Fréttablaðið - 27.03.2006, Blaðsíða 74
27. mars 2006 MÁNUDAGUR30
Bregenz, lið Dags Sigurðssonar í aust-urríska hand-
boltanum, tapaði
fyrir erkifjendunum í
Fivers í úrslitakeppni
úrvalsdeildarinnar
á laugardag, 35-30.
Dagur Sigurðsson
skoraði fjögur mörk
fyrir Bregenz sem
með tapinu missti Fivers upp fyrir sig í
efsta sæti úrslitakeppninnar.
Hannes Jón Jónsson var í miklu stuði og skoraði sjö mörk fyrir Ajax sem
vann Fredericia, 27-22, í dönsku úrvals-
deildinni í handbolta um helgina. Gísli
Kristjánsson bætti við fjórum mörkum
fyrir Ajax en Fannar Þorbjörnsson komst
ekki á blað hjá Fredericia.
Skjern sigraði Helsinge auðveldlega, 39-26, í sömu deild þar sem Vignir Svav-
arsson skoraði tvö mörk fyrir Skjern en
Daníel Ragnarsson fjögur fyrir Helsinge.
Vilhjálmur Halldórsson og Jón Þorbjörn
Jóhannsson skoruðu ekki fyrir Skjern sem
er í fjórða sæti deildarinnar með 30 stig.
GOG er langefst með 40 stig.
Rúnar Kristinsson lék allan leikinn fyrir Lokeren sem sigraði Westerlo,
3-2, í belgísku úrvalsdeildinni á laugar-
dag, en hvorki Arnar
Grétarsson né Davíð
Þór Viðarsson voru í
leikmannahópi liðs-
ins. Rúnar lagði upp
þriðja mark Lokeren
fyrir Aristide Bancé,
en hann skoraði öll mörk Lokeren í
leiknum. Með sigrinum komst Lokeren
upp í 7. sæti deildarinnar.
Ástralski sóknarmaðurinn Mark Viduka segir að Guus Hiddink sé
rétti maðurinn til að taka við enska
landsliðinu eftir HM í sumar, en Hiddink
er einmitt þjálfari Viduka hjá ástralska
landsliðinu. „Hann
er besti þjálfari sem
ég hef nokkurn tíma
unnið með,“ segir
Viduka. „Ef enska
knattspyrnusambandið
velur hann þá get ég
lofað framúrskarandi
árangri. Hann myndi ná fram því besta
úr liðinu og koma Englandi á þær slóðir
í alþjóðlegum fótbolta sem það á að
vera – í hópi þeirra allra fremstu,“ segir
Viduka.
Og meira af landsliðsþjálfaramálum Englands því Sam Allardyce, einn af
þeim stjórum sem taldir eru líklegastir
til að hreppa hnossið, segir að næsti
þjálfari eigi að vera breskur. „Það var rétt
að ráða Eriksson á sínum tíma en nú er
aftur kominn tími á innlendan þjálfara.
Ég held að margir í þessu landi yrðu
fyrir vonbrigðum ef erlendur þjálfari yrði
ráðinn.“
ÚR SPORTINU
FÓTBOLTI Sigurinn gegn Birming-
ham í gær var sá sjötti í röð hjá
Man. Utd. og sem fyrr var Ruud
van Nistelrooy látinn byrja á vara-
mannabekknum. „Það er erfitt að
breyta liði sem er á svo miklu
skriði,“ sagði stjórinn Alex Fergu-
son eftir leikinn en bætti því við
að Nistelrooy gæti hugsanlega
fengið tækifæri gegn West Ham á
miðvikudaginn.
Það var annars Ryan Giggs sem
stal senunni af fyrirliðanum Gary
Neville, sem lék sinn 500. leik
fyrir þá rauðklæddu frá upphafi.
Giggs skoraði fyrstu tvö mörk
Man. Utd í fyrri hálfleik, það síð-
ara með glæsilegu skoti beint úr
aukaspyrnu, en Wayne Rooney
bætti því þriðja við á lokamínút-
unum.
„Við erum staðráðnir í því að
ná 2. sæti deildarinnar og ég held
að við munum ná því ef við höld-
um áfram að spila eins og við gerð-
um í dag,“ sagði Giggs í leikslok,
en hann spilaði á miðjunni ásamt
John O´Shea. „Þeir hafa verið að
ná frábærlega saman og eiga
stærstan þátt í því góða formi sem
liðið er í,“ sagði Ferguson um þá
félaga á miðjunni.
