Fréttablaðið - 05.05.2006, Side 69

Fréttablaðið - 05.05.2006, Side 69
FRÉTTIR AF FÓLKI Nicole Richie, dóttir söngvarans og hjartaknúsarans Lionel Richie, hefur viðurkennt að hún sé meðvituð um grannvöxt sinn og segist ekki vilja vera vond fyrir- mynd ungra stelpna í dag. Richie hefur verið daglegur gestur á síðum slúðurblaðanna síðasta árið vegna snögglegs þyngdartaps. Stjarna sjónvarpsþáttanna Simple Life hefur leit- að sér hjálpar hjá læknum og næringarfræðingum og er staðráðin í því að bæta nokkrum kílóum á sig. Katie Holmes er í góðum málum eftir undirskrift kaupmála vegna brúðkaups síns og stórstjörnunnar Toms Cruise. Kaup- málinn hljómar upp á litla 300 milljarða íslenskra króna. Mikið fjölmiðlafár hefur verið í kringum samband þeirra og fyrst um sinn héldu menn að um auglýsinga- brellu væri að ræða en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Skötuhjúin eignuðust dóttirina Suri og ganga í það heilaga í sumar. Foreldrar Holmes eru glaðir yfir þessum fregnum og telja dóttur sína og barnabarn fjárhagslega vel settar ef í hart fer. Bandaríska leikkonan og fegurðardísin Halle Berry staðfesti það í viðtali við blaðið Extra að hún myndi ættleiða ef hún yrði ekki ólétt í bráð. Berry, sem hefur gengið í hjónaband tvisvar og skilið jafn oft, er nú kennd við fyrirsætuna Gabriel Aubry og voru þau bæði á lista People-tímaritsins yfir 100 kynþokkafyllstu manneskjur í heimi. Það yrði því ekki slæmt ef þau tvö ákveða að fjölga mannkyninu. Halle leikur aðalhlutverkið í einni af stórmyndum sum- arsins, X-men - the Last Stand, sem frumsýnd verð- ur í lok maí.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.