Fréttablaðið - 27.03.2006, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 27. mars 2006 9
HVAÐ ER... VERIÐ AÐ BYGGJA?
Arnarneshæðin áður en framkvæmdir hófust.
Framkvæmdir við Akrahverf-
ið í Garðabæ hófust í maí á
síðasta ári en talið er að þeim
muni ekki ljúka fyrr en árið
2008.
Byggingarland á Arnarneshæð
er tvískipt. Annars vegar sunnan
Arnarnesvegar samtals um 34
hektarar, nefnt IB-15 í aðalskipu-
lagi Garðabæjar og svo svæði
norðan Arnarnesvegar sem hall-
ar niður í átt að bæjarmörkum
Kópavogs og Garðabæjar, um 10
hektara svæði sem nefnt er M-2 í
aðalskipulaginu. Svæðið norðan
Arnarnesvegar er í eigu Akra-
lands ehf., en svæðið sunnan Arn-
arnesvegar er í eigu tveggja
aðila, Akralands sem á um 20
hektara svæðisins og fasteigna-
félagsins Laugakur ehf. sem á
um 14 hektara svæðisins.
Í holtinu norðan og austan til á
svæðinu er nokkur landhalli, en í
suðvesturhluta svæðisins er mýr-
lendi og þar er landið slétt. Jarð-
vegsdýpi er yfirleitt lítið og land-
ið afar gott byggingarland. Í
suðurjaðri svæðisins er fyrirhug-
að útivistarsvæði og frá því liggja
opin svæði sem teygja sig upp í
byggðina og tengja hana við
útvistarsvæðið. Samtals munu
rísa hátt í 1000 íbúðir á svæðinu
öllu.
Svæðið sunnan Arnarnesveg-
ar er byggt upp í nánu samstarfi
við Garðabæ en Akraland og full-
trúar Laugakurs undirrituðu
samninga um uppbyggingu svæð-
isins við bæjarstjórann í Garða-
bæ í mars 2005. Svæðið verður
byggt upp í þremur áföngum á
árunum 2005 til 2008. Fyrsti
áfangi er miðhluti svæðisins,
annar áfangi svæðið vestar og
nær Hafnafjarðarvegi og þriðji
áfangi svæðið austar og nær Hof-
staðaskóla. Framkvæmdir við
fyrsta áfanga hófust í maí 2005
og lóðir þar voru byggingarhæf-
ar í desember 2005. Gatnagerðar-
framkvæmdir við annan áfanga
hófust í desember síðastliðnum
og er gert ráð fyrir að lóðir þar
verði byggingarhæfar í septemb-
er 2006. Gert er ráð fyrir að lóðir
í þriðja áfanga verði byggingar-
hæfar eftir mitt ár 2007.
Nú er unnið að undirbúningi
að gerð deiliskipulags fyrir bygg-
ingarsvæðið norðan Arnarnes-
vegar. Þar mun rísa blönduð
byggð þó aðallega íbúðir í fjölbýl-
ishúsum. Allar nánari upplýsing-
ar um Akrahverfið má nálgast á
heimasíðunum www.laugarnes.is
og www.akraland.is.
Fjöldinn allur af krönum setur nú ákveðinn svip á Akrahverfið. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Akrahverfi rís
Svona mun Akrahverfið í Garðabæ líta út, séð frá suðaustri.
NESVEGUR - 2JA-3JA HERB.
Góð 47,7 fm, 2ja-3ja herb. ósamþykkt íbúð í kjallara við Nes-
veginn í Vesturbænum. Hol með fataskáp, þar er einnig lítið
salerni. Þvottaherb. með sturtuaðstöðu og lítið herb. sem hægt
er að nota sem svefnherb.. Stofan og eldhúsið er eitt rými.
Svefnherb. með fataskápum. Útigeymsla og 1-2 geymslur í
íbúðinni. Nýtt parket í stofu og svefnherb., dúkur á öðrum gólf-
um. V. 10,9 millj.
STYKKISHÓLMUR - EINBÝLI/TVÍBÝLI
Við Sundabakka í Stykkishólmi, einu fallegasta sjávarplássi
landsins er nú til sölu 287,2 fm einbýlishús ásamt 63,6 fm tvö-
földum bílskúr. Samtals er húsið ásamt bílskúrnum 350,8 fm og
hefur það hingað til verið notað sem tvíbýlishús. 8 svefnherb.
eru í húsinu og tvær stofur. Svalir eru út af efri hæðinni. Glæsi-
legt útsýni. Nýlegt járn á þaki. V. 26,7 millj.
STYKKISHÓLMUR - GLÆSILEGT ÚTSÝNI
102,6 fm einbýli við Bókhlöðustíg, byggt 1907 og stendur á
besta stað í Stykkishólmi með útsýni yfir allan bæinn og
Breiðafjörðinn. Allt nýmálað og tekið í gegn að innan. Gömlu
gólfin tekin upp, slípuð og lökkuð á glæsilegan máta, náttúru-
steinn á öðrum gólfum. Nýjar frárennslislagnir út í götu, raf-
magn mikið endurnýjað, hitaveita og nýjar neysluvatnslagnir.
