Fréttablaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 4
4 26. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR
STJÓRNMÁL Ragnheiður Elín
Árnadóttir, aðstoðarmaður
forsætisráð-
herra, sækist
eftir 4. sæti í
prófkjöri
Sjálfstæðis-
flokksins í
Suðvesturkjör-
dæmi.
Ragnheiður
Elín er stjórn-
málafræðingur
og hefur gráðu í alþjóðastjórn-
málum frá háskólanum í Georget-
own. - bþs
GENGIÐ 25.9.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
123,1544
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
69,94 70,28
133,03 133,67
89,24 89,74
11,96 12,03
10,63 10,692
9,594 9,65
0,5989 0,6025
103,78 104,4
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Í grein um Hermann
Gunnarsson á laug-
ardag birtist röng
mynd. Rætt var við
Berg Guðnason
lögmann en fyrir
handvömm birtist
mynd af öðrum
manni. Beðist er velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTTING
Ragnheiður Elín Árnadóttir:
Í prófkjör Sjálf-
stæðisflokksins
RAGNHEIÐUR
ELÍN ÁRNADÓTTIR
– ERU BETRI EN AÐRAR!www.kreditkort.is
Mundu eftir
MasterCard
ferðaávísuninni
www.sumarferdir.is
Sími 575 1515
m.v. 2 saman í svítu. Innifalið í verði:
Flug, skattar, gisting með morgunverði, námskeið og
námskeiðsgögn.
17.–24. október 2006
Verð: 77.500,-
Afslappandi og uppbyggjandi vikudvöl
fyrir konur á lúxushótelinu Princesa
Yaiza. Nýr og betri lífsstíll, þar sem
reyndir leiðbeinendur halda frábær
námskeið. Heil vika af leikfimi, yoga,
slökun, fyrirlestrum, thai-nuddi,
dansleikfimi og fleiru. Segðu streitunni
stríð á hendur og endurskapaðu eigin
persónu í haustævintýri á Lanzarote.
Byggðu upp
líkama og sál
17.–24. október
Nýr og betri Lífsstíll
SAMGÖNGUR Búið er að rífa brúna
yfir Jöklu sem stendur fyrir
neðan Kárahnjúkavirkjun í
fyrirhuguðu lónsstæði Hálslóns.
Byrjað verður að fylla lónið á
næstu dögum.
Sigurður Arnalds, talsmaður
Landsvirkjunar á Kárahnjúkum,
segir burðarvirki brúarinnar hafa
verið látið standa en aðrir hlutar
hennar rifnir. „Það sem stendur
áfram eru stálbitarnir og steyptu
undirstöðurnar. Þetta verður
langt fyrir neðan lægsta vatns-
borð og mun því að öllum
líkindum ekki sjást meir.“
Hann segir að opnað verði
fyrir umferð yfir stífluna sjálfa
næsta vor. - sþs
Fylling Hálslóns undirbúin:
Brúin yfir Jöklu
rifin og fer á kaf
BRÚIN YFIR JÖKLU Talsmaður Landsvirkj-
unar á Kárahnjúkum segir stálbita og
undirstöðu brúarinnar munu fara á kaf
þegar Hálslón verði fyllt.
MÓTMÆLI Lítill hópur fólks kom
sér fyrir í anddyri höfuðstöðva
Landsvirkjunar í gær til að mót-
mæla fyllingu Hálslóns. Tals-
maður hópsins segir að með mót-
mælunum sé verið að svara kalli
Ómars Ragnarssonar frétta-
manns til þjóðarinnar.
„Við áttum mjög góðan fund
með stjórnarformanni Lands-
virkjunar og fleirum. Við fengum
kaffi og smákökur, þetta var bara
huggulegt spjall,“ segir Ingvar
Þórisson, talsmaður hópsins. „Ég
held að þetta séu ein friðsömustu
mótmæli sem farið hafa fram í
sambandi við virkjunina.“
Mótmælendurnir áformuðu
að sitja í anddyrinu fram að
Jökulsárgöngunni sem farin
verður klukkan átta í kvöld.
Gengið verður frá Hlemmi að
Austurvelli til að vekja athygli á
hugmyndum Ómars um að Háls-
lón verði ekki fyllt og Kára-
hnjúkavirkjun geymd ógangsett
sem minnismerki.
Þegar Fréttablaðið hafði sam-
band við Ómar í gær hafði hann
ekki heyrt af mótmælunum en
útilokaði ekki að líta við. „Annars
er ég önnum kafinn við að undir-
búa gönguna. Við ætlum að mynda
á úr dropum og sandkornum og
ganga þannig niður Laugaveginn
að Austurvelli.“ - sþs
Friðsamleg mótmæli fóru fram í anddyri höfuðstöðva Landsvirkjunar í gær:
Huggulegt spjall um Hálslón
NOKKRIR MÓTMÆLENDANNA Talsmaður
hópsins segir mótmælin ein þau allra
friðsamlegustu sem farið hafi fram.
