Fréttablaðið - 21.08.2006, Qupperneq 42
21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR22
Hér er um að ræða einstakt hús í hjarta Inn-bæjarins á gatnamótum tveggja elstugatna bæjarins Hafnarstrætis og Aðal-
strætis. Húsið er reisulegt timburhús byggt árið
1900 af Sigtryggi Jónssyni. Húsið skiptist í dag í
tvær íbúðir, annars vegar efri hæð og ris, og hins
vegar neðri hæð og kjallara. Báðar íbúðirnar eru
mjög rúmgóðar og bjartar, með mikilli lofthæð og
mörgum gluggum. Heildarstærð eignarinnar er
364,5 fm sem skiptist í 185,6 fm efri íbúð og 178,9
fm neðri íbúð.
Efri íbúð: Gengið er inn í íbúðina af verönd á norð-
austur horni hússins. Þar er komið inn á flísalagða
forstofu. Fallegur stigi og stigauppganga er upp á
hæðina. Lítið þvottahús er á stigapalli á hæðinni.
Aðalhæð íbúðarinnar skiptist í tvö svefnherbergi,
stofu, sjónvarpstofu og eldhús, borðstofu og hol í
einu opnu rými. Upprunalegar gólffjalir eru á hæð-
inni að mestu og hafa þær verið pússaðar upp.
Upprunalegar loftfjalir eru í loftum og á veggjum
eru brjóstlistar og veggfóður á hluta. Á eldhúsi eru
nýrri gólffjalir og baðherbergi er dúkur. Á baðher-
bergi er baðkar og eru öll tæki á baði í „gömlum
stíl“. Í eldhúsi er ný innrétting og úr borðstofu er
farið út á svalir til suð-vesturs. Úr holi er stigi upp í
ris. Risið er að mestu eitt stórt opið rými en þar er
þó stúkað af eitt svefnherbergi og lítið salerni. Þar
væri hægt að fjölga herbergjum væri vilji til þess.
Gólffjalir eru þar á gólfum og bitarnir í loftinu sjást
sem setur skemmtilegan svip á risið. Vandað hef-
ur verið til frágangs allrar lýsingar en góð halogen
lýsing er í risinu. Risið skiptist annars í eitt svefn-
herbergi, salerni, dagstofu, lesstofu og skrifstofu-
og gestarými/svefnpláss.
Neðri íbúð: Gengið er inn í íbúðina á suð-vestur
horni hússins en einnig er inngangur af verönd á
austurhlið. Forstofan er rúmgóð og úr henni er
einnig farið niður í kjallara. Hæðin skiptist í þrjú
svefnherbergi, baðherbergi, hol, stofu eldhús og
borðstofu. Upprunalegar gólffjalir eru á íbúðinni að
mestu, brjóstlistar á veggjum og veggfóður að
hluta. Úr stofu/borðstofu er farið út á stóra verönd
til austurs. Í eldhúsi er nýleg innrétting. Úr forstofu
er farið niður í kjallara. Í kjallara er þvottahús, eitt
svefnherbergi og stórt opið rými sem gæti verið
notast sem stofa. Nýlegar flísar eru á kjallaranum
og fallegir pússaðir trébitar setja fallegan svip á
rýmið. Í kjallara væri hægt að fjölga svefnherbergj-
um eða jafnvel gera auka-íbúð. Austast í kjallara er
sameiginlegt rými sem báðar íbúðir hafa aðgang
að. Líkt og efri íbúðin þá er hátt til lofts og vítt til
veggja, og íbúðin er björt þar sem gluggar eru
bæði stórir og margir.
Lóðin: Lóðin er stór, skráð 2.217,0fm og er eign-
arlóð og auk þess að vera flötin í kringum húsið
nær hún töluvert upp í brekkuna. Þessi eign var
endurnýjuð frá grunni fyrir um áratug síðan og var
mjög hagalega að allri vinnu staðið til að viðhalda
upprunalegu útliti hússins.
Skoðið myndirnar á www.kaupa.is
Hvammur - Amarohúsinu
Hafnarstræti 99-101,
600 Akureyri - Sími 466 1600
Opið virka daga 9-17
Sigurður Sveinn Sigurðsson Löggiltur fasteignasali
Einstakt hús í hjarta Akureyrar
Fr
um
– Mest lesið
Þetta gæti tekið tíma
Er fasteignin þín ekki í mest lesna fasteignablaðinu?
Þegar hægist um á fasteignamarkaði er mikilvægara en nokkru sinni að auglýsa
á besta staðnum. Samkvæmt nýjustu könnun Gallup* lesa 40% fleiri Íslendingar á
aldrinum 25–49 ára Allt-fasteignir en Fasteignablað Morgunblaðsins. Vertu viss
um að eignin þín nái athygli sem flestra!
*Samkvæmt könnun Gallup, maí 2006
F
í
t
o
n
/
S
Í
A