Fréttablaðið - 05.05.2006, Side 56
5. maí 2006 FÖSTUDAGUR32
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér á
síðunni má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
Einn frægasti tónleikasalur í heimi lauk upp dyrum
sínum fyrir almenningi þennan dag árið 1891. Carn-
egie Hall í New York hefur síðan hýst fjöldann allan
af tónleikum og keppa margir tónlistarmenn að því
að koma fram í þessum sögufræga sal.
Segja má að upphafstónleikarnir hafi gefið tón-
inn fyrir það sem koma skyldi. Þeim var stjórnað af
stórtónskáldinu Pyotr Ilyich Tchaikovsky og var hann
gestastjórnandi í húsinu alla fyrstu vikuna.
Carnegie Hall tónlistarhúsið er nefnt eftir Andrew
Carnegie sem hafði veg og vanda að byggingu þess.
Arkítektinn William B. Tuthill hannaði húsið sem
er talið eitt það síðasta í New York sem er byggt
eingöngu úr múrsteinum. Fegurð hússins, staðsetn-
ing þess á horni Sjöunda breiðstrætis og 57. strætis
og einstakur hljómburður eru öll talin hafa ýtt undir
velgengni hússins.
ÞETTA GERÐIST: 5. MAÍ 1891
Opnunartónleikar í Carnegie Hall
CARNEGIE HALL Í NEW YORK
ROBERT GERARD SANDS
(1954-1981) LÉST ÞENNAN
DAG.
„Hefndin verður
hlátur barnanna
okkar.“
Bobby Sands var liðsmaður
IRA sem dó úr hungri í
fangelsi eftir að hafa verið í
hungurverkfalli í 66 daga.
MERKISATBURÐIR
1639 Brynjólfur Sveinsson er
vígður Skálholtsbiskup.
1835 Fyrsta járnbrautin á megin-
landi Evrópu er opnuð milli
Brusselar og Mechelen.
1944 Mohandas Gandhi er frels-
aður úr fangelsi.
1945 Guðmundur Kamban rit-
höfundur er skotinn til bana
í Kaupmannahöfn.
1951 Flugvél sem hafði verið á
kafi í snjó á Vatnajökli í heil-
an vetur lendir í Reykjavík.
1961 Alan Shepard er fyrsti
Bandaríkjamaðurinn til að
fara út í geim.
1970 Eldgos hefst í Heklu.
2000 Össur Skarphéðinsson er
kjörinn formaður Samfylk-
ingarinnar.
Mikið verður um dýrðir í félagsheimil-
inu Logalandi í Reykholtsdal á morgun
þegar Lilja Margeirsdóttir heldur upp á
sjötíu ára afmælið og gullbrúðkaupsaf-
mæli með Flosa Ólafssyni leikara.
„Við höfum nú ekki haldið margar
stórar veislur. Ég var erlendis þegar ég
var fimmtug en er fyrirmunað að muna
hvað ég gerði þegar ég varð sextug. Ætli
við höfum ekki bara farið í leikhúsið,“
segir Lilja. Í ár verður því þó öðruvísi
farið enda þurfa hjónin ekki að leita
langt til að finna góða aðstöðu til veislu-
halda. „Nú búum við uppi í Borgarfirði
og rétt fyrir ofan okkur er heilt félags-
heimili sem mér datt í hug að nýta fyrir
veisluna. Þar verður stofnað til vinafagn-
aðar þar sem við reynum að skemmta
okkur sjálf enda mjög glatt og fjörugt
fólk sem við eigum von á í veisluna.“
Lilja á afmæli í dag og eru því liðin
akkúrat sjötíu ár frá því að hún kom í
heiminn í Þórshöfn í Færeyjum. „Það
var yndislegt að alast upp í Færeyjum.
Þær eru nánast eins og lítið sjávarþorp
hérna á Íslandi.“ Hún fluttist síðan heim
til Íslands þegar stríðinu lauk og kynnt-
ist Flosa hér heima á Íslandi. „Gullbrúð-
kaupið okkar er ekki fyrr en í haust þótt
við sláum þessu nú saman og höldum
upp á bæði tímamótin. Við giftum okkur
niðri í Lækjargötu 12, þar sem Glitnir er
núna með bílastæði, og vorum þá búin
að vera hringtrúlofuð í þrjú ár.“
Lilja og Flosi búa nú í Reykholts-
dalnum og hafa gert undanfarin sautján
ár. Lilja segir að þau kunni sérlega vel
við sig í sveitasælunni. „Fyrst ætluðum
við bara að fá okkur góðan og grösugan
móa fyrir hrossin. Svo kom bara í ljós
að okkur leið svo vel og vildum bara
vera þarna öllum stundum og þá var
ekkert erfitt að taka þessa ákvörðun.“
Reykholtsdalurinn er líka ekki svo langt
frá borginni og nýta hjónin sér það til
að sækja ýmislegt þangað sem ekki er
svo oft í boði í sveitinni. „Frá okkur er
ekki svo langt til Reykjavíkur. Við keyr-
um í leikhúsið og aftur heim á einu
kvöldi,“ segir Lilja en bætir við að
ferðalagið virðist vera Reykvíkingum
töluvert erfiðara eða leiðin frá Reykja-
vík eitthvað lengri en til borgarinnar.