Tveir aðrir leikir fóru fram í
ensku úrvalsdeildinni í gær. Her-
mann Hreiðarsson og félagar í
Charlton unnu góðan sigur á New-
castle á heimavelli sínum, 3-1.
Hermann lék allan leikinn fyrir
Charlton og gerði mjög vel í því að
halda Alan Shearer, fyrirliða New-
castle, algjörlega niðri í leiknum.
Það voru þeir Darren Bent og
Jay Nothroyd sem skoruðu mörk
Charlton auk Lee Bowyer sem
skoraði sjálfsmark en Scott Parker
skoraði fyrir Newcastle.
„Við vorum skelfilegir í vörn-
inni,“ sagði Glenn Roeder, stjóri
Newcastle, öskureiður út í sína
menn. „Við náum engum árangri
með svona varnarleik og þetta er
einfaldlega ekki bjóðandi fyrir
stuðningsmenn Newcastle.“
Stuart Parnay var hetja Midd-
lesbrough gegn Bolton en hann
skoraði sigurmarkið í rosalegum
sjö marka leik á síðustu mínút-
unni. Lokatölur urðu 4-3, heima-
mönnum í vil, en áður hafði Bolton
náð að jafna metin eftir að hafa
lent 3-1 undir.
„Þetta var einn af þessum leikj-
um sem eru martröð stjórans en
draumur áhorfenda. Þvílík
skemmtun,“ sagði Steve McLaren,
stjóri Middlesbrough, eftir leikinn
magnaða. „Þetta var frábær sigur
fyrir okkur og mér fannst við sýna
mikinn karakter með því að
tryggja okkur sigur eftir að Bolt-
on hafði jafnað.“
- vig
Giggs minnti rækilega á sig
Ryan Giggs skoraði tvö mörk og átti frábæran leik fyrir Manchester United, sem vann auðveldan sigur á heill-
um horfnu liði Birmingham í gær. Með sigrinum endurheimti Man. Utd. 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
GLÆSILEGT MARK Ryan Giggs sést hér lyfta boltanum yfir varnarvegg Birmingham þaðan
sem hann fór í bláhornið. Þetta var síðara mark Giggs í leiknum, en hann átti frábæran leik
og var maðurinn á bak við flestar bestu sóknir Man. Utd. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Enska úrvalsdeildin:
CHARLTON - NEWCASTLE 3-1
1-0 Darren Bent (23.), 1-1 Scott Parker (35.), 2-1 Lee
Bowyer, sjálfsmark (38.), 3-1 Jay Bothroyd (89.).
MAN. UTD. - BIRMINGHAM 3-0
1-0 Ryan Giggs (3.), 2-0 Ryan Giggs (15.), 3-0
Wayne Rooney (83.).
MIDDLESBROUGH - BOLTON 4-3
0-1 Stelios Giannakopoulos (3.), 1-1 Jerrel Hassel-
baink (8.), 2-1 Mark Viduka (30.), 3-1 Jerrel Hass-
elbaink (47.), 3-2 Jay Jay Okocha (57.), 3-3 Radhi
Jaidi (81.), 4-3 Stuart Parnaby (92.)
STAÐA EFSTU OG NEÐSTU LIÐA:
CHELSEA 31 25 3 3 60-19 78
MAN UTD 30 20 6 4 61-29 66
LIVERPOOL 32 19 7 6 45-22 64
TOTTENHAM 30 14 10 6 43-28 52
BLACKBURN 31 16 4 11 42-36 52
ARSENAL 30 15 5 10 48-23 50
------------------------------------------------------------
WBA 30 7 6 17 27-45 27
BIRMINGHAM 30 6 6 18 23-44 24
PORTSMOUTH 30 6 6 18 24-51 24
SUNDERLAND 31 2 4 25 19-55 10
Spænska úrvalsdeildin:
CELTA VIGO - MALLORCA 2-0
GETAFE - REAL SOCIEDAD 2-1
SEVILLA - VALENCIA 1-0
REAL MADRID - DEPORTIVO LA CORUÑA 4-0
1-0 Hector, sjálfsmark (10.), 2-0 Ronaldo (37.), 3-
0 Sergio Ramos (70.), 4-0 Julio Baptista (83.).
Real Madrid sýndi allar sínar bestu hliðar í leikn-
um og unnu mjög sannfærandi. Liðið er nú komið
með 57 stig í öðru sæti deildarinnar, 11 stigum á
eftir toppliði Barcelona.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS