Fréttablaðið - 27.03.2006, Síða 67

Fréttablaðið - 27.03.2006, Síða 67
MÁNUDAGUR 27. mars 2006 23 ZAPPA PLAYS ZAPPA miðasala 2. apríl www.rr.is Segjum svo að manneskja standi upp í fjölmenni og heimti athygli viðstaddra þá er það ekki endilega leiklistarviðburður. En ef mann- eskjan fer upp á kassa er það í átt- ina, gæti þó verið framboðsræða eða predikun, jafnvel kynning á nýrri tannkremstegund. Ef mann- eskjan talar mjög hátt og tilgerð- arlega, syngur og dansar eða hreyfir sig óvenjulega, klæðist furðulegum fötum eða bara alls engum fötum, þá er þetta örugg- lega leiklist. Sérstaklega ef hún er allsber. Ef manneskjan í þokkabót segir safaríkar lygasögur, sem fanga athyglina, þá er þetta pott- þétt leikari. Þó aðeins ef allir áhorfendur samþykkja lygasög- una sem eitthvað betra og hafið yfir sannleikann um stundarsakir. Leikarinn er mjög góður ef áhorfendur gleyma því að þeir þurfa að pissa í svona einn og hálf- an klukkutíma. Hugmyndaflug, innsæi og sköpunargáfur leikar- ans kallar fram nákvæmlega þessa sömu eiginleika í sérhverj- um áhorfenda og úr verður það sem kallast leiklist. Þetta samspil er kjarninn. Til að auka áhrifa- mátt hans og fjölbreytni hafa tveir og svo fleiri leikarar tekið sig saman og þá hefur þurft að stækka kassann, jafnvel smíða upphækk- aðan pall. Síðan hengja upp tjöld til að fela ljótan bakgrunn, reisa þak út af rigningu, tengja ljóskast- ara til að vinna á myrkrinu en til að fara hratt yfir þróunarsöguna þá höfum við nú það sem við nefn- um leikhús. Þar vinnur gífurlegur fjöldi fólks að því að spinna og vefa dýrindis klæði úr engu, líkt og vefararnir í sögunni um nýju fötin keisarans. En ólíkt þeim svindlurum er enginn að svíkja vísvitandi heldur eru allir að reyna að gera eins vel við leiksýninguna og hægt er. Öll viljum við að lygasögurnar afhjúpi sannleikann, ef það skyldi mistak- ast væri ofboðslega frískandi ef áhorfendur myndu taka sér barnið úr sögunni til fyrirmyndar og kalla hátt og snjallt yfir allan sal- inn: „En hann er ekki í neinu!“ Í tilefni af alþjóða leiklistardeg- inum 2006, Stígur Steinþórsson. STÍGUR STEINÞÓRSSON LEIKMYNDAHÖF- UNDUR Ávarp Stígs Steinþórssonar Harmonikan verður í öndvegi á tónleikum í Salnum í kvöld en þá leikur Finninn Tatu Kantomaa nokkur af merkustu harmoniku- verkum 20. aldarinnar sem spanna allt frá þjóðlögum og finnskum tangóum til innhverfrar íhugunar. Með honum leika Sigurður Hall- dórsson á selló, Zbigniew Dubik á fiðlu, Eydís Franzdóttir á óbó og Kolbeinn Bjarnason á flautur. Tatu segir að töluverð gróska sé í tónsmíðum fyrir harmoniku um þessar mundir. „Á undanför- um tuttugu árum hafa æ fleiri tón- skáld samið verk fyrir harmoniku, einkum á Norðurlöndunum.“ Á tónleikunum frumflytja Tatu og félagar verk eftir ungan Íslend- ing, Daníel Bjarnason, sem sækir innblástur sinn til fornra kín- verskra ljóða. Þá leika þau verk eftir Arne Nordheim sem var kall- aður fyrsti módernistinn í Noregi. „Þetta eru verk eins og ég vil gjarnan spila,“ segir Tatu en legg- ur áherslu á að hann leiki alls kyns tónlist. Tatu hefur búið á Íslandi með hléum síðan 1996 og verið ötull við að spila og kenna á hljóðfærið. Hann er félagi í Rússíbönunum, Tangósveit Lýðveldisins og CAPUT hópnum og hefur auk þess tekið þátt í fjölmörgum leiksýn- ingum, í Þjóðleikhúsinu, Borgar- leikhúsinu og víðar. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00. TATU KANTOMAA HARMONIKULEIKARI Leikur ásamt Eydísi Franzdóttur óbóleikara og Kolbeini Bjarnasyni flautuleikara í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ GVA Harmonikan í öndvegi Geisladiskurinn „Til Máríu“ sem inniheldur trúarlega tónlist eftir Gunnar Reyni Sveinsson tónskáld kom út í gær, á Boðunardegi Maríu. Á diskinum flytja Kamm- erkór Suðurlands og einsöngvar- arnir Hallveig Rúnarsdóttir, Anna Sigríður Helgadóttir, Hrólfur Sæmundsson og Sverrir Guðjóns- son tónsmíðar Gunnars helguðum Maríu guðsmóður en Sverrir er jafnframt listrænn stjórnandi verksins. Á diskinum má einnig finna lagasmíðar Gunnars við ærslavísur Æra-Tobba. Útgáfutónleikar hópsins verða haldnir 1. apríl nk. í Þjóðmenning- arhúsinu. Trúartónar HALLVEIG RÚNARSDÓTTIR Syngur til dýrðar Maríu á nýjum diski.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.