Fréttablaðið - 21.08.2006, Page 68
21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR28
Leikarinn Johnny Depp og leik-
stjórinn Tim Burton sameina að
öllum líkindum krafta sína á ný í
kvikmyndaútgáfu söngleiksins
sívinsæla, Sweeney Todd. Áform-
að er að Depp fari með hlutverk
rakarans sem söngleikurinn heit-
ir eftir, en rakarinn sá er viðsjár-
verður og sker viðskiptavini sína
á háls þar sem þeir sitja í makind-
um í rakarastólnum.
Samstarf Depps og leikstjór-
ans Burtons hefur verið farsælt,
meðal annars í kvikmyndunum
Edward Scissorhands, Sleepy
Hollow, Ed Wood og nú síðast í
Kalla og sælgætisgerðinni. Tökur
á kvikmyndinni um Sweeney Todd
hefjast að líkindum snemma á
næsta ári og myndin kemur því
fyrir augu áhorfenda síðla næsta
ár.
Aðdáendur Johnnys Depp geta
líka glaðst yfir því að leikarinn
kemur til með að syngja sjálfur
lögin í kvikmyndinni.
Depp leikur Sweeney Todd
JOHHNY DEPP Leikur Sweeney Todd í kvikmyndaútgáfu Tims Burton. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Leikstjórinn Spike Lee notaði
tækifærið við frumsýningu heim-
ildarmyndar sinnar um fellibylinn
Katrínu til að gagnrýna aðgerðir
stjórnvalda eftir að fellibylur-
inn gekk yfir. „Eyðilegg-
ingin hér í New Orleans er
ekki einungis af völdum
móður náttúru. Fólkið sem
stjórnaði björgunarað-
gerðum vann bara ekki
vinnuna sína,“ sagði Spike
Lee á kynningarfundi sem
haldinn var áður en myndin
var frumsýnd í New
Orleans.
Þeir sem telja að leikstjórinn
hafi einblínt um of á þeldökka íbúa
New Orleans og litið framhjá þeim
sem eru ljósir á hörund og íbúum
við strönd Mississippi-fló-
ans hafa gagnrýnt leik-
stjórann. Lee svaraði
gagnrýninni á þá leið að
hann hefði sjálfur
ákveðið að einbeita sér
að New Orleans vegna
„sögulegs mikilvægis“
atburðarins.
Kvikmyndin verður
sýnd í bandarísku
sjónvarpi þann 29.
þessa mánaðar þegar
eitt ár er liðið frá
hamförunum.
Ekki bara náttúran
SPIKE LEE Leikstýrir nýrri
heimildarmynd um fellibyl-
inn Katrinu.
UMMERKI EFTIR FELLIBYLINN KATRÍNU Leikarinn Spike Lee gagnrýndi yfirvöld fyrir sinnu-
leysi í kjölfar fellibylsins Katrínar.
Greyið Danir myndi einhver segja.
Ekki nóg með að við Íslendingar
séum að verða búnir að kaupa allt
sem til sölu er í landinu og höfum
hleypt af stað dagblaðastríði þá
þurfum við líka að einoka tónleika-
sali Kaupmannahafnar. Þannig
var það alla vega í fyrrakvöld
þegar hljómsveitirnar Apparat,
Trabant og Unsound áttu sviðið á
tónlistarhátíðinni Public Service
Festival sem Danska ríkisútvarp-
ið stendur að. Danskir áhugamenn
um rafræna músík virtust þó taka
þessari nýjustu frekju Íslending-
ar vel og var góð stemning á svæð-
inu þegar okkar menn stigu á
svið.
Á brókinni í Köben
STRÍPALINGAR Ragnar Kjartansson og félagar í Trabant tóku Danmörku með sannkölluðu
trompi. Óhætt er að fullyrða að dönskum áhorfendum brá svolítið þegar Íslendingar tóku
að tína af sér spjarirnar. FRÉTTABLAÐIÐ/KS
LOKAHNYKKURINN Þegar líða fer að lokum
tónleika Trabant fara þeir að fækka fötum.
HEIMILISLEG STEMNING Orgelkvartettinn Apparat hitaði upp með tónleikum í verslun 12
Tóna í Kaupmannahöfn. Stemningin var heimilisleg eins og á flestum samkomum í versl-
uninni, hvort sem það er hér heima eða í Kaupmannahöfn.
HRESSIR ORGELLEIKARAR
Sigtryggur og Úlfur nutu sín vel með
dönskum tónlistaráhugamönnum.
UNSOUND Kristinn Gunnar Blöndal kynnti
sólóverkefni sitt, Unsound, fyrir Dönum.