Vinir og fjölskylda Lilju og Flosa úr
Reykjavík ætla þó líklega ekki að láta
það aftra sér í því að sækja veisluna.
Eins og áður segir verður hún haldin í
félagsheimilinu Logalandi í Reykholts-
dal á morgun og hefjast herlegheitin
klukkan 15.
LILJA MARGEIRSDÓTTIR: SJÖTUG Í DAG
Heilt félagsheimili á hlaðinu
LILJA MARGEIRSDÓTTIR HELDUR UPP Á AFMÆLIÐ Á MORGUN Stór afmælisveisla verður haldin á morgun í félagsheimilinu sem stendur rétt fyrir ofan
bæinn þeirra Lilju og Flosa sem grípa tækifærið og halda í leiðinni upp á gullbrúðkaupsafmæli. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
JARÐARFARIR
13.00 Helga Helgadóttir, Laugar-
ásvegi 57, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni
í Reykjavík.
13.00 Ólafur Sigurgeirsson
hæstaréttarlögmaður
verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju.
13.30 Guðríður Björnsdóttir,
Mýrarvegi 115, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akur-
eyrarkirkju.
14.00 Kolbeinn Bjarnason, Stóru-
Mástungu, Gnúpverja-
hreppi, verður jarðsunginn
frá Stóru-Núpskirkju.
15.00 Hannes Helgason, Aspar-
felli 8, verður jarðsunginn
frá Kópavogskirkju.
15.00 Jón Ólafsson, Prestastíg 8,
Reykjavík, áður Máva-
braut 12a, Keflavík, verður
jarðsunginn frá Grafarvogs-
kirkju.
ANDLÁT
Dagur Hannesson járnsmiður lést
sunnudaginn 30. apríl.
Sigurður G. H. Ingason, fyrrver-
andi póstrekstrarstjóri, Hvassaleiti
58, lést sunnudaginn 30. apríl.
Hafsteinn Hermanníusson and-
aðist á heimili sínu mánudaginn
1. maí.
Jóhanna Helga Hafsteinsdóttir
lést á heimili sínu, Birkihlíð 42,
mánudaginn 1. maí.
Lilja Guðmundsdóttir, Birkilundi
18, Akureyri, lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri mánudag-
inn 1. maí.
Margrét Vallý Jóhannsdóttir,
Bragagötu 36, Reykjavík, lést á
Landspítalanum við Hringbraut
mánudaginn 1. maí.
Sigurður Gíslason, Faxabraut 13,
Keflavík, lést á heimili sínu mánu-
daginn 1. maí.
Þuríður Hólmfríður Sigurjóns-
dóttir, síðast til heimilis á dvalar-
heimilinu Hvammi, Húsavík, lést
á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
mánudaginn 1. maí.
Guðjón Sigurbjörnsson, Arn-
arhrauni 16, Hafnarfirði, lést á
heimili sínu þriðjudaginn 2. maí.
Kristín Pálsdóttir, Ægisíðu 44,
Reykjavík, andaðist á Landspítal-
anum þriðjudaginn 2. maí.
AFMÆLI
Rebekka Rán
Samper mynd-
listarkona er 39
ára.
Pétur Þorsteins-
son prestur
Óháða safnaðar-
ins er 51 árs.
Sonja Werner Guðmundsdótt-
ir, Fossheiði 62, Selfossi, lést á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
þriðjudaginn 2. maí.
Eiríkur Hreinn Finnbogason,
Sléttuvegi 15, Reykjavík, lést mið-
vikudaginn 3. maí.
Stefán Karlsson handritafræðing-
ur er látinn.
Ástkær dóttir, fósturdóttir, systir, mágkona
og elskuleg frænka,
Lilja Guðmundsdóttir
Birkilundi 18, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að morgni
mánudagsins 1. maí. Útförin fer fram mánudaginn
8. maí kl. 13.30 frá Akureyrarkirkju.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hinnar látnu er bent á Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna.
Kristjana Kristjánsdóttir Birgir Laxdal
Guðmundur Örn Njálsson Guðrún Birna Jóhannsdóttir
Sjöfn Guðmundsdóttir Sigurður Áki Eðvaldsson
Anný Rós Guðmundsdóttir Birkir Freyr Stefánsson
Katrín Lind Guðmundsdóttir Jóhann Eyþórsson
Dagný Guðmundsdóttir og litlu frænd- og fóstursystkin.
Okkar ástkæra
Hrefna Magnúsdóttir
Fannborg 8, áður Melgerði 16, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn
8. maí klukkan 13.00.
Rögnvaldur Ólafsson Sigríður Júlíusdóttir
Lára Ingibjörg Ólafsdóttir
Fríður Ólafsdóttir
Sigrún Ólafsdóttir Halldór Jónsson
Sigríður Ólafsdóttir Þórður Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og
langafi,
Dagur Hannesson
járnsmiður,
lést sunnudaginn 30. apríl.
Sigurður Dagsson Ragnheiður Lárusdóttir
Bjarki Sigurðsson
Dagur Sigurðsson Ingibjörg Pálmadóttir
Lárus Sigurðsson Heba Brandsdóttir
og barnabörn.
70 ára er í dag, 5. maí, Siglfirðingurinn
Erla Óskarsdóttir
hjúkrunarkona,
Hlégerði 31, Kópavogi.
Af því tilefni dvelur hún og
eiginmaður hennar á
suðrænum slóðum.
70 ára afmæli