Fréttablaðið - 21.08.2006, Síða 24
21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR4
Guðmundur Óli Scheving
SKRIFAR UM MEINDÝR OG MEINDÝRAVARNIR
Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að senda fyrirspurn á netfangið gudmunduroli@simnet.is.
Ein þekktasta flóin sem er á ferðinni
í dag á Íslandi er staraflóin (cerat-
ophyllus gallinae) sem fer á stjá
þegar fuglar eru farnir úr hreiðrinu
og stundum geta liðið allt að tvö ár
þangað til hún fer af stað. (Fjallað var
um starann og flóna í pistli í Frétta-
blaðinu mánudaginn 1. maí 2006).
Maríuerla, skógarþröstur og fleiri
fuglar bera með sér flær.
Mítlar sem lifa á fuglum, eins og
t.d. lundalús og aðrar fuglaflær, hafa
fundist á hundum og köttum og geta
dýrin geta borið þessa óværu inn í
híbýli manna. Á vorin og fram eftir
sumri eru kettir og hundar iðnir við
að bera nagdýra- og fuglaflær inn í
húsin, en flærnar berast auðveldlega
með dýrunum. Þar fara flærnar á
flakk og finnast oft í rúmum, gardín-
um og fatnaði. Nagdýra- og fuglaflær
lifa á blóði manna og gæludýra og
geta lifað vikum saman innanhúss.
Bókalús (atropos pulsatoria),
skæðalús (lepinotus inquilinus)
og ryklús(troctes divinatorius)
Bókalýs (corrodentia) teljast til ryk-
lúsa (psocoptera). Þetta er ættbálk-
ur mjög lítilla skordýra og eru með
minnstu skordýrum sem lifa hér á
landi. Þær hafa bitmunn og langa
fálmara og eru vængjalausar eða
með óþroskaða vængi. Þær þrífast
vel í miklum raka.
Bókalýs skiptast í: Bókalús,
skæðalús, og ryklús eða svokallaða
parketlús. Þær eru mjög ólíkar í útliti
og ætti fólk að taka sýni þegar þessi
dýr koma í heimsókn og fara með á
Náttúrufræðistofnun til greiningar.
Oftast er raki vandamálið og hafa
til dæmis komið upp tilfelli í nýjum
húsum þegar gólfefni er lagt áður en
plata og veggir hafa þornað nægjan-
lega. Hægt er að losna við þessi dýr
með góðri loftræstingu. Fáið ykkur
rakamæli og komið jafnvægi á raka-
stig í íbúðum, þá hverfa þessi dýr.
Hryggleysingjar
Það eru líka til hryggleysingar sem
erta, bíta eða stinga fólk. Í þessum
hópi má nefna lirfu fuglablóðagða
sem þroskast í vatni og eru ýmsir
andfuglar hýslar hennar en hún
ruglast oft á fuglsskinni og manns-
hörundi. Bit hennar veldur kláðaból-
um hjá fólki. Erlendis er þetta þekkt
fyrirbæri og er kallað sundmanna-
kláði. Fólk ætti að varast aðstæður
eins og t.d. náttúrulegar útilaugar og
sundstaði þar sem ekki er reglulega
hreinsað og klórað. Ýmsar mítlateg-
undir sem tilheyra hópi hryggleys-
ingja erta, stinga og bíta fólk.
Gæludýr
Í gæludýrabúðum er hægt að fá
sérstakar sápur til að þrífa gæludýr.
Muna þarf eftir því að sama lyf hent-
ar ekki öllum dýrategundum. Rottu-
maur eða svokallaður hitabeltis-
rottumaur getur borist til okkar með
ýmsum gæludýrum og eru stökkmýs
gott dæmi um það. Ungur eigandi
stökkmúsar á Íslandi varð fyrir þeirri
óskemmtilegu lífsreynslu fyrir nokkr-
um árum að fá á sig rottumaur af
stökkmús en maurinn kom sér fyrir
í rúmi hans, fjölgaði sér snarlega
og saug úr honum blóð. Ef skipt er
reglulega um efni í botni búra og
hreiðurgerðarefni má minnka líkur
á að óværa komist á dýr í búrum.
