Fréttablaðið - 27.03.2006, Page 6

Fréttablaðið - 27.03.2006, Page 6
6 27. mars 2006 MÁNUDAGUR 7. apríl, í Súlnasal Hótels Sögu, kl. 19 • 3ja rétta matseðill • Skemmtiatriði: Ómar Ragnarsson o.fl. • Happdrætti • Dansleikur: Hljómsveit Hjördísar Geirs Dansleikur Úrvalsfólks Miðasala hjá Úrvali-Útsýn, Lágmúla 4, sími 585-4039 KJÖRKASSINN Á að halda rannsókn Baugsmáls- ins áfram? Já 22% Nei 78% SPURNING DAGSINS Í DAG Eiga Íslendingar að leita eftir samstarfi við Norðmenn um loftvarnir? Segðu þína skoðun á Vísir.is VÍSINDI Jón Bragi Bjarnason prófessor hyggst ekki flytja fuglaflensuveiru hingað til lands heldur fá aðstöðu til að rannsaka hana á tilraunarstofu erlendis. Jón Bragi er einn forsvars- manna fyrirtækisins Ensímtækni ehf. sem framleiðir pensím úr þorski og húðáburðinn PENZIM og vinnur nú að því að fá veiru sem veldur fuglaflensu til að mæla áhrif ensímsins á þær. „Ég hef fengið þá í heilbrigðis- ráðuneytinu til að aðstoða mig við að fá sýni og aðstöðu til að rann- saka það á tilraunastofu úti,“ segir Jón Bragi. „Það gæti orðið hjá heilbrigðismálastofnunni N.I.H. í Bandaríkjunum eða hjá annarri stofu í London en ég er í samvinnu við markaðsfyrirtæki sem er í samstarfi við þá þar. Báðar þess- ar stofnanir eru með veirurnar og veirupróteinin sem ensímið vinn- ur á þannig að ég held að það þurfi ekki að koma til milligöngu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um það.“ Hann segist munu fara til Bandaríkjanna í apríl og von- ast til að þá komist þessi mál á hreint. „Það er því engin ástæða til að óttast mig en það var eins og sumir héldu að ég væri með fuglaflensuveiruna í vasanum og tóku sveig frekar en að mæta mér,“ segir Jón Bragi og hlær við. Davíð Á. Gunnarsson, skirfstofustjóri í heilbrigðismála- ráðuneytinu, segir að forsenda þess að fá að flytja inn fugla- flensuveiru sé að viðkomandi vinni á öryggisrannsóknarstofu. Að sögn Davíðs er ein slík hér á landi og það er rannsóknarstofa Háskólans og Landspítalans í Ármúla. Einnig segist hann hafa spurst fyrir um leyfi til innflutn- ings hjá Alþjóðaheilbrigðisstofn- uninni. „Þar gáfust þau svör að engin tök gæfust á slíku nú þar sem þeim berast um þessar mund- ir hundruð ef ekki þúsundir beiðna um að skoða ýmiss konar lyf og efni til að fást við fuglaflensuna. Nú vísa þeir beiðnum hina hefð- bundnu rannsóknarleið sem þýðir að menn verða að vinna málið í gegnum rannsóknarstofur og þurfa að hafa birt greinar í virt- um vísindaritum til að verða eitt- hvað ágengt.“ jse@frettabladid.is Hyggst ekki flytja inn fuglaflensuveiru Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin annar ekki eftirspurn við að rannsaka lyf sem hugsanlega gætu læknað fuglaflensu. Jón Bragi Bjarnason vill rannsaka lyf við fuglaflensunni á tilraunastofu erlendis. JÓN BRAGI BJARNASON Prófessorinn segir óþarfi að óttast sig því hann sé ekki með fugla- flensuveiruna í vasanum en hafi áhuga á að rannsaka hana í tilraunastofu erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ALMANNAVARNIR Um 1.500 manns, íbúar og almannavarnarmenn, tóku þátt í stærstu almannavarna- ræfingu sem haldin hefur verið hér á landi, Bergrisanum, en henni lauk í Rangárvallasýslu gær. Æfð voru viðbrögð við hlaupi sem færi til vesturs vegna goss í Mýrdalsjökli og tóku 656 íbúar þátt í æfingunni í gær með því að yfirgefa heimili sín og gefa sig fram í skráningu sem Rauði kross- inn hafði umsjón með í fjölda- hjálparstöðvum. Í fyrradag tóku tæplega 200 íbúar þátt en þá var æft í Vestur-Skaftafellssýslu. „Þetta tókst mjög vel og það markmið okkar að láta reyna á kerfið gekk eftir, þökk sé mikilli þátttöku íbúanna,“ segir Víðir Reynisson frá Almannavarnar- deild Ríkislögreglustjóra en hann var æfingastjóri. „Vissulega