Fréttablaðið - 27.03.2006, Síða 69

Fréttablaðið - 27.03.2006, Síða 69
Fermingargjafir fyrir poppara, rappara og rokkara... Rafmagnsgítarar frá 15.900 kr. Trommusett frá 36.500 kr. Kassagítarar frá 10.900 kr. Gítarmagnarar frá 9.900 kr. Mbox með Pro Tools frá 41.500 kr. Hljómborð frá 23.900 kr. Hljóðfærahúsið Laugavegi 176 105 Reykjavík www.hljodfaerahusid.is info@hljodfaerahusid.is Sími 591 5340 MÁNUDAGUR 27. mars 2006 25 FRÍSKANDI Sólarp- úðrið frá Guerlain er einn af þessum hlutum sem þú verður að eignast fyrir sumarið. Ný plata eftir tónlistarmanninn Barða Jóhannssonar sem ber nafnið Haxan, kemur út þann 24. apríl. Verkið, sem er tónlist við þögla bíómynd frá árinu 1920, er leikið af sinfóníuhljómsveit Búlg- aríu og hljóðritað þar í landi. Útsetning er að mestu í höndum Þóris Baldurssonar. Verkið var upprunalega samið fyrir kvikmyndina Haxan. Mynd þessi telst til kvikmyndasögu- legra meistaraverka og var bönn- uð í fleiri ár vegna djöfladýrkun- ar og nektar. Frumflutningur á verkinu fór fram í kvikmynda- húsinu „Forum des Images of Paris“ árið 2004. Var verkið flutt við sýningu myndarinnar og var notast við tvær fiðlur, ásláttar- hljóðfærði, gítar og rafhljóð. Þessi frumflutningur var hluti af seríu þar sem tónlistarmenn voru fengnir til að semja nýja tónlist við þöglar myndir frá fyrri hluta tuttugustu aldar. Í framhaldi af þessari uppá- komu var Barða boðið að taka þátt í Vetrarhátíð Reykjavíkur og var verkið flutt þar í sinfónískri útsetningu Þóris Baldurssonar. Verkið skiptist í sjö hluta og útsetti Þórir sex þeirra en Barði sjálfur einn hluta. Var verkið flutt í þess- ari útgáfu árið 2005 af Sinfóníu- hljómsveit Íslands í Háskólabíói. Sumarið sama ár hélt Barði til Búlgaríu þar sem hann tók upp tónverkið ásamt búlgörsku sin- fóníuhljómsveitinni í húsi ríkis- útvarpsins í Sofiu. Lokavinnsla og aukahljóðfæraleikur fór fram á Íslandi og var platan hljóðblönduð í janúar 2006. Sum verkanna á plötunni eru styttar útgáfur af heildarverkinu. Haxan í lok apríl BARÐI JÓHANNSSON Tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson gefur út plötuna Haxan í lok apríl. FRÉTTIR AF FÓLKI Mikill áhugi er á spennumyndinni Snakes On a Plane á meðal kvikmyndaáhugamanna á netinu. Þegar framleiðendur myndarinnar fréttu af þessum mikla áhuga ákváðu þeir að taka upp fleiri atriði og gera myndina í leið- inni bannaða börn- unum innan 16 ára. Myndin, sem skartar Samuel L. Jackson í aðal- hlutverki, fjallar um liðsmann FBI sem reynir að halda mikilvægu vitni á lífi í flugvél sem er full af snákum. Talsmaður Brads Pitt segir ekkert hæft í þeim orðrómi að leikarinn hafi sést á veitingastað í París með mar og skrámur í andlitinu. Pitt, sem m.a. lék í slagsmálamyndinni Fight Club, snæddi í fjóra klukkutíma á veitingastaðnum með vini sínum. Leikarinn Harrison Ford segist ekkert ætla að setjast í helgan stein á næstunni. Ford er 63 ára og verður því löggildur eldri borgari eftir tvö ár. Hann lék í öllum áhættuatriðunum í nýjustu mynd sinni Firewall og segist ennþá vera nógu hraustur til að bíta frá sér á hvíta tjaldinu. „Að setjast í helgan stein miðast af því að maður hafi gert allt sem mann langar til að gera í starfi, en ég er ennþá að vinna. Ég er ekkert að fara að leggjast með tærnar upp í loftið,“ sagði Ford. Tónlistarmaðurinn Sting og rapparinn Kanye West verða aðalnúmerin á hinni árlegu djasshátíð í Stokk- hólmi. Hátíðin, sem fer fram 18. til 22. júlí, er einn stærsti tónlistar- viðburður ársins í Svíþjóð. ������������������ ������� ������� ��������� �� ������������������� ��������������������������������������� ���������������������������������� �������� ���
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.