Fréttablaðið - 27.03.2006, Blaðsíða 63
MÁNUDAGUR 27. mars 2006 19
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
M
I
31
83
5
0
3/
20
06
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is
Hvers vegna
gerist alltaf allt,
allt í einu?
Líf- og sjúkdómatrygging TM
Dæmi um hvað tryggingarnar bæta:
// Sjúkdómatrygging greiðir bætur þegar hinn tryggði
greinist með tiltekinn sjúkdóm eða þarf að gangast
undir aðgerð. Bætur eru greiddar út í formi eingreiðslu.
Dæmi um sjúkdóma sem falla undir trygginguna:
Hjartaáfall – kransæðaskurðaðgerð – krabbamein
hjartalokuaðgerð - skurðaðgerð á meginslagæð/ósæð
heilaáfall - góðkynja heilaæxli – MS - MND - meiriháttar
líffæraflutningar – nýrnabilun – alzheimersjúkdómur –
parkinsonssjúkdómur - alvarleg brunasár – útlimamissir
– blinda.
// Líftrygging greiðir rétthöfum bætur við fráfall þess sem
tryggður er, hvort sem það er af völdum sjúkdóma eða
slysa. Hinn vátryggði ákveður sjálfur hverjir eru rétthafar
bóta og eru þeir tilgreindir á vátryggingarskírteini.
Bætur eru greiddar út í formi eingreiðslu og eru skatt-
frjálsar. Líftrygging gildir til 70 ára aldurs hins vátryggða.
Við sumum spurningum fást bara engin svör.
Það er ekki nema einn stafur sem skilur að gæfu og ógæfu. Þannig er það líka oft í lífinu.
Þú getur minnkað áfallið með því að tryggja þig hjá tryggingafélagi sem gefur þér skýr
svör og leggur áherslu á hraðvirkan frágang tjónamála.
Það er því miður ekki hægt að sjá fyrir óorðna hluti. Það hvetur alla sem hafa fyrir öðrum
að sjá og hafa tekist á hendur fjárhagslegar skuldbindingar, að gera ráðstafanir gagnvart
hinu óvænta og tryggja fjárhagslegt öryggi sitt og sinna.
Líf- og sjúkdómatrygging TM er jafnt fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Tryggingaráðgjafar
TM hjálpa þér að meta tryggingaþörfina og velja saman þá þætti sem reynslan sýnir að
gagnast best í hverju tilfelli fyrir sig.
Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á.
Hringdu í síma 515 2000 eða farðu á www.tryggingamidstodin.is og fáðu skýr svör.
S: 552 5070
við JL-Húsið
Þar sem fiskurinn stoppar stutt
Ný Línu Ýsa
Stórlúða-Lax
Ýsa í Sósu
Á aðalfundi Sparisjóðs Svarfdæla
á dögunum úthlutaði sjóðurinn
styrkjum að upphæð níu milljóna
til einstaklinga og félaga í byggð-
arlaginu. 4,7 milljónum var úthlut-
að úr menningarsjóði sparisjóðs-
ins en hann hefur verið starfandi
frá árinu 1984 þegar Sparisjóður
Svarfdæla hélt upp á hundrað ára
afmæli sitt. Hæsta framlagið að
þessu sinni var ein milljón króna
sem nota á til endurbyggingar á
Syðstabæjarhúsinu í Hrísey sem
hýsa á safn um sögu hákarlaveiða
og Hákarla-Jörundar.
Einnig gaf Sparisjóðurinn
Skíðafélagi Dalvíkur tvær snjó-
byssur en þeim er ætlað að efla
snjóframleiðslu í Böggvisstaða-
fjalli. Andvirði byssanna er um 4,3
milljónir og hafa þær þegar verið
teknar í notkun.
Sparisjóður gefur
snjóbyssur
STYRKÞEGAR SPARISJÓÐS SVARFDÆLA
DANSINN DUNAR Í TAPEI Martha Graham Dance Company æfir í þjóðleikhúsi Taívana en
danshópurinn er einn sá elsti og frægasti í heimi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1971 Mariah Carey
söngkona.
1963 Quentin Tarantino
kvikmyndaleikstjóri.
1924 Sarah Vaughan
söngkona.
1863 Henry Royce
stofnandi Rolls-Royce
samsteypunnar.
1845 Wilhelm Konrad
Röntgen uppfinninga-
maður.
1785 Lúðvík sautjándi
Frakkakonungur.