Fréttablaðið - 27.03.2006, Blaðsíða 73
MÁNUDAGUR 27. mars 2006 29
FÓTBOLTI Chelsea segir að ekkert
sé hæft í þeim fréttum sem birtust
í nokkrum ensku götublaðana í
gær sem segja að Sven-Göran
Eriksson muni taka við stjórn liðs-
ins á næsta tímabili. Sagt var að
Eriksson, sem Chelsea vildi fá til
sín áður en Mourinho var ráðinn
fyrir tveimur árum, væri að leita
að félagslið til að stjórna og hefði
lítinn áhuga á því að taka við lands-
liði. Og þar sem Eriksson er lík-
legur til að geta valið úr tilboðum
eftir HM þyrfti Chelsea hugsan-
lega að fórna Mourinho til að
missa ekki af þjónustu Svíans.
Chelsea var ekki lengi að bregð-
ast við þessum fregnum og sendi
frá sér harðorða yfirlýsingu strax
um hádegisbilið þar sem öllu var
vísað á bug. Því var haldið fram að
tilgangur þessara frétta væri
aðeins til að koma höggi á félagið
og skapa óreiðu hjá liði sem hefur
tekið alla spennu úr ensku úrvals-
deildinni vegna yfirburða sinna.
„Þetta er í síðasta sinn sem
Chelsea mun svara fyrir svona
fréttir en rétt er að ítreka einu
sinni enn að Chelsea og Jose Mour-
inho eru rétt að byrja í samstarfi
sem báðir aðilar vonast til að end-
ist í mörg ár. Fréttir sem segja
annað eru einfaldlega rangar,“ er
meðal þess sem segir í yfirlýsingu
félagsins. - vig
Forráðamenn Chelsea eru æfir vegna frétta sem birtust í enskum blöðum í gær:
Eriksson mun ekki taka við Chelsea
STJÓRARNIR Mourinho er ekki að hætta hjá
Chelsea, þrátt fyrir að bresku blöðin hafi
haldið því fram í gær.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Varnarmenn Bröndby hindruðu Hörð Sveinsson í að skora fyrir Silkeborg
í leik liðanna í dönsku úrvalsdeildinni
í gær. Bröndby sigraði 3-1 og komst
á topp deildarinnar. Bæði Hörður og
Bjarni Ólafur Eiríksson léku allan leikinn
og fékk Bjarni að líta gula spjaldið.
Guðmundur Stephensen úr Víkingi og Kristín Hjálmarsdóttir úr KR
urðu á laugardag Grand-Prix meistarar
ársins þegar þau báru sigur úr býtum á
lokamóti tímabilsins. Guðmundur lagði
bróður sinn Matthías í úrslitaviðureign-
inni í þetta sinn, 4-0, en Kristín marði
stöllu sína frá KR, Guðrúnu Björnsdóttur,
4-3.
Hornamaðurinn Einar Örn Jónsson lék á ný með liði sínu Torrevieja í
spænsku úrvalsdeildinni í handbolta um
helgina þagar það tapaði fyrir Algeciras
á útivelli, 28-27. Einar Örn hefur verið
frá vegna meiðsla í hné og náði ekki
að skora mark á þeim stutta tíma sem
hann kom við sögu í leiknum. Barcelona
endurheimti toppsæti deildarinnar með
öruggum sigri á Altea, 32-23.
Jermain Defoe, sóknarmaðurinn knái hjá Tottenham, segist ekki vera í þeim
hugleiðingum að fara fram á sölu frá
félaginu, en hann hefur verið sterklega
orðaður við nokkur
lið í Englandi á síð-
ustu dögum. Defoe
hefur lítið fengið
að spila að undan-
förnu en þrátt fyrir
það segir hann að
hjarta sitt sé hjá
Tottenham. „Það
er auðvitað erfitt
þegar maður fær ekki að spila en þegar
ég spila þá elska ég það. Ég skil ekki af
hverju ég ætti að fara. Liðið er á mikilli
uppleið og gæti komist í Meistaradeild-
ina á næsta ári sem er draumur hvers
knattspyrnumanns,“ segir Defoe.
Jakob Sigurðarson skoraði sjö stig fyrir lið sitt BG Leverkusen sem sigraði
Bonn á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni
í körfubolta á laugardagskvöld, 82-78.
Þá skoraði Logi Gunnarsson 13 stig fyrir
Bayreauth sem bar sigurorð af Lich, 89-
77, í 2. deild syðri í Þýskalandi.
Rógvi Jacobsen var í miklu stuði og skoraði þrennu fyrir KR þegar það
lagði Þór að velli í deildabikarnum um
helgina. Leikurinn
endaði 4-0 fyrir KR
og það var Dalibor
Pauletic sem komst
einnig á blað hjá KR.
Þá gerðu Breiðablik
og Grindavík 1-1 jafn-
tefli í sömu keppni
á laugardag þar sem Ragnar Heimir
Gunnarsson skoraði fyrir Breiðablik en
Jóhann Þórhallsson fyrir Grindavík.
Forráðamenn Newcastle neituðu því í gær að félagið hefði náð samkomu-
lagi við Martin O´Neill um að taka við
liðinu á næstu leiktíð en News of the
World greindi frá því að skoski þjálfarinn
myndi taka við liðinu. „Algjört bull,”
sagði í yfirlýsingu frá Newcastle.
ÚR SPORTINU
Iceland Express-deild karla:
NJARÐVÍK - KR 101-65
Stig Njarðvíkur: Jeb Ivey 26 (9 stoðs.), Friðrik Stef-
ánsson 15 (11 frák.), Jóhann Árni Ólafsson 15 (7
frák.), Kristján Sigurðsson 14, Brenton Birming-
ham 9, Egill Jónasson 8, Halldór Karlsson 5, Elías
Kristjánsson 3, Ragnar Ragnarsson 2, Guðmundur
Jónsson 2. Örvar Kristjánsson 2.
Stig KR: Pálmi Sigurgeirsson 19, Fannar Ólafsson
13, Níels Dungal 10, Melvin Scott 8, Brynjar Þór
Björnsson 5, Skarphéðinn Ingason 4, Eldur Ólafs-
son 3, Steinar Kaldal 2, Ljubodrag Bogovac 1.
Njarðvík leiðir einvígið, 1-0.
DHL-deild karla:
VÍK/FJÖ - HK 27-32
Leik Hauka og ÍR var ekki lokið þegar Fréttablaðið
fór í prentun í gærkvöldi.
Meistaradeildin í handbolta:
CIUDAD REAL - FLENSBURG 31-22
Ólafur Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir Ciudad.
F. VESZPRÉM - PORTLAND SAN ANT. 29-27
EFH-keppnin í handbolta:
CREITÉL - GÖPPINGEN 30-26
Bjarni Fritzson skoraði 10/4 mörk fyrir Creitél.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS