Fréttablaðið - 05.05.2006, Page 29
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn
5. maí, 125. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 4.47 13.24 22.05
Akureyri 4.17 13.09 22.04
Sterling-grill eru á sprengjuverði
í Nóatúni þessa dagana. Grillið
kostar 14.900 og
kaupaukinn er
veglegur, en
það er
kassi af
pilsner,
snakk, pylsur
og kassi af kóki
í gleri. Gasgrill
eru einnig á
tilboðsverði
hjá ESSO-stöðv-
unum.
H&M Rowells er með lagerútsölu
í Fellsmúla 28 sem er gamla
World Class. Veittur er helmings-
afsláttur af öllum vörum. Þetta
er kjaraverð þar sem vörur H&M
Rowells eru ódýrar fyrir.
Notaðir bílar eru á tilboðsverði
hjá Brimborg. Veitt eru 100 pró-
senta lán og eru bílarnir seldir
á lægra verði. Í dag er síðasti
dagurinn á þessu góða tilboði.
ALLT HITT
[MATUR TILBOÐ]
Stefán Úlfarsson hefur eldað fisk á
Þremur Frökkum frá því staðurinn var
opnaður árið 1989. Það sama er uppi á
teningnum heima fyrir.
Stefán á stóra fjölskyldu og heima hefur
hann fimm munna að metta. Halda mætti að
eftir langan vinnudag í eldhúsinu væri hann
ekki spenntur fyrir áframhaldandi elda-
mennsku. „Það er ekkert annað að gera
þegar maður kemur heim en að halda
veislunni áfram,“ segir Stefán. „Ég er vanur
að elda þegar ég er heima en konan mín sér
um það þegar ég er á vakt.“ Þetta líkar Stef-
áni alls ekki illa enda er það hans helsta
áhugamál að elda góðan mat.
Og hvað skyldi hann hafa mestar mætur á
að elda? „Fisk að sjálfsögðu, ég er orðinn
háður honum,“ segir Stefán og hlær. „Plokk-
fiskurinn og fiskibollurnar koma alltaf sterk-
ar inn þegar metta þarf marga maga.“ Stefán
tekur það þó fram að hann hafi gaman af
flestum mat. Nefnir þar sérstaklega íslenska
lambakjötið sem alltaf sé gott að fá.
Uppáhaldsmatfiskur Stefáns er lúða og
skötuselur. „Ég hef líka gaman af steinbítn-
um, hann er þéttur í sér og það er gott að
grilla hann,“ segir Stefán. Þegar vel ber í
veiði má finna ýma furðufiska á matseðli
Þriggja Frakka. „Við breytum matseðlinum
daglega eftir því hvaða hráefni við erum
með ferskt,“ segir Stefán. „Það er lykilatriði
að vera með það sem best er á hverjum tíma,
það margskilar sér í matargerðinni.“ „Jú,
við fáum stundum furðulega fiska til okkar
á Frakkana,“ segir Stefán. „Einn sá furðu-
legasti sem ég hef fengið er guðlax. Þetta
var þrjátíu kílóa fiskur, afar skrautlegur og
fínn á bragðið.“
Steinbítsmaðurinn Stefán gerði svo vel
að deila með okkur uppskrift að stein-
bítspiparsteik. Uppskriftina er að finna
inni á síðu 3.
Fiskur í vinnunni –
fiskur heima
Stefán ber fram dýrindis steinbítspiparsteik. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KJÚKLINGUR
PIPARSVEINSINS
Önnum kafnir ungir menn
hafa sjaldan mikinn tíma
fyrir eldamennsku né mikla
kunnáttu. Til að galdra fram
góðan mat þarf hvorugt.
MATUR 3
DIZA FLYTUR
Á BETRI STAÐ
Eftir langa vist í Ingólfs-
stræti er hin gamalkunna
verslun Diza flutt á
Laugaveginn.
LANGUR LAUGARDAGUR 8
www.66north.is
REYKJAVÍK: Kringlan - Bankastræti 5 - Faxafen 12
GARÐABÆR: Miðhraun 11 - AKUREYRI: Glerárgata 32
Ungbarnafötin
eru komin í nýjum litum