Fréttablaðið - 27.03.2006, Blaðsíða 4
4 27. mars 2006 MÁNUDAGUR
www.expressferdir.is
Express Fer›ir, Grímsbæ,
Efstalandi 26, sími 5 900 100
Nánar á www.expressferdir.is
Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
DAVID BECKHAM
Í LONDON
David Beckham stofnaði nýverið
fótboltaskóla í sínu nafni þar sem
strákum og stelpum á aldrinum
13-15 ára gefst tækifæri til þess
að æfa fótbolta við bestu
aðstæður undir leiðsögn nokkurra
af reyndustu þjálfurum yngri flokka
á Englandi.
Flug og skattar, íslensk
fararstjórn, allar rútuferðir, skólinn
sjálfur, sokkar, stuttbuxur, bolur,
fótboltaskór og íþróttagalli, allt merkt
David Beckham fótboltaskólanum,
ásamt öllu fæði. Hægt er að vera í 3
daga eða 5 daga í skólanum.
FÓTBOLTASKÓLI
79.900 kr.
99.900 kr.
INNIFALI‹:
VERÐ:
3 dagar, brottför 26. júlí
5 dagar, brottför 30. júlí
Bandaríkjadalur 73,3 73,64
Sterlingspund 127,01 127,63
Evra 87,7 88,2
Dönsk króna 11,754 11,822
Norsk króna 11,005 11,069
Sænsk króna 9,359 9,413
Japanskt jen 0,62 0,6236
SDR 105,12 105,74
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 24.3.2006
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
Gengisvísitala krónunnar
122,9995
SKOÐANAKÖNNUN Samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins
nefna flestir Reykvíkingar nafn
Vilhjálms Þ. Viljálmssonar, spurð-
ir hvern þeir vilji sjá sem næsta
borgarstjóra. 40,5 prósent þeirra
sem taka afstöðu segjast nú vilja
að Vilhjálmur verði borgarstjóri
en 37,9 prósent nefndu nafn hans í
síðustu könnun blaðsins sem gerð
var 21. janúar. Fylgi Vilhjálms
hefur því aukist um 2,6 prósentu-
stig. Heldur fleiri karlmenn vilja
að Vilhjálmur verði borgarstjóri
en konur, eða 47,8 prósent karla og
31,6 prósent kvenna.
Líkt og í könnun blaðsins í jan-
úar nefna nú næstflestir nafn
Dags B. Eggertssonar. Nú segjast
36,4 prósent vilja fá Dag sem
næsta borgarstjóra en í síðustu
könnun voru það 21 prósent. Fylgi
Dags hefur því aukist um 15,4
prósentustig, en prófkjöri Sam-
fylkingar var ekki lokið þegar
síðasta könnun var framkvæmd.
Líkt og spáð hafði verið þegar
könnun blaðsins var birt í janúar,
fer megin þungi stuðnings sem
áður var við Steinunni Valdísi og
Stefán Jón til Dags, sem efsta
mann á lista Samfylkingar. Fleiri
konur vilja að Dagur en Vilhjálm-
ur verði næsti borgarstjóri. 41,9
prósent kvenna nefndu Dag, en
31,7 prósent karla.
Mikill munur er á efstu tveim
mönnum og þeim sem koma þar á
eftir. Í þriðja sæti er Stefán Jón
Hafstein, sem hefur 4,7 prósenta
fylgi nú, en 10 prósent nefndu
nafn hans í síðustu könnun. Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir, núver-
andi borgarstjóri, er í fjórða sæti
og nefna 3,8 prósent nafn hennar.
Í fimmta sæti er Gísli Marteinn
Baldursson og nefna 3,5 prósent
nafn hans. Í sjötta sæti er svo efsti
maður Framsóknarflokks, en 3,2
prósent nefna nafn Björns Inga
Hrafnssonar.
Ef einungis er litið til þeirra
fimm sem oftast eru nefndir, eru
fulltrúar Sjálfstæðisflokks nefnd-
ir í 44 prósentum tilvika, en full-
trúar Samfylkingar nefnd í 44,9
prósentum tilvika.
Ef reiknaður er stuðningur við
hvern flokk vilja tæp 47 prósent
að einhver flokksbundin samfylk-
ingarmanneskja verði næsti borg-
arstjóri. Tæp 46 prósent nefna ein-
hvern úr hópi sjálfstæðismanna.
Þetta er mjög svipað hlutfall og í
síðustu könnun blaðsins.
Rúm þrjú prósent nefna nafn
framsóknarmanns. Rúm tvö pró-
sent nefna einhvern úr hópi Vinstri
grænna og tæpt prósent vill fá
einhvern úr Frjálslynda flokkn-
um. Tæpt eitt og hálft prósent
nefna einhvern sem ekki starfar
fyrir stjórnmálaflokk.
Hringt var í 600 Reykvíkinga
laugardaginn 25. mars og skiptust
svarendur jafnt milli kynja. Spurt
var „Hver vilt þú að verði næsti
borgarstjóri í Reykjavík?“ 56,8
prósent tóku afstöðu til spurning-
arinnar, aðeins fleiri en í síðustu
könnun þegar 51,5 prósent tóku
afstöðu.
svanborg@frettabladid.is
Flestir Reykvíkingar vilja
Vilhjálm Þ. sem borgarstjóra
Flestir Reykvíkingar nefna Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, oddvita Sjálfstæðisflokks, þegar spurt er hvern þeir
vilji sjá sem næsta borgarstjóra. Næstflestir nefna Dag B. Eggertsson, oddvita Samfylkingar. Tæplega sex
prósent nefna nafn einhvers sem starfar í Framsóknarflokknum eða Frjálslynda flokknum.
