Fréttablaðið - 27.03.2006, Blaðsíða 78
27. mars 2006 MÁNUDAGUR34
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HRÓSIÐ
...fær Danielle Kvaran sem hefur
unnið markvisst að skráningu á
ferli listamannsins Erró frá árinu
1998 en fljótlega kemur út bókin
Erró í tímaröð sem byggir á
rannsóknarvinnu hennar.
LÁRÉTT:
2 glans 6 þys 8 mælieining 9 gerast
11 tveir eins 12 nafnbætur 14 háls
16 tveir eins 17 gláp 18 impra 20
gylta 21 flokka.
LÓÐRÉTT:
1 löngun 3 í röð 4 planta 5 fiskur 7
möttull 10 skammstöfun 13 hluti
kynfæra 15 faðmlag 16 belja 19
smáorð.
LAUSN:
Þriðja apríl klukkan níu um
morguninn ættu aðdáendur sápu-
óperunnar The Bold and the
Beautiful að halda niðri í sér
andanum en þá mun Stöð 2 spóla
áfram um tvö og hálft ár á einu
bretti. Þeir þurfa þó engu að
kvíða, Brooke verður enn á lífi og
Stephanie heldur uppteknum
hætti við að vernda fjöl-
skylduna sína. Þrátt fyrir
„ótrúlega“ fordóma gagn-
vart sápum, sem margir
segja vera langlokur um
sama hlutinn, á ýmislegt
eftir að ganga á í heimi
hinna frægu og ríku.
The Bold and the Beauti-
ful hafa verið á dagskrá
Stöðvar 2 frá árinu
1995 en þeir hófu
göngu sína í banda-
rísku sjónvarpi árið
1987 og voru því sjö
hundruð þættir liðnir
áður en íslenskir
sjónvarpsáhorfendur
fengu að kynnast Forreste. Sápu-
óperan á sér fjölda aðdáenda hér
á landi en að sögn Ernu Kettler,
dagskrárstjóra erlends efnis hjá
Stöð 2, liggja að baki bæði hag-
kvæmar ástæður sem og „skyn-
samlegar“. „Þótt ótrúlegt megi
virðast hafa framleiðendur þátt-
anna misst eignarréttinn á
tónlist þeirra þátta sem
við erum með í gangi,“
útskýrir hún en þeir
eru fimm ára gamlir.
„Þeir vildu enn fremur
beina því til okkar að
„stærri“ stjörnur léku
stór hlutverk í nýjustu
þáttaröðunum og okkur
fannst kominn tími til að
færa þá ögn nær nútím-
anum,“ segir hún
en meðal þeirra sem birtast á
skjánum eru Patrick Duffy, betur
þekktur sem Bobby í Dallas,
Lorenzo Lamas úr Falcon Crest
og Lesley Ann Warren sem hefur
leikið í frægum „sápum“ á borð
við Days of our Lives.
Erna segir að Bold and the
Beautiful eigi sér traustan
aðdáendahóp sem láti í sér heyra
ef eitthvað fer úrskeiðis eða
þættir detta út. „Þá verður allt
brjálað hjá okkur,“ segir hún en
varúðarráðstafanir hafa þegar
verið gerðar. „Við höfum fengið
ágrip af því sem gerist á þessum
rúmlega tveim árum og fólk getur
hringt í þjónustuverið og beðið
um að fá það sent,“ segir hún en
Erna bjóst við því að einhverjir
ættu eftir að nýta sér þá þjónustu.
Hvort Erna sjálf væri háð þessum
sjónvarpsþáttum viðurkenndi
hún að detta nokkrum sinnum inn
í atburðarásina. „Þetta er alveg
ótrúlega vanabindandi,“ segir
hún.
Stöð 2: Spólar áfram um tvö ár í sápu
Aðdáendurnir þurfa engu að kvíða
PATRICK DUFFY Er
betur þekktur sem
Bobby í Dallas en hann
mun brátt birtast aftur
á skjá landsmanna eftir
nokkurt hlé.
ERNA KETTLER Aðdáendur The Bold and the Beautiful eru ótrúlega margir hér á landi en sápan hefur verið sýnd á Stöð 2 frá árinu 1995.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Karl Pétur Jónsson er hættur hjá
upplýsinga- og almannatengsla-
fyrirtæki sínu Inntaki. Karl Pétur
var í þann mund að kveðja vinnu-
félagana þegar Fréttablaðið náði
tali af honum og sat með bjór í
hendi. „Það er ekki boðið upp á
svar við því í dag,“ svaraði Karl
þegar hann var inntur eftir því
hvað tæki við næst. „Það verður
ákveðið á næstu vikum en ég er að
tala við menn og menn eru að tala
við mig,“ bætir hann við og hefur
greinilega reynslu af því að láta
ekki of mikið uppi í samskiptum
við fjölmiðla.
Karl Pétur stofnaði fyrirtækið
árið 1999 ásamt tveimur félögum
sínum og segir þetta hafa verið
góður tími en nú sé einfaldlega
komið að krossgötum. „Ég hef
verið að fylgjast með öðrum gera
eitthvað og haft litla stjórn á fram-
vindunni. Núna hef ég áhuga á að
komast í hringiðuna sjálfur,“
útskýrir Karl Pétur. „Ég vildi
stofna almannatengslafyrirtæki
sem hefði ákveðin gæði og finnst
það hafa tekist. Ég skil við það í
góðum höndum og miðað við við-
brögð viðskiptavina eru þeir bara
fegnir að losna við mig,“ sagði
hann og hló. Aðspurður hvort Karli
fyndist hann ekki ómissandi í vinn-
unni sagði hann að það ætti kannski
bara við heima fyrir en Karl Pétur
er sem kunnugt er giftur Tinnu
Ólafsdóttur og eiga þau tvö börn.
