Fréttablaðið - 21.08.2006, Side 47
MÁNUDAGUR 21. ágúst 2006 27
Arkitektinn: Albína Thordarson
ALBÍNA THORDARSON ARKITEKT TELUR ÞAÐ UNDIRSTÖÐU
Í ARKITEKTÚR AÐ FÓLKI LÍÐI VEL Í HÚSUM HVORT SEM ER
VIÐ LEIK EÐA STÖRF.
„Byggingar eru rammi utan um líf og athafnir fólks, hvort
sem um verksmiðjur, íbúðarhús, skrifstofubyggingar,
skóla eða glæsibyggingar er að ræða. Öll hús snúast
um fólk,“ segir Albína. Hún bendir á að hönnun húss sé
fyrsta stigið í þeirri flóknu framkvæmd sem bygging húss
sé og upphafið ráði miklu um hver árangurinn verði.
Ekki kveðst hún þó eiga uppskrift að byggingu frekar en
aðrir. „Það er ekki þannig að ég hafi ákveðnar línur eða
form, sem ég tel að byggingar eigi að fylgja. Hins vegar
er margt sem hefur áhrif á hönnun mína, bæði beint
og óbeint. Það eru þættir í notkun, umhverfi, nágrenni,
fortíð og framtíðarsýn sem hafa áhrif á form, rými og
efnisval. Tæknilegar kröfur svo sem viðhald eða ending
hafa einnig áhrif og síðast en ekki síst fjárhagurinn.
Ég legg áherslu á að byggingar falli vel að landi,
lóð og umhverfi sínu og ekki síst að starfseminni sem
í þeim á að vera. Því þarf góð samvinna að vera fyrir
hendi við aðra hönnuði og byggingarverktaka en þó
reynir fyrst og fremst á samvinnuna við verkkaupann
sjálfan.“
Aðaðalatriðið að fólki líði vel
Orlofshús Kennarasambands Íslands í Heiðarbyggð í Hrunamannahreppi eru frá árinu 2000. Þar var horfið frá ýmsum hefðum í
efnisvali í sumarbústöðum og reist íbúðarhús með öllum þægindum sem fólk á að venjast heima fyrir. MYND/LÁRUS KARL INGASON
Leikskólinn Álfasteinn við Háholt í Hafnarfirði er fjögurra deilda
skóli, byggður eftir tillögu sem hlaut 1. verðlaun í samkeppni
árið 1999. Deildirnar eru í álmum sitt hvoru megin við miðju-
byggingu með sameiginlegu rými. MYND/ALBÍNA
Þetta einbýlishús í Lindahverfi í Kópavogi hlaut viðurkenn-
ingu umhverfisráðs Kópavogs árið 2000 fyrir hönnun. Húsið
stendur á hornlóð í miklum halla og sést frá öllum hliðum og
ofanfrá. Útveggir eru klædddir íslensku grágrýti, sedrusviði og
corten-stáli sem ryðgar að vissu marki. Lóðin er viðhaldslítil,
eins og húsið sjálft.
32.700.000
Stórglæsileg sérhæð á besta stað í Kópavogi. Íbúðin er 119,2 fm, 4ra herbergja með sérinngangi beint af
götu. Íbúðin er hönnuð af arkitekt.
Opið hús í dag milli kl. 18:00 og 19:00.
Halla og Björn taka vel á móti ykkur.
Fr
u
m
Opið hús í dag kl 18:00 - 19:00
Sólarsalir 1 - Kópavogi
Saga Fasteignir ehf. - Sími 414 8800 - www.sagafasteignir.is
Fr
um
Hlíðasmára 14 - S. 414 8800
Guðmundur Þórðarson hdl & löggiltur fasteignasali
Landið
KIRKJUVEGUR - REYKJANES-
BÆR
Glæsileg 75 fm 3ja herb. íbúð á efri
hæð. Flott eldhús. Gegnheilt parket.
Hátt til lofts. Ofnar, lagnir og raf-
magn yfirfarið. Verð 11,9 millj.
FAXABRAUT - REYKJANES-
BÆR
Fallegt og velviðhaldið 137 fm ein-
býli á einni hæð ásamt 42 fm bílskúr
með gryfju, samtals 170 fm. Fjögur
svefnherbergi. Góð staðsetning.
Verð 27,9 millj.
SKÓLABRAUT - REYKJANES-
BÆ
Ný og vönduð 90 fm 3ja herb. íbúð á
efri hæð í fjórbýli. Stórkostlegt útsýni
yfir Keflavík og út á haf. Eikarinnrétt-
ingar, parket og flísar. Gullfalleg
eign. LAUS EFTIR 1 MÁN. Verð 16,7
millj.
VOGAGERÐI - VOGUM
Spennandi kostur - leigumöguleikar.
133 fm íbúð, 42 fm bílskúr með
gryfju, 19 fm geymsla og u.þ.b. 90
fm tæplega fokhelt íbúðarrými undir
húsi, samtals 265 fm. Skjólgott og
sólríkt í fallegum bakgarði. Verð
27,8 millj.
Einbýli
LAUFBREKKA - KÓPAVOGUR
6 herb. 189 fm einbýlishús í botna-
langa. Kyrrlátur staður í fallegur
hverfi. Hátt til lofts í stofu og borð-
stofu. Tvö baðherb. Bílskúrsréttur,
verönd og garðskáli. Fallegt útsýnis.
Verð 39,8 millj.
Hæðir
LANGHOLTSVEGUR - REYKJA-
VÍK
Mjög falleg hæð í tvíbýlishúsi á góð-
um stað. Íbúðarherbergi með góða
leigumöguleika. Verð 22,0 millj.
4ra herbergja
HOLTABYGGÐ - HAFNAR-
FJÖRÐUR
Frábærlega staðsett4ra herb. íbúð á
neðri hæð í fjórbýli. Verönd með
skjólveggjum. Kyrrsælt hverfi og 5
mín. gangur á golfvöllinn. Stutt í
skóla og flesta þjónustu. LAUS
STRAX Verð 22,9 millj.
FURUGRUND - KÓPAVOGUR
Falleg 3ja herb. íbúð á 1. hæð ásamt
13 fm herbergi og 13 fm íbúðarher-
bergi með snyrtiaðstöðu. Góðir
leigumöguleikar. Stórar suðvestur-
svalir. Stutt í skóla og helstu þjón-
ustu. Verð 17,9 millj.
BURKNAVELLIR - HAFNAR-
FJÖRÐUR
Mjög falleg 4ra herb. 114 fm neðri
hæð í fjórbýli á kyrrlátum stað í botn-
langa. Viðarinnréttingar og flísar á
gólfum. Skjólgóð sólbaðsaðstaða
og fallegt útsýni. Skipti möguleg á
3ja herb. íbúð. Verð 27,9 millj.
3ja herb.
FERJUBAKKI - REYKJAVÍK
Vel skipulögð 3ja herb. íbúð á 2.
hæð á rólegum og góðum stað.
Suðursvalir. Stutt í helstu þjónustu.
Verð 15,5 millj.
2ja herb.
HRAUNBRÚN - HAFNAR-
FJÖRÐUR
HLÝLEG OG FALLEG 56 fm íbúð
frábærum stað við Víðisstaðartún.
Sérlega sólsæl verönd út frá stofu
bak við hús. Smart viðarinnrétting í
eldhúsi. Rólegt og fallegt nágrenni,
stutt í flesta þjónustu. GÓÐ EIGN
SEM VERT ER AÐ SKOÐA. Verð
14,9 millj.