Fréttablaðið - 27.03.2006, Síða 62
27. mars 2006 MÁNUDAGUR44
Árbæjarskóli hóf göngu sína árið
1956. Fram til 1966 var hann starf-
ræktur í samkomuhúsi á Árbæjar-
bletti þar sem kennt var í þremur
deildum. Haustið 1967 flutti skólinn
sig um set í nýtt húsnæði með 421
nemanda. Nemendum fjölgaði hratt
næstu árin og á fimm ára afmæli
skólans voru nemendur 1.081 talsins.
Skólinn er í dag einsetinn en 800
nemendur sækja þangað menntun
sína. Skólinn er safnskóli á ungl-
ingastigi en það felur í sér að við
upphaf 8. bekkjar koma nemendur
Ártúnsskóla og Selásskóla til náms í
Árbæjarskóla.
Þorsteinn Sæberg stýrir Árbæjarskóla
en honum til halds og trausts eru
Guðrún Erna Þórhallsdóttir og Una
Björg Bjarnadóttir.
ÁRBÆJARSKÓLI
Steypuvinna við kalkþörunga-
verksmiðjuna á Bíldudal er
hafin og framkvæmdir ganga
vel.
Unnið er að því að reisa kalkþör-
ungaverksmiðju á Bíldudal og nú
nýlega hófst steypuvinna að verk-
smiðjugrunninum sem er í hönd-
um Trésmiðjunnar Lás ehf. Búið
er að steypa helming undirstöð-
unnar fyrir stálgrindina en eftir
eru veggirnir og svo platan. Stefnt
er á að klára verksmiðjugrunninn
í byrjun maí.
Aðaleigandi verksmiðjunnar
sem mun rísa á Bíldudal er fyrir-
tækið Celtic Sea Minerals. Fyrir-
tækið á einnig kalkþörungaverk-
smiðju í bænum Castletownbere á
Írlandi sem hefur verið keyrð á
fullum afköstum undanfarið og
hefur verið fengið til þess efni úr
Arnarfirði. Þegar verksmiðjan á
Bíldudal kemst í gagnið mun hún
bera þungann af framleiðslu Celt-
ic Sea Minerals. Áætlað er að
verksmiðjan taki til starfa seinni-
part sumars.
Frétt fengin af www.bb.is.
Verksmiðja
á Bíldudal
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*þinglýst ir kaup samn ing ar, heim ild Fast eigna mat rík is is ins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
3/2-
9/2
203
10/2-
16/2
185
17/2-
23/2
181
24/2-
2/3
206
3/3-
9/3
179
10/3-
16/3
214
Dr. Ólafur Kvaran, safnstjóri Listasafns Íslands, er mikill náttúru-
unnandi og að hans mati er það nauðsynlegt að híbýli séu í
góðum tengslum við náttúruna. „Ég vil hafa breiða fjallasýn og
góða sjávarsýn,“ segir Ólafur. Frá hans bæjardyrum vill hann
geta fylgst með þeim breytingum á náttúrunni sem árstíðirnar
hafa í för með sér. „Ég vil stöðugt verða vitni að síbreytileika
náttúrunnar. Ég vil geta fylgst með ólíkum árstíðum og hvernig
birtan og litbrigðin breytast í takt við þær.“
Dr. Ólafi er ekki illa við sjóinn og hann vill sjá brimið ólga
og að eigin sögn hefur hann ekkert á móti, nema síður sé, að
hressilegur gustur blási af hafi. „Þannig upplifi ég veðrið,“ segir
Ólafur og hlær.
Ólafur segir sem minnst um húsið sjálft. „Það er betra að
hafa það á höfuðborgarsvæðinu en annars er það ytra rýmið
sem skiptir höfuðmáli.“ Hann viðurkennir þó að hann kjósi
fremur að hafa rúmt um sig en þröng þægilegheit. „Jú ég vil
heldur hafa vítt til veggja og hátt til lofts,“ segir Ólafur að lokum.
DRAUMAHÚSIÐ MITT: DR. ÓLAFUR KVARAN SAFNSTJÓRI
Staðsetningin sem skiptir máli
Dr. Ólafur Kvaran vill bæði sjávar- og
fjallasýn frá sínum stofuglugga.