Fréttablaðið - 05.05.2006, Side 29

Fréttablaðið - 05.05.2006, Side 29
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. GÓÐAN DAG! Í dag er föstudagurinn 5. maí, 125. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 4.47 13.24 22.05 Akureyri 4.17 13.09 22.04 Sterling-grill eru á sprengjuverði í Nóatúni þessa dagana. Grillið kostar 14.900 og kaupaukinn er veglegur, en það er kassi af pilsner, snakk, pylsur og kassi af kóki í gleri. Gasgrill eru einnig á tilboðsverði hjá ESSO-stöðv- unum. H&M Rowells er með lagerútsölu í Fellsmúla 28 sem er gamla World Class. Veittur er helmings- afsláttur af öllum vörum. Þetta er kjaraverð þar sem vörur H&M Rowells eru ódýrar fyrir. Notaðir bílar eru á tilboðsverði hjá Brimborg. Veitt eru 100 pró- senta lán og eru bílarnir seldir á lægra verði. Í dag er síðasti dagurinn á þessu góða tilboði. ALLT HITT [MATUR TILBOÐ] Stefán Úlfarsson hefur eldað fisk á Þremur Frökkum frá því staðurinn var opnaður árið 1989. Það sama er uppi á teningnum heima fyrir. Stefán á stóra fjölskyldu og heima hefur hann fimm munna að metta. Halda mætti að eftir langan vinnudag í eldhúsinu væri hann ekki spenntur fyrir áframhaldandi elda- mennsku. „Það er ekkert annað að gera þegar maður kemur heim en að halda veislunni áfram,“ segir Stefán. „Ég er vanur að elda þegar ég er heima en konan mín sér um það þegar ég er á vakt.“ Þetta líkar Stef- áni alls ekki illa enda er það hans helsta áhugamál að elda góðan mat. Og hvað skyldi hann hafa mestar mætur á að elda? „Fisk að sjálfsögðu, ég er orðinn háður honum,“ segir Stefán og hlær. „Plokk- fiskurinn og fiskibollurnar koma alltaf sterk- ar inn þegar metta þarf marga maga.“ Stefán tekur það þó fram að hann hafi gaman af flestum mat. Nefnir þar sérstaklega íslenska lambakjötið sem alltaf sé gott að fá. Uppáhaldsmatfiskur Stefáns er lúða og skötuselur. „Ég hef líka gaman af steinbítn- um, hann er þéttur í sér og það er gott að grilla hann,“ segir Stefán. Þegar vel ber í veiði má finna ýma furðufiska á matseðli Þriggja Frakka. „Við breytum matseðlinum daglega eftir því hvaða hráefni við erum með ferskt,“ segir Stefán. „Það er lykilatriði að vera með það sem best er á hverjum tíma, það margskilar sér í matargerðinni.“ „Jú, við fáum stundum furðulega fiska til okkar á Frakkana,“ segir Stefán. „Einn sá furðu- legasti sem ég hef fengið er guðlax. Þetta var þrjátíu kílóa fiskur, afar skrautlegur og fínn á bragðið.“ Steinbítsmaðurinn Stefán gerði svo vel að deila með okkur uppskrift að stein- bítspiparsteik. Uppskriftina er að finna inni á síðu 3. Fiskur í vinnunni – fiskur heima Stefán ber fram dýrindis steinbítspiparsteik. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KJÚKLINGUR PIPARSVEINSINS Önnum kafnir ungir menn hafa sjaldan mikinn tíma fyrir eldamennsku né mikla kunnáttu. Til að galdra fram góðan mat þarf hvorugt. MATUR 3 DIZA FLYTUR Á BETRI STAÐ Eftir langa vist í Ingólfs- stræti er hin gamalkunna verslun Diza flutt á Laugaveginn. LANGUR LAUGARDAGUR 8 www.66north.is REYKJAVÍK: Kringlan - Bankastræti 5 - Faxafen 12 GARÐABÆR: Miðhraun 11 - AKUREYRI: Glerárgata 32 Ungbarnafötin eru komin í nýjum litum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.