Tíminn - 23.10.1977, Page 17
Sunnudagur 23. október 1977
Héreru þau hjónin, Ingimar Ottósson og Guðbjörg Guömundsdóttir
hjá blómagarðshliði sínu, sem húsbóndinn hefur smfðað. Við sjáum,
aðhliðgrindin er gamalt kerruhjól, handfangið uppi á hjólinu er ak-
tygjabogi, en beizlisstengur eru til hliðar, hjá hjörum og læsingu
(við húshliðina). Og það er miklu víðar en i þessu garöshliði, sem
gestir, er koma að Vorsabæjarhjáleigu, getaséðmerki um hagleik
og hugkvæmni Ingimars bónda. Timamynd Róbert.
Og ég hef alla ævi unnið erfiðis-
vinnu, svo ég tók þaðekki nærri
mér.
— Þér hefur ekki gengið neitt
illa að semja þig að verkum,
sem þú hafðir ekki vainzt fyrr
en þú komst hingað?
— Mér gekk það vel, enda var
ég mjög heppinn, þar sem
tengdafaðir minn var og er hér,
mér til leiðsagnar. Ég tel að
ekki geti hver sem er orðið
bóndi, án þessað njóta leiðbein-
inga þeirra sem reynsluna hafa.
Það eru ekki allir jafnheppnir
og ég, þegar ég kom hingað til
tengdaforeldra minna. Eitt af
því sem ég þurfti alveg að læra
var meðferð skepna. Ég var
henni algerlega óvanur, þekkti
ekkert til hennar, en ég var
nokkuð fljótur að tileinka mér
þetta og að bera skynbragð á,
hvernig skepnunum liði eða
hvort einhverju væri áfátt um
hriðingu þeirra. Við, tengda-
feðgarnir, vinnum að allri
gripahirðingu sameiginlega en
annars er biiskapnum skipt
þannig að hann er með sauðféð
og ég með kýrnar.
— Hefur þér ekki þótt árferðið
heldur misgott tÚ búskapar
þessi sjö ár siðan þú komst
hingað?
— Ég var heppinn fyrstu árin,
bá var mjög gott árferði en svo
vita vist allir hvernig sumurin i
fyrra og hitteðfyrra voru hér á
Suðurlandi, alltaf sifelldar
rigningar. I fyrra voru heyin lé-
leg, en siðastliðið sumar var al-
veg sæmilegt, þótt illa liti út
framan af. Við náöum að afla
góðra heyja siðari hluta
sumarsins i sumar, svo útkom-
an er öll önnur en i fyrra. Hitt er
annað mál, að þetta krefst mik-
illar vinnu og góðra tækja, þar
sem nota verður hverja einustu
stund til heyskapar og ekki sizt,
þegar þær eru bæði fáar og
strjálar, eins og verið hefur
sumrin að undanförnu.
— Ég sé að þú smíðar hér sitt
af hverju, allt frá garðhliði til
votheysturns.
— Já, ég geri þetta eftir þvi
sem þarf, ogauk þess þykir mér
það gaman.
— Hvað eruð þið með stórt bú
hérna?
— Það eru tuttugu og tvær
mjólkandi kýr hér núna og
verða lfklega tveimur fleiri i
vetur. Sauðféð er þetta um átta-
tiu kindur. Hér hefur ekki verið
rekið á f jall um all-langt árabil,
heldur gengur féð i heimahög-
um. Landið þolir þetta vel, þvi
hér er grösugt og gott land.
— Og svo er einhver hesta-
eign?
— Já, dálitið er af þeim, bæði
tamdir og ótamdir, við erum
með fjóra reiðhesta á járnum og
notum þá við búskapinn smöl-
um rfðandi og förum á hestum
til þess að huga að lambfé, auk
þess þykir börnunum gaman að
bregða sér á hestbak þegar færi
gefst, — og reyndar fullorðna
fólkinu lika.
— Svo eruð þið h'ka með hross
i uppvexti?
— Já, við eigum merar, sem
eru latnar eignast folöld en þó er
varla hægt að segja að hér sé
um stóð að ræða, þetta er ekki
svo stórt i sniðum. Þörf fyrir
hesta er ekkert mjög mikil
hérna en hins vegar er ákaflega
gaman að þessu.
— Þarf ekki alltaf að gefa
hestum hér á veturna?
— Jú, þess þarf, en annars er
landið hér mjög gott fyrir úti-
gangshross og sjaldgæft og er
verði haglaust. Við látum hross-
in njóta mikils frjálsræðis, þau
koma hér heim að húsum, ef
þau lystir m.a. i vondum veðr-
um ogþá er þeim gefið, en siðan
fara þau á hagann aftur, þegar
þeim sýnist. svo. En reiðhest-
ana höfum við á húsi og sömu-
leiðis hross sem verið er að
temja.
Gaman að rækta og
laga til
— Nú varst þú orðinn full-
mótaður maður, þegar þú hófst
búskap. Hvað hefur þér þótt
skemmtilegast, — og hvað
kannski minnst gaman — af öllu
því sem þú hefur þurft að fást
við, siðan þú komst hingað?
— Ég held að ég hafi minnsta
ánægju af kindum, en mesta af
hestum. Ég hef ákaflega gaman
af hrossum, en timinn leyfir
ekki miklar útreiðar. önnur
störf eru mér siður en svo leið.
Það er gaman að fást við hey-
skap, þegar veðrátta er sæmileg
eða jafnvel góð. Og mér þykir
ákaflega gaman að rækta jörð,
endurbæta og laga i kringum
sig.
Ég var kominn á fimmtugs-
aldur, þegar ég byrjaði á þessu,
ogþað ermjög erfittfyrir mann
á þeim aldrei að hefja bú-
rekstur og hafa aldrei komið
nálægt sliku áður.
— En þú sérð samt ekkert
eftir þvi að hafatekið þér þetta
fyrir hendur?
— Nei, siður en svo. Ég er
mjög ánægður með hlutskipti
mitt hér, og mun halda þessu
áfram á meðan heilsa og kraft-
ar leyfa.
—VS
17
Hjartavernd þakkar
Maður sem ekki vill láta nafns hundraðtuttuguógfimmþúsund-
sins getið, hefur nýlega gefið krónur — og er honum hér með
Hjartavernd kr. 125.000.00 — eitt- færðar beztu þakkir fyrir höfðing-
lega gjöf.
Þá hafa tvenn systkmi fært
samtökunum kr. 9.«70.68. sem
þau öfluðu með hlutaveltu og eru
þeim einnig færðar beztu þakkir.
Veríð velkomin!
Nú getum við boðið þessi finnsk-hönnuðu sófa-
sett með leðuráklæði. Framleiðum þau einnig
með áklæðum eftir eigin vali. Eigum margar
tegundir af leðursófasettum.
Litið inn!
Datsun 120 Y Station
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Símar 8-45-10 & 8-45-1 1
SPARIÐ BENZÍN OG KAUPIÐ
Rúmgóður — Hár
Sparneytinn
Góðir
greiðs/u-
skilmálar
ef samið
er strax
íi&EÍIBíS’E&ElIIil
Auglýsingadeild Tímans Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla