Fréttablaðið - 21.08.2006, Side 10
21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR
Við sérhæfum okkur
í vönduðum og fjölbreyttum
námsgögnum fyrir öll skólastig.
www.skola.is
- vefverslun og
skiptibókamarkaður
Smiðjuvegi 5 • 200 Kópavogur
Sími 585 0500
Opið 9-18 virka daga
GOTT VERÐ
Á ALLRI
SKÓLAVÖRU
O
dd
i h
ön
nu
n_
V
O
B6
62
5
Dalvegi 4 • Kópavogur • Sími 564 5700
HEITIR POTTAR
Ný sending komin!
Vorum að fá nýja sendingu af
frábærum pottum (skeljum).
Tvær stærðir:
1,94 x 2,00 5 manna
2,26 x 2,26 6–7 manna
VÍSINDI, AP Gufuhvolf jarðar yfir
suðurheimskautinu mun verða allt
að fimmtán árum lengur en áður
var talið að jafna sig, að sögn vís-
indamanna hjá veðurstofu Sam-
einuðu þjóðanna.
Göt í ósonlaginu eru til komin
vegna mengunar frá ísskápum,
loftræstikerfum og öðrum tækj-
um. Þau valda því að hættulegir
sólargeislar komast óhindraðir til
jarðarinnar, en of mikið útfjólu-
blátt sólarljós getur valdið húð-
krabbameini og drepið örlitlar
plöntur sem gegna mikilvægu
hlutverki í upphafi fæðukeðjunn-
ar.
Áður höfðu vísindamenn talið
að götin gætu verið horfin árið
2050, en nú trúir Geir Braaten,
sérfræðingur á veðurstofu Sam-
einuðu þjóðanna, að svo verði ekki
fyrr en árið 2065.
„Gatið í ósonlaginu yfir suður-
heimskautinu hefur ekki stækkað
síðan seint á tíunda áratugnum, en
búast má við að stór ósonlagsgöt
haldi áfram að myndast áratugum
saman,“ sagði Braaten á föstudag.
Gat hefur myndast í ósonlaginu
yfir suðurheimskautinu í vetrar-
lok í ágúst á hverju ári allt frá
miðjum níunda áratugnum, og er
það yfirleitt stærst seint í sept-
ember. - smk
Lengra þangað til gatið í ósonlaginu lokast:
Tekur 15 ár til viðbótar
GEIR O. BRAATEN Vísindamaður á veðurstofu Sameinuðu þjóðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Actavis hefur ákveðið að
byggja eða kaupa lyfjaverksmiðju
til framleiðslu á krabbameinslyfj-
um. Verður það gert til að bregðast
við miklum fyrirsjáanlegum vexti
hjá Sindan, sem Actavis keypti í
vor, og almennt á sviði krabba-
meinslyfja í heiminum. „Sindan
hefur náð gríðarlega góðum
árangri og vaxið um fjörutíu pró-
sent á milli ára, sé miðað við fyrstu
sex mánuði ársins í ár miðað við í
fyrra,“ segir Halldór Kristmanns-
son, yfirmaður almanna- og fjöl-
miðlatengsla hjá Actavis.
„Ekki er hægt að nýta aðrar
verksmiðjur Actavis í framleiðslu
á krabbameinslyfjum, þar sem slík
starfsemi þarf að vera algerlega
einangruð. Því höfum við ákveðið
að fara út í þetta en ekki hefur
verið tekin ákvörðun um hvar
verksmiðjan verður staðsett.“
Halldór segist ekki geta sagt til
um hversu mikið það komi til með
að kosta að byggja eða kaupa slíka
verksmiðju. Tilkoma verksmiðj-
unnar og kaup Actavis á Sindan
nægi þó til að koma Actavis í hóp
tveggja til þriggja öflugustu
félaga á sviði þróunar og fram-
leiðslu samheitakrabbameinslyfja
heims. - hhs
HALLDÓR KRISTMANNSSON Halldór er
yfirmaður almanna- og fjölmiðlatengsla
hjá Actavis.
Framkvæmdir vegna vaxtar hjá Sindan, dótturfélagi Actavis í Rúmeníu:
Kaupa eða reisa nýja verksmiðju