ÞESSI VORU LÍKA NEFND
Björn Ingi Hrafnsson
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Davíð Oddsson
Svandís Svavarsdóttir
Hanna Birna Kristjánsdóttir
Össur Skarphéðinsson
Steingrímur J. Sigfússon
Þórólfur Árnason
Guðrún Ásmundsdóttir
Sjón
Ögmundur Jónasson
Ólafur F. Magnússon
Steinunn
Valdís
Óskarsdóttir
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Dagur B.
Eggertsson
Stefán Jón
Hafstein
Gísli Marteinn
Baldursson
HVER VILT ÞÚ AÐ VERÐI NÆSTI BORGARSTJÓRI?
18
,0
%
37
,9
%
40
,5
%
4,
3%
21
,0
%
36
,4
%
20
,8
%
10
,0
%
4,
7%
10
,9
%
13
,9
%
3,
8
%
23
,9
%
5,
2%
3,
5%
Könnun 29. ágúst 2005
Könnun 21. janúar 2006
Könnun 25. mars 2006
Peningum stolið Brotist var inn í
Sölufélag A-Húnvetninga á Blönduósi í
fyrrinótt. Peningum var stolið og rúða
brotin. Enginn liggur undir grun og er
málið í rannsókn.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SVEITARSTJÓRNARMÁL Börnum undir
18 mánaða verður tryggð leik-
skólavist ef Sjálfstæðisflokkurinn
í Hafnarfirði nær forystu í næstu
bæjarstjórnarkosningum. Þetta
var meðal þess sem kom fram á
kynningarfundi flokksins í gær.
Af öðrum kosningaloforð-
um flokksins má nefna að nýtt
hjúkrunarheimili verður byggt
á Völlum, miðstöð öldrunarþjón-
ustu komið á fót á Sólvangi og
kvikmyndahús og skautahöll
byggð. Enn fremur verði félags-
leg heimaþjónusta stórefld og
átak gert í samgöngumálum í og
við Hafnarfjörð.
Fyrsta sæti listans skipar Har-
aldur Þór Ólason framkvæmda-
stjóri og bæjarfulltrúi. Í öðru
sæti situr Rósa Guðbjartsdóttir
framkvæmdastjóri og Almar
Grímsson varabæjarfulltrúi í því
þriðja. - mþþ
Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði:
Kvikmyndahús
aftur í bæinn
STEFNUMÁLIN KYNNT Almar Grímsson, Har-
aldur Þór Ólason og Rósa Guðbjartsdóttir
skipa efstu sæti listans. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VIÐSKIPTI Baugur Group heldur
áfram að auka hlut sinn í bresku
verslunarkeðjunni Woolworths og
hefur nú eignast tíu prósent hluta-
fjár. Markaðsvirði hlutarins er um
sjö milljarðar króna.
Woolworths birtir uppgjör á
næstu dögum og er því spáð að
félagið skili 50-60 milljóna punda
hagnaði fyrir síðasta ár.
Sérfræðingar á breskum mark-
aði telja ekki ólíklegt að Baugur
auki við hlut sinn á næstunni.
Áhugi Íslendinga á Woolworths
takmarkast ekki bara við Baug því
KB banki hefur keypt nokkur pró-
sent fyrir sína viðskiptavini.
- eþa
Umsvifamiklir í Woolworths:
Baugur bætir
við hlut sinn
LOS ANGELES, AP Meira en hálf millj-
ón manna tók þátt í mótmæla-
göngu í Los Angeles á laugardag-
inn til þess að krefjast þess að
innflytjendur fái uppreisn æru.
Þetta mun vera ein stærsta mót-
mælasamkoma í Bandaríkjunum á
síðustu áratugum.
Fólkið krafðist þess að þingið í
Washington falli frá áformum um
að herða refsingar við ólöglegri
dvöl í landinu, refsa atvinnurek-
endum sem ráða ólöglega innflytj-
endur, og reisa rammgirta múra
meðfram landamærum Banda-
ríkjanna og Mexíkó.
Fjölmennir mótmælafundir
hafa verið haldnir í fleiri borgum
Bandaríkjanna á síðustu dögum. Í
Denver tóku meira en 50 þúsund
manns þátt í mótmælafundi á
laugardaginn, en lögreglan hafði
ekki reiknað með nema fáeinum
þúsundum manna. Talið er að um
20 þúsund manns hafi tekið þátt í
mótmælum í Phoenix á föstudag
og meira en 10 þúsund í Mil-
waukee á fimmtudag.
„Við byggjum skólana ykkar.
Við eldum matinn ykkar,“ sagði
rapparinn Jorge Ruiz eftir að hann
kom fram á útifundi í Dallas þar
sem 1.500 manns mættu. „Við
erum hreyfiafl þessarar þjóðar, en
fólk sér okkur ekki. Svartir og
hvítir, þeir fengu sína byltingu.
Þeir áttu sinn Marin Luther King.
Nú er okkar tími kominn.“ - gb
HÁLF MILLJÓN Í MIÐBORGINNI Gífurlegur
fjöldi innflytjenda og fólks sem styður mál-
stað þeirra mótmælir áformum Bandaríkja-
þings um að herða refsingu við brotum á
innflytjendalöggjöf. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ein fjölmennasta mótmælaganga Bandaríkjanna síðustu áratugina:
Innflytjendur vilja réttlæti
Þau mistök urðu við vinnslu Kjörkassans
í Fréttablaðinu í gær að niðurstöðum var
víxlað. Kjörkassinn er endurbirtur í dag.
LEIÐRÉTTING