Enginn er ómissandi
KARL PÉTUR
Er hættur hjá fyrirtæki sínu Inntaki og
hyggst reyna fyrir sér á nýjum vettvangi.
FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN
LÁRÉTT: 2 gljá, 6 ys, 8 mól, 9 ske, 11
ll, 12 titla, 14 kverk, 16 kk, 17 gón, 18
ýja, 20 sú, 21 raða.
LÓÐRÉTT: 1 lyst, 3 lm, 4 jólarós, 5 áll,
7 skikkja, 10 etv, 13 leg, 15 knús, 16
kýr, 19 að.
��������
��� ��� ��� ��� ���
��� ���� ����������������
����������
�� �� �� �� �
�� �� �� �� �
���������
�����������������������
�������������
������������������������������
�
���������
�����������
��������������
���� ���������
������������������������������
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
„Ætli ég verði ekki að segja Neil Young
og The Crazy Horse á Hróarskeldu
fyrir nokkrum árum,“ segir Ólafur Páll
Gunnarsson á Rás 2 um bestu tónleika
allra tíma.
„Það var bara eitthvað magnað í
andrúmsloftinu. Þetta var Neil Young
eins og hann gerist bestur og þegar
hann er í stuði er hann betri en allir
aðrir.“
Óli Palli man líka vel eftir tónleik-
um Radiohead á Glastonbury árið
1997. „Þeir voru aðalnúmerið á stóra
píramídasviðinu og það var stórkost-
leg upplifun. Þeir vita það sem hafa
upplifað töfrastund á tónleikum að í
svona mannhafi verður til stemning sem
er álíka erfitt að útskýra eins og hvernig
þú hafir eytt jólunum þegar þú varst
barn. Þeir þekkja það sem hafa upplifað
það. Þú verður hluti af einhverju miklu
stærra og það bara gerist eitthvað,“ segir
Óli Palli.
Hérna heima eru tónleikar Sigur Rósar
í Fríkirkjunni fyrir nokkrum árum eftir-
minnilegastir. „Ég man að ég sat á 2. bekk
vinstra megin fyrir aftan foreldra Jónsa.
Undir það síðasta vissi ég ekki hvernig ég
ætti að vera, ég bara hló eins og fáviti og
átti erfitt með mig. Þetta var svo magnað
eitthvað og einhver ótrúlegur galdur í
gangi. Síðan átti ég margar töfrastundir
með Bubba Morthens þegar ég var yngri
að byrja að fara á tónleika heima á Hótel
Akranesi, bara fimmtán ára gutti að fylgj-
ast með honum.“
SÉRFRÆÐINGURINN ÓLAFUR PÁLL GUNNARSSON OG BESTU TÓNLEIKAR ALLRA TÍMA
Neil Young á Hróarskeldu og Sigur Rós
FRÉTTIR AF FÓLKI
Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillzenegger, segir á heimasíðunni
sinni kallarnir.is að hann sé kominn
í fjölmiðlabann. „Undanfarna tvo
mánuði hefur varla verið hægt að rífa
upp blað nema að skítuga gríman á
mér hafi verið þar,“ skrifar Egill sem
greinilega er orðinn þreyttur á sífelldri
umfjöllun um sjálfan sig. „Ég hef verið
að ræða við umboðsmanninn minn og
við erum sammála um að þetta sé fín
tímasetning fyrir Neggerinn að skella
sér í fjölmiðlabann,“ bætir hann við.
Egill ætlar að einbeita sér enn frekar að
Akademíunni, prinsessunni, æfingunum
og þjálfuninni auk þess
sem hann er hættur í
keppninni um næstu
útvarpsstjörnu KISS
FM. „...þar af
leiðandi eru hinir
keppendurnir
núna komnir
með mögu-
leika á að
vinna þessa
keppni,“
skrifar Egill af
sinni alkunnu
hógværð.
Sveitarstjórnarkosningarnar eru greinilega á næsta leiti og sam-
kvæmt könnun Fréttablaðsins myndi
Sjálfstæðisflokkur fá hreinan meirihluta
ef gengið væri til atkvæða í dag. Fjöldi
óákveðinna var töluverður en athygli
vakti að Framsóknarflokkurinn mældist
minnstur en bæði Frjálslyndi flokkur-
inn og Vinstri grænir reyndust stærri.
Björn Ingi Hrafnsson, leiðtogi flokksins í
Reykjavík, telur þessa flokka hafa gengið
á bak orða sinna með auglýsingaher-
ferðum að undanförnu. Vinstri grænir
hafi gagnrýnt persónudýrkun Ingibjargar
Sólrúnar hvað mest en nú standi þeir
sjálfir fyrir auglýsinga- og greinaherferð
sem byggist á því að tíunda mannkosti
oddvita listans, Svandísar Svavarsdóttur.
Þá telur Björn Ingi að það skjóti skökku
við að Frjálslyndi flokkurinn hafi birt
heilsíðu auglýsingu í Morgunblaðinu í
gær þótt enn séu rúmlega tveir mán-
uðir til kosninga. „Ætli það hefði ekki
heyrst hljóð úr horni ef einhver annar
flokkur t.d Framsóknar-
flokkurinn hefði byrjað
auglýsingaherferð sína í
dag,“ skrifar Björn Ingi
og bætir við. „Ætli
Sigurjón Þórðarson,
þingmaður flokksins
muni kveðja sér hljóðs
á Alþingi vegna máls-
ins, eins og hann
gerði í prófkjöri
Framsóknarflokks-
ins?“ - fgg