EINA MESTU UPFINNINGU ALLRA TÍMA:
SÍMTÆKIÐ.
ANDLÁT
Héðinn Emilsson, Bröndukvísl
22, Reykjavík, lést á heimili sínu
miðvikudaginn 1. mars.
Kristín Jóhannesdóttir, Þórsgötu
12, Reykjavík, andaðist þriðjudag-
inn 28. febrúar.
Hjördís Jónsdóttir Rasmus, áður
til heimilis í Furugerði 1, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógar-
bæ sunnudaginn 26. febrúar.
JARÐARFARIR
13.00 Halla Margrét Ásgeirs-
dóttir, Hrísmóum 13,
Garðabæ, verður jarðsungin
frá Vídalínskirkju í Garðabæ.
13.00 Kristmundur Dalmann
Jóhannesson, Skipholti 46,
Reykjavík, verður jarðsung-
inn frá Háteigskirkju.
13.00 Sólveig Hjálmarsdóttir,
Þúfubarði 13, Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafn-
arfjarðarkirkju.
13.00 Sigurður Trausti Kjartans-
son iðntæknifræðingur, til
heimilis í Kaupmannahöfn,
áður Hjarðarhaga 44,
Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík.
13.30 Þráinn Jónsson, Ekrusíðu
9, Akureyri, verður jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju.
14.00 Arngrímur Vilhjálmsson
frá Dalatanga, Blikabraut 11,
Keflavík, verður jarðsunginn
frá Keflavíkurkirkju.
15.00 Kristbjörg Pétursdóttir
fyrrverandi kennari, Holta-
gerði 84, Kópavogi, verður
jarðsungin frá Kópavogs-
kirkju.
15.00 Óli Viktorsson (Ole
Willesen) garðyrkjumaður,
Æsufelli 4, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju.
15.00 Gróa Bjarney Helgadóttir,
Skúlagötu 20, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Laug-
arneskirkju.
Ráðstefna um stöðu barna í
íslensku samfélagi verður
haldin í dag á Grand hótel í
Reykjavík. Hún ber yfir-
skriftina Hve glöð er vor
æska? og er samstarfsverk-
efni Garðabæjar, Mosfells-
bæjar, Reykjanesbæjar, Sel-
tjarnarness, Heimilis og
skóla, menntamálaráðuneyt-
isins og Íslandsbanka.
Fjölmargir þjóðþekktir
einstaklingar stíga í pontu
og ræða um málefni sem
tengjast börnum. Bak-
grunnur þeirra er ólíkur og
erindin eftir því, en meðal
þeirra sem taka til máls eru
rithöfundar, menntafólk og
einstaklingar úr atvinnulíf-
inu. Meðal annars heldur
Rannveig Rist, forstjóri
Alcan á Íslandi, erindi sem
kallast Staða barnafjöl-
skyldunnar í dag og Guðrún
Helgadóttir ræðir um barn-
ið og bernskuna í sögulegu
samhengi.
Ráðstefnan hefst klukk-
an hálf níu í dag og stendur
til klukkan eitt.
Ráðstefnustjóri er Jón-
mundur Guðmarsson, bæj-
arstjóri á Seltjarnarnesi, en
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
í Reykjanesbæ, stjórnar
pallborðsumræðum. Frek-
ari upplýsingar um dagskrá
og skráningu má finna á
heimasíðunni congress.is.
Ræða um málefni ungmennaInnilegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
Svavars Sigurðar Sæbjörnssonar
Miðnestorgi 3, Sandgerði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Garðvangs Garði fyrir
góða umönnun, Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg Svala Guðnadóttir
Sesselja Svavarsdóttir Grétar Sigurbjörnsson
Sigurgeir Svavarsson Soffía Gunnþórsdóttir
Fjóla Svavarsdóttir Torfi Gunnþórsson
Sæbjörn Ágúst Svavarsson Bryndís Guðrún Kristjánsdóttir
og barnabörn.
Lilja
Sigurgeirsdóttir
Sólgötu 2, Ísafirði, er sextug
í dag, 3. mars. Af því tilefni
býður hún vinum og vanda-
mönnum að samgleðjast sér
í sal Oddfellow á Ísafirði
laugardaginn 4. mars kl. 15.
Afmæli
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
AFMÆLI
Ólafur Darri Ólafs-
son leikari er 33 ára.
Ragna Sara Jóns-
dóttir fjölmiðlakona
er 33 ára.
Atli Eðvaldsson er
49 ára.