Nýstandsett baðherb.. TILBOÐ ÓSKAST.
LYNGHAGI - SNÆFELLSNES
Lynghagi er miðsvæðis á sunnanverðu Snæfellsnesi nálægt
Vegamótum. Húsið er 121 fm á einni hæð auk 54 fm bílskúrs. Í
húsinu eru 4 svefnherb., stór stofa, borðstofa, rúmgott eldhús
með borðkrók og þvottahús. Húsið hefur að mestu verið gert
upp að innan sem utan. Rafmagnskynding. Möguleiki á að taka
inn hitaveitu sem nú þegar hefur verið lögð fyrir ofan húsið.
Nýir ofnar. V. 14 millj.
LÓMASALIR - 4RA HERB. M/BÍLAGEYMSLU
Mjög falleg 4ra herb., 124,2 fm endaíbúð á 2. hæð í nýju (2003)
lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu á glæsilegum út-
sýnisstað í Kópavogi. Falleg gólfefni og vandaðar innréttingar.
Anddyrið og svefnherb. með rúmgóðum skápum. Sjónvarps-
hol, rúmgóð stofa og vestur svalir. Flísagt baðherb.. Þvotta-
herb. innaf eldhúsi. Stór sér geymsla í sameign. Stutt í alla
þjónustu. TILBOÐ ÓSKAST
LJÁRSKÓGAR - EINBÝLI
Glæsilegt, vel skipulagt og vel viðhaldið 308,2 fm einbýlishús
með tvöföldum bílskúr og 2ja-3ja herb. aukaíbúð á jarðhæð á
frábærum stað í Seljahverfi. Húsið er 234,2 fm og óskráð rými
er um 74 fm. Það stendur í botnlanga og er á tveimur hæðum.
Aðkoma að húsinu er glæsileg og er lóðin mjög snyrtileg og
falleg. Hitalagnir í tröppum og innkeyrslu. Gólfefni eru fallegt
parket og flísar.V. 58,5 millj.
FLÉTTURIMI - 3JA HERB. M/BÍLAGEYMSLU
Falleg 3ja herb., 84,7 fm íbúð á 2. hæð ásamt 13,5 fm stæði í
lokaðri bílageymslu. Komið er inn í opið flísalagt hol. 2 rúmgóð
svefnherb. með skápum. Baðherb. er með baðkari og innrétt-
ingu. Stofan er rúmgóð og björt, útgengt á vestur svalir með
fallegu útsýni. Eldhús með borðkrók. Þvottaherb. er innan
íbúðar. Sér geymsla. Nýbúið er að mála sameignina. Parket,
dúkur og flísar á gólfum. V. 18,4 millj.
STYKKISHÓLMUR - GLÆSILEGT ÚTSÝNI
Fallegt 190 fm einbýlishús úr timbri ásamt 40 fm bílskúr á frá-
bærum útsýnistað við Sjávarflöt í Stykkishólmi. Rúmgott
þvottaherb.. 4 svefnherb.. Stór stofa sem skiptist í sjónvarps-
rými, borðstofu og setustofu. Garðskáli. Nýleg Ikea innrétting í
eldhúsi, búr inn af því. Parket, dúkur og flísar á gólfum. Útsýni
úr stofu og garðskála yfir Breiðafjörðinn er með því besta sem
sést í Stykkishólmi. TILBOÐ ÓSKAST.
SUMARBÚSTAÐUR - BJARKARBORGIR
Stórglæsilegt nýlegt sumarhús ásamt gestahúsi á skipulögðu
svæði úr jörðinni Minni Borg í Grímsnesi. 5200 fm eignarlóð.
Svefnrými fyrir allt að 16 manns. Olíufylltir rafmagnsofnar eru í
öllum herbergjum. 150 lítra hitakútur. Framhlið húsanna snýr í
hásuður og er verönd umhverfis húsið stór og mikil. Hlið er inn
á svæðið og er það lokað yfir vetrarmánuði. V. 16,9 millj.
SÓLEYJARIMI - SÉR INNG./JARÐH./BÍLAG.
Glæsileg, 94,2 fm, 3ja herb. íbúð með sér inngang á jarðhæð í
nýju fjölbýli (byggt 2005) í Grafarvogi ásamt stæði í bíla-
geymslu. Hellulögð sér lóð með útsýni. 2 svefnherb. með skáp-
um. Flísalagt baðherb.. Innrétting, baðkar og vegghengt sal-
erni. Hiti í gólfi. Þvottaherb. innan íbúðar. Vandaðar innrétting-
ar úr eik. Innfelldar hurðar. Eikarparket og Mustang flísar á
gólfum. Mynddyrasími. V. 24,5 millj.
Sverrir Kristjánsson
lögg. fasteignasali
sími 896 4489
Karl Dúi Karlsson
sölumaður
GSM 898 6860
Samtengd söluskrá
Sex fasteignasölur
- ein skráning - minni kostnaður -
- margfarldur árangur -
wwwhus.is
Opið virka daga
frá kl. 09:00-18:00.
www.fmg.is
Sími 575 8585 – Spönginni 37 – 112 Reykjavík – www.fmg.is
F
ru
m