Fréttablaðið - 21.08.2006, Side 65
MÁNUDAGUR 21. ágúst 2006 25
Ef indverskur maharaja spyrði
hvort hægt væri að fá góða ind-
verska máltíð í Reykjavík myndi ég
ekki hika við að vísa honum á Aust-
ur Indía fjelagið: Þar er indversk
matargerðarlist í háum gæðaflokki
− og meira að segja á skaplegu verði
sem gæti komið sér vel fyrir mah-
arajann því að flestar þeirra ætta
sem eitt sinn réðu Indlandi mega
muna fífil sinn fegri og draga fram
lífið á því sem íslenskum banka-
furstum þættu vera smánarlaun.
Einföld indversk máltíð er
gjarna þannig samsett að kolvetni
fær maður úr brauði eða hrísgrjón-
um, eggjahvítu úr kjöt- eða fiskrétti,
þessu til stuðnings borðar maður
einn eða tvo grænmetisrétti svo sem
raitha (gúrka í jógúrt) og eða linsu-
baunarétt. Hrísgrjón, brauð og
raitha hreinsa bragðlaukana sem í
sæluvímu gæla við ótal kryddteg-
undir, sumar mildar, aðrar sterkar.
Þeir sem halda að indverskt
krydd svíði munn og meltingarfæri
geta sagst vera búddatrúar en mat-
argerð handa þeim söfnuði einkenn-
ist af einstaklega mildilegri notkun
kryddtegunda.
Við borðuðum á vestræna vísu –
ekki með guðsgöfflunum eins og
kurteislegast hefði verið – og létum
færa okkur sérstaka forétti áður en
aðalmáltíðin hófst. Borðdaman
drakk Tuborg (650 kr. flaskan) og ég
drakk Chateau de Gvendo (0 kr.).
Engir dúkar eru á borðum, og munn-
þurrkur úr pappír − en þykkar vel.
Forréttirnir voru malai tikka lax
(1.395 kr.) og kjúklinga tikka salat
(1.395 kr.). „Tikka“ er rauður blettur
sem sumir Indverjar bera á enninu
og í matargerð er orðið notað um
rauðan kryddlög sem búinn er til úr
jógúrt.
Síðan komu aðalréttirnir moilee-
risarækjur (2.995 kr.) og banarasi
saag, grænmetisréttur í spín-
atsósu (2.195 kr.), með þessu feng-
um við naan-brauð steikt að hætti
Kasmírbúa (sætt og fyllt með þurrk-
uðum ávöxtum), mangómauk, raitha
og soðin hrísgrjón.
Það þyrfti skáld á borð við
Tagore til að lýsa unaðssemdum
þessara rétta. Hráefnið var gott,
réttirnir mátulega eldaðir, og krydd-
aðir af listrænu innsæi. Þegar
maður fór að sjá fyrir endann á mál-
tíðinni komu í hug hin frægu orð
Íslendings á þorrablóti sem sagði:
Það vildi ég að guð gæfi að ég væri
kominn heim, háttaður, sofnaður,
vaknaður aftur og byrjaður að eta!
Austur Indía fjelagið er óform-
legur staður, skemmtilega laus við
að vera „yfirþyrmandi“ indverskur;
myndin sem hangir á karlasalerninu
er gott dæmi um hófsama snilld í
innanhússkreytingum. Ekki orð um
það meir. Sjón er sögu ríkari.
Austur Indía fjelagið Hverfisgötu 56
Matur fyrir maharaja!
Allt útlit er fyrir að deila Jennifer
Lopez við fyrrverandi eiginmann
sinn, Ojani Noa, fari ekki fyrir dóm-
stóla, en Lopez er ósátt við að Noa
hennar ætli að gefa út bók þar sem
hann greinir frá innstu leyndarmál-
um sambands þeirra.
Í apríl tókst Lopez að fá tíma-
bundið lögbann á bókina sem inni-
heldur meðal annars viðkvæmar
lýsingar á kynlífi hennar. Átti að
hefja efnismeðferð málsins fyrir
dómi á dögunum en þá komu lög-
fræðingar þeirra sér saman um að
æskilegra væri að semja um lyktir
málsins, frekar en að fá úrskurð
dómara.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
slær í brýnu milli Lopez og Noa.
Fyrir ári fékk Noa nokkra summu
fyrir að hætta við málsókn á hendur
Lopez, þar sem hann sakaði Lopez
um að hafa átt hlut að máli þegar
hann var rekinn úr starfi fram-
kvæmdastjóra veitingastaðar í Los
Angeles. Ef marka má bréf sem
hann sendi listakonunni snemma á
árinu má ætla að Noa sé enn á hött-
unum eftir peningum hennar, því
þar hótar hann að gefa út bókina ef
Lopez greiðir honum ekki fimm
milljónir bandaríkjadala.
Kynlífslýsingarnar
fara ekki fyrir dóm
ÓTTAST ÚTGÁFU LEYNDARMÁLA SINNA
Jennifer Lopez ætlar að sættast við fyrr-
verandi eiginmann sinn en þau deila um
útgáfu bókar hans sem greinir frá ýmsum
leyndarmálum sambands þeirra.
Heather Mills verslar til að gleyma
sársaukanum sem fylgir skilnað-
inum við Paul McCartney. Fyrir-
sætan fyrrverandi er í Los Angel-
es og eyddi fúlgum fjár í flottustu
verslununum í Beverly Hills, svo
sem Ralph Lauren og Giorgio
Armani. Auk þess lét hún dekra
við sig á snyrtistofum og á hár-
greiðslustofu. Það virðist ekki
hafa komið sér mjög illa fyrir
Heather að McCartney lét loka
sameiginlegum bankareikningi
þeirra fyrir skemmstu. Sjálfur er
McCartney í afslöppun í Banda-
ríkjunum, en heldur sig á austur-
ströndinni.
Verslar til
að gleyma
HEATHER MILLS Er að skilja við Paul
McCartney og tekst á við sársaukann með
því að versla grimmt. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Leikaraparið Jennifer Aniston og
Vince Vaughn vísa öllum sögu-
sögnum um að þau séu trúlofuð á
bug. „Ég er ekki trúlofuð, ekki
með neinn hring og enginn hefur
beðið mín,“ segir Aniston og er
ekki ánægð með umfjöllun slúður-
blaðanna um samband hennar og
Vaughn. Hún segir að fjölskyldan
sé búin að fá nóg af þessu slúðri og
að frænka hennar í Grikklandi
hafi verið sökuð um lygar af einu
blaðanna þegar hún neitaði að
Aniston væri trúlofuð. Þetta fór
fyrir brjóstið á fjölskyldu leikkon-
unnar og því ákvað Aniston að
kæfa þessar sögusagnir í eitt
skipti fyrir öll. „Vioð Vince erum
hamingjusöm núna en erum hvor-
ugt í giftingarhugleiðingum.“
Ekki trúlofuð
KÆRUSTUPAR Jennifer Aniston kveður
niður allar sögusagnir um að hún og
Vaughn séu trúlofuð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Með hníf og gaffli
> Þráinn Bertelsson
Máltíð fyrir tvö kostaði 12.630 kr.
Plúsarnir eru ekta indversk eldamennska
í hæsta gæðaflokki fyrir skikkanlegt verð.
Mínusarnir eru fremur óaðlaðandi hús-
næði – sem þó hefur verið reynt að gera
notalegt af smekkvísi og hugkvæmni.