komu nokkrir agnúar í ljós eins og til dæmis að það þyrfti að bjóða sjálf- boðaliðum í stjórnstöðvum frek- ari þjálfun og meðferð upplýsinga reyndist ekki jafnskjót og hnit- miðuð og við hefðum helst kosið,“ bætti hann við. Næstu daga verða haldnir rýni- fundir þar sem farið verður yfir þá agnúa sem upp komu og hvern- ig megi koma í veg fyrir þá. - jse Um fimmtán hundruð manns æfðu viðbrögð við hugsanlegu Kötlugosi: Fólk veit hvað ber að gera FJÖLDAHJÁLPARMIÐSTÖÐ Í HVOLSSKÓLA Íbúar í Rangárvallasýslu létu ekki sitt eftir liggja í Bergrisanum í gær en 656 þeirra tóku þátt og eru því íbúarnir orðnir 833 sem vita af reynslu hvað ber að gera ef til Kötlugoss kæmi. MYND: SOFFÍA SIGURÐARDÓTTIR LÖGREGLA Sjö voru handteknir í miðborg Reykjavíkur í fyrrinótt í kjölfar húsleitar lögreglu. Tölu- vert af fíkniefnum fannst í íbúð- inni og í fórum fólksins. Talið er að eiturlyfjasala hafa verið stunduð í íbúðinni og voru sjömenningarnir allir í mjög ann- arlegu ástandi. Rannsókn málsins stendur yfir. - mþþ Sjö manns teknir við húsleit: Grunur um fíkniefnasölu Burt með bílaraðir Bæjarstjórn Hafnarfjarðar vill að Alþingi og sam- gönguyfirvöld endurskoði samgöngu- áætlun. Binda verði enda á langar bílaraðir sem myndast á álagstímum. SAMGÖNGUR LÖGREGLA Mjög ölvað par var hand- tekið um klukkan eitt í fyrrinótt þar sem það rölti um miðbæinn með eins árs gamalt barn sitt í vagni. Lögregla leitaði í vagninum og fann þar áfengisflöskur sem fólkið hafði lagt í vagninn, við hlið barnsins. Fólkið var yfirheyrt á lögreglu- stöð í gær eftir að það hafði sofið úr sér áfengisvímuna. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni tóku fulltrúar barnaverndaryfirvalda barnið að sér og verður það í umsjá þeirra á meðan rannsókn málsins stendur yfir Ekki var hægt að fá nánari upplýsingar hjá lögreglu að svo stöddu. - mþþ Ábyrgðarlausir foreldrar: Ölvaðir með barnið á rölti FÉLAGSMÁL Nýstofnað Aðstand- endafélag aldraðra á Íslandi hvet- ur til þjóðarátaks í búsetu- og kjaramálum aldraðra. Þetta var meðal þess sem fram kom á stofn- fundi félagsins sem haldinn var í Hafnarfirði í gær. Í ályktun sem samþykkt var á fundinum segir að nóg sé komið af orðum, nefndum og skýrslum og að nú þurfi aðgerðir og úrræði. „Við trúum því að við höfum afl til að breyta hlutunum,“ sagði Reynir Ingibjartsson nýkjörinn formaður félagsins. ,,Ástandið er til skammar. Biðlistar eftir hús- næði eru langir og meiri fjöl- breytni skortir í valkostum. Skatt- lagning aldraðra er þjóðarskömm. Það skortir ekki fjármagn á Íslandi og lífeyrissjóðirnir eiga að líta á það sem skyldu sína að koma þess- um málum að,“ segir Reynir. Vel á þriðja hundrað manns sóttu fundinn, hvert sæti var skip- að og bæta þurfti við stólum svo að allir kæmust að. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- ráðherra mætti til fundarins. Hún kvaðst fagna stofnun félagsins og sagði vitundarvakningu hafa orðið meðal landsmanna þegar kemur að málefnum aldraðra. - mþþ Á þriðja hundrað manns mættu á stofnfund AFA: Skattlagningin þjóðarskömm Á FUNDI Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík, tekur í hönd Reynis Ingibjartssonar, formanns AFA. KANADA, AP Selveiðitímabilið hófst í Kanada um helgina. Friðunars- innar voru mættir til að fylgjast með og fóru mjög í taug- arnar á veiðimönn- um, sem misstu hvað eftir annað stjórn á skapi sínu. Einu selveiði- skipanna var siglt á gúmmíbát friðun- arsinna. „Veiði- mennirnir geta verið reiðir en það gefur þeim engan rétt til að stofna lífi fólks í hættu,“ sagði talsmaður friðunarsinna. - gb Selveiðimenn í Kanada: Í átökum við friðunarsinna REIÐUR SKIP- STJÓRI Æpir á friðunarsinna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.