Það þarf að hafa vakandi auga með
gæludýrunum okkar því þeim líður
illa ef flær og maurar og lýs herja á
þau.
Viðvörunarorð
Þegar fólk þarf að fá til sín mein-
dýraeyði eða garðúðara þá skal alltaf
óska eftir að fá að sjá starfsskírteini
útgefið af Umhverfisstofnun og eit-
urefnaleyfi gefið út af lögreglustjóra/
sýslumanni og það mikilvægasta er
að viðkomandi hafi starfsleyfi frá
viðkomandi sveitarfélagi. Athugaðu
hvort öll skírteini séu í gildi. Félag-
ar í Félagi meindýraeyða eru með
félagsskírteini á sér. Fáðu alltaf nótu
vegna viðskiptanna.
Réttindi meindýraeyða og garð-
úðara frá erlendum ríkjum og félaga-
samtökum gilda ekki á Íslandi.
Heimildir: Upplýsingar og fróðleikur
um meindýr og varnir 2004
Pöddur, Rit Landverndar nr. 9 1989
Stóra skordýrabók Fjölva 1974
Meindýr í húsum og gróðri 1944
Maðurinn er hýsill fyrir... lýs, flær og maura - seinni hluti
Málningarbakka
haldið hreinum
Á VEF HÚSASMIÐJUNNAR ERU RÁÐ
SEM GOTT ER AÐ HAFA Í HUGA VIÐ
MÁLUN.
Byrjið að
setja álpappír
í málninga-
bakkann eða
sambæri-
legt ílát og
gangið vel frá
honum svo hann hreyfist ekki til
þegar verið er að mála. Stundum
er gott að nota tvö lög af pappír
svo málningin smjúgi ekki í gegn.
Þegar bakkinn hefur verið notaður
er auðvelt verk að losa pappírinn
af bakkanum, brjóta hann saman
og henda. Hafi málning komist í
bakkann borgar sig að skola hann
með heitu vatni eða nota á hann
þess til gerðan hreinsivökva til
að ná málningunni burt. Nánar á
www.husasmidjan.is
Sleði undir vínið
GAMLIR HLUTIR GETA GENGIÐ Í END-
URNÝJUN LÍFDAGA
Allir unnendur góðra vína ættu að
eiga vínrekka á heimilinu. Vínið geym-
ast betur enda þornar tappinn ekki ef
flöskurnar liggja á hlið. Útlit vínrekka
getur verið æði fjölbreytt og hönnun
þeirra allt frá einföldum viðarrekkum
frá Ikea til nýstárlegra ál og plastrekka
frá heimsfrægum hönnuðum.
Á veitingastaðnum Pottinum og pönn-
unni hangir æði fallegur og óvenjuleg-
ur vínrekki á vegg. Sá er búinn til úr
gömlum sleða sem fengið hefur nýtt
hlutverk eins og sjá má á myndinni.
Vínrekki úr gömlum sleða sem hangir á
veitingastaðnum Pottinum og pönnunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Efni rannsakað hjá Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins rannsókn nr H85/216
Type A og Type B
Fæst hjá byggingavöruverslunum um land allt.
Smiðjuvegur 4a • Sími 551 5960
��
���
��
�
��
��
PGV ehf. ı Bæjarhrauni 6 ı 220 Hafnafjörður ı Sími: 564 6080 ı Fax: 564 6081 ı www.pgv.is
PGV ehf. sérhæfir sig í smíði glugga,
hurða, sólstofa og svalalokanna úr
PVC-u
Öllum framleiðsluvörum PGV fylgir
10 ára ábyrgð
Gluggarnir eru viðhaldsfríir og á
sambærilegum verðum og gluggar
sem stöðugt þarfnast viðhalds
GLUGGI TIL FRAMTÍÐAR …
• ENGIN MÁLNINGAVINNA
• HVORKI FÚI NÉ RYÐ
• FRÁBÆR HITA OG HLJÓÐEINANGRUN
• FALLEGT ÚTLIT
• MARGIR OPNUNARMÖGULEIKAR
• ÖRUGG VIND- OG VATNSÞÉTTING
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