Fréttablaðið - 21.08.2006, Qupperneq 60
21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR40
Til hvers að vera
í sumarfríi þegar
það er miklu meira
gaman í vinnunni…
Zúúper mætir aftur mánudaginn 21. ágúst kl. 07.00.
„Ég væri til í að eiga hús eins og systir mín á í Danmörku. Það er virkilegt draumahús,“
segir Hermann eða Hemmi Gunn eins og við þekkjum hann flest. „Húsið er í gróðursælu
og notalegu einbýlishúsahverfi og er 220 fermetrar á tveimur hnæðum. Það finnst mér
vera mátuleg stærð. Það er allur munaður í húsinu, svo sem gufubað, heitur pottur og
svokallað „hobbyherbergi“. Það sem heillar mig þó mest við húsið er frumskógurinn inni
í stofu. Það er sem sagt herbergi með glerveggjum sem er eiginlega inni í stofunni þar
sem er þvílíkur frumskógargróður, páfagaukar og apar. Þannig að maður er kominn út í
villta náttúru þegar maður situr í stofunni og horfir í gegnum glerið. Þetta hús nær því að
sameina náttúrulegt eðli mitt við nautnasegginn í mér.“
Hemmi nýtur þess að hafa það gott í náttúrunni og ef hann ætti að flytja húsið til
Íslands er hann ekki í nokkrum vafa hvar hann myndi staðsetja það. „Á fallegasta stað
á Íslandi, Haukadal í Dýrafirði. Ef ég neyddist með það suður myndi ég koma því
fyrir efst í Árbæjarhverfinu, þar sem ég bý núna, til þess að hafa Rauðavatn og
Heiðmörk í næsta nágrenni. Ég bara verð að hafa náttúruna í kringum mig. Til
dæmis þegar ég fer í sund þá fer ég helst í sundlaugina í Hveragerði því þar er
maður staddur í náttúrunni, með tréin hangandi yfir sér og fjöllin í baksýn.“
DRAUMAHÚSIÐ MITT HERMANN GUNNARSSON DAGSKRÁRGERÐARMAÐUR
Verð að vera í tengslum við náttúruna
Hemmi Gunn segir hús systur sinnar vera draumahúsið sitt.
SELDAR EIGNIR Á
AKUREYRI*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisins.
20
15
10
5
0
FJÖLDI
30/6-
6/7
15
7/7-
13/7
9
14/7-
20/7
6
21/7-
27/7
11
28/7-
3/8
10
4/8-
10/8
4
Sveitarfélagið Álftanes hefur
ákveðið að standa fyrir arki-
tektasamkeppni.
Keppnin er haldin í samstarfi við
Arkitektafélag Íslands um deili-
skipulag fyrir blandaða íbúabyggð
og verslunarhverfi.
Á svæðinu er til dæmis áform-
að að byggja allt að 40 þjónustu-
íbúðir sem munu tengjast þjón-
ustumiðstöðvum fyrir félags- og
heimaþjónustu.
Af því tilefni óskar atvinnu-
málanefnd og stýrihópur um arki-
tektasamkeppni eftir samstarfs-
aðilum um uppbyggingu eða
rekstur slíkra búsetuúrræða.
Einnig auglýsir sveitafélagið eftir
aðilum til verslunarreksturs, þjón-
ustu- og skrifstofureksturs, svo
fátt eitt sé nefnt. Áhugasömum er
bent á að senda upplýsingar á
skrifstofu Sveitarfélagsins Álfta-
nes.
Keppni um
deiliskipulag
Loftmynd af Álftanesi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNTASKÓLINN Í REYKJAVÍK
Elsta hús og jafnframt aðalbygging Menntaskólans í Reykjavík var vígð árið
1846 og á því 160 ára afmæli á þessu ári en arkitektinn var danskur eins
og reyndin var með flestallar byggingar á Íslandi á þessum tíma. Á þeim
tíma var byggingin stærsta hús landsins en húsið er 1524 fermetrar. Ráðist
var í byggingu hússins þegar ákveðið var að flytja Bessastaðaskóla til
Reykjavíkur af því að húsnæðið þar hélt hvorki vatni né vindi. Fram til 1904
nefndist skólinn Reykjavíkur lærði skóli en var oftast nefndur Reykjavíkur-
skóli, Lærði skólinn eða Latínuskólinn. Skólinn hefur heitið Menntaskólinn
í Reykjavík frá árinu 1937 en þessi elsta bygging skólans er yfirleitt kölluð
gamli skóli í daglegu tali nemenda. (Heimild: Wikipedia)
Upplýsingar,
viðburðir,
afþreying og fréttir