Fréttablaðið - 27.03.2006, Síða 21

Fréttablaðið - 27.03.2006, Síða 21
MÁNUDAGUR 27. mars 2006 Guðmundur Óli Scheving SKRIFAR UM MEINDÝR OG MEINDÝRAVARNIR Þrjú afbrigði af silfurskottum (thysanura) hafa greinst hér á landi: Lepisma saccharina, Ctenolepisma longicaudata og Ctenolepisma quadriseriata. Þá hefur einnig greinst hér á landi yl- skotta sem er nokkuð stærri og virð- ist loðin. Nafnið Thysanura, er komið úr grísku, „thysano“ þýðir kögur og „ura“ hali eða sporður (fish) og vegna hreyfinga og litar ber hún nafnið silf- urskotta (Silverfish). Silfurskottur eru mjög algengar í híbýlum manna og þar sem kjöraðstæður skapast vegna raka og hita, s.s. í verslunum, fyrir- tækjum, farartækjum og útihúsum. Silfurskottan þarf 60-75% raka til að geta fjölgað sér. Hún verður kynþroska þriggja ára gömul. Talið er að hún geti orðið fimm til átta ára gömul. Á þeim stöðum sem hún getur fjölgað sér, verpir hún 12-30 eggjum í einu. Afkvæmi einnar silfur- skottu geta orðið allt að 600. Silfur- skottan tekur á sig ýms litbrigði eftir aðstæðum, hún getur verið dökk, grá, silfruð og bláleit. Þegar fólk verður vart við silfur- skottu er nauðsynlegt að leita eftir rakamyndun eða leka í rýmum. Þær eru algengar í kjöllurum, bað- herbergjum, eldhúsum og þar sem rakamyndun á sér stað og dimmt er. Fólk sér þær skjótast um gólf þegar allt í einu er kveikt ljós í rými. Fólk getur borið með sér skordýr og egg í fötum, skóm eða sokkum og dreift þeim. Það er best að láta meindýra- eyði úða fyrir silfurskottu. Efnið sem meindýraeyðar nota er langvirkt og er að öllu jöfnu 3-4 mánuði að brotna niður. Fólk þarf að undirbúa sig áður en til úðunar kemur, best er að þrífa íbúðina eða rýmið áður en úðað er. Ekki er nauðsynlegt að færa hluti úr stað en það getur samt verið betra við vissar aðstæður. Úðað er í alla sökkla meðfram öllum gólflistum og um það bil 10 cm út á gólfflöt. Það er gert vegna þess að efnið sem úðað er með drepur ekki egg skordýra en ef dýrið er búið að verpa, drepst ungviðið um leið og það skríður af stað. Það er því mjög mikilvægt að nota aðeins ryksugu eða þurrmoppu við þrif á þessum 10 cm fyrstu vik- urnar eftir úðun í rýmum. Breiða þarf yfir/verja fiskabúr. Að undanskildu fólki með ofnæmi, asma, öndunarörðugleika, litlum börnum, ófrískum konum og gæludýrum má snúa aftur til rýma 2- 4 klst eftir úðun eða þegar uppgufun af efni er búin. Fólk með þau ein- kenni sem upp eru talin hér að ofan sem og gæludýr ættu að vera í burtu í allt að átta klukkustundir. Fólk sem þarf að fá meindýraeyði skal óska eftir að fá að sjá starfsskír- teini gefið út af Umhverfisstofnun og kanna hvort meindýraeyðirinn hafi starfsleyfi frá viðkomandi sveit- arfélagi. Ef viðkomandi er félagi í Félagi meindýraeyða þá er fagmaður á ferð. Fólk ætti að spyrja um þessa hluti þegar það hefur samband við meindýraeyði. Heimildir: Upplýsingar og fróð- leikur um meindýr og varnir, 2004. University of Missouri-Columbia. Lesendum Fréttablaðsins er vel- komið að senda fyrirspurn á net- fangið gudmunduroli@simnet.is. Silfurskottur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.