Boðið var upp á kaffi og smákökur og
spjallað um Kárahnjúkavirkjun.
DANMÖRK Tveir Danir og þrír
útlendingar, Þjóðverji, Svíi og
Íri, voru í haldi lögreglunnar í
Kaupmannahöfn í gær, ásakaðir
um ofbeldisverk gegn laganna
vörðum. Útlendingarnir eru á
aldrinum 18 til 22 ára. Um fimm-
tíu manns til viðbótar voru einn-
ig ákærðir fyrir skemmdarverk
og óhlýðni við lögreglu. Alls voru
268 manns handteknir í óeirðum
við Norðurbrú (Nørrebro) á
sunnudagskvöld.
Ungmennin höfðu verið að
mótmæla lokun félagsmiðstöðv-
ar fyrir unglinga, Ungdoms-
huset, sem hústökufólk hafði
nýtt síðan það fékk til þess leyfi
frá borgaryfirvöldum árið 1982.
Húsið var selt kristilegum sam-
tökum fyrir fimm árum síðan.
Eftir kaupin hafa samtökin reynt
að fá hústökufólkið borið út úr
húsinu, en með litlum árangri. Í
lok ágústmánaðar úrskurðaði
dómstóll að hústökufólkið væri í
órétti og fyrirskipaði því að rýma
húsið.
Mótmælin á sunnudaginn hóf-
ust friðsamlega, en eftir að mót-
mælendur lokuðu umferð yfir
Dronning Louises Bro, skarst lög-
reglan í leikinn og reyndi að leysa
mótmælin upp. Átök brutust út og
lauk þeim með fjöldahandtök-
unni.
Þórarinn Leifsson myndlistar-
maður býr á Norðurbrú og var úti
í göngutúr með konu sinni, þegar
upp úr sauð. Hann lýsir ástandinu
svo á bloggsíðu sinni: „Folkets
Park og svæðið í kring logaði í
óeirðum, fólk var að flýja þaðan.
Við ákváðum því að snúa við og
reyna að finna öruggari leið heim
í kotið. Þegar við komum að horn-
inu á Krossgötu og Steingötu sáum
við að allt var að verða vitlaust.
Hettuklæddir menn voru að rífa
upp kantsteina og safna í hrúgur á
meðan vegfarendur fylgdust með
og mæður kölluðu út um glugga á
börn sín að drífa sig inn. Úti á
næsta horni var óeirðalögreglan
mætt á stórum kassabílum og með
allar græjur. Við hlustuðum á sír-
enurnar, skrensið í bílunum og
heróp óeirðarseggja í nokkrar
mínútur áður en við ákváðum að
draga okkur í hlé.“
Þórarinn sagði í samtali við
Fréttablaðið að sér þætti furðu-
legt hversu fljótt þetta hefði geng-
ið yfir. Strax daginn eftir hefði allt
verið komið í dúnalogn og búið að
hreinsa göturnar. Mótmælendur á
bak og burt. Eins og ekkert hefði
gerst á Norðurbrú.
klemens@frettabladid.is
Óeirðir á Norðurbrú
Mótmæli allt að eitt þúsund ungmenna leystust upp í óeirðir á sunnudagskvöld,
eftir að lögreglan skarst í leikinn. Þetta voru ein mestu mótmæli í borginni í
áratugi og að sögn lögreglu og voru 268 handteknir. Ungmennin vildu mótmæla
því að hústökufólk væri rekið úr húsi sem það hefur haft afnot af í rúm 20 ár.
ÁTAKASVÆÐIÐ Á NORÐURBRÚ Kantsteinar á víðavangi og brennandi rusl blasti við vegfarendum á Norðurbrú í gær. 268 voru
handteknir eftir að flöskum, steinum og eggjum var kastað að lögreglu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hettuklæddir menn
voru að rífa upp kant-
steina og safna í hrúgur.
ÞÓRARINN LEIFSSON
MYNDLISTARMAÐUR
VIÐSKIPTI Landsbankinn hefur
gengið frá kaupum á Cheshire
Guernsey Ltd. á eynni Guernsey í
Ermarsundi eftir að eftirlitsaðilar
á Íslandi og á Guernsey blessuðu
viðskiptin. Nafni breska bankans
verður breytt í Landsbanki
Guernsey Ltd. og verður hann
hluti af Landsbankasamstæðunni.
Kaupin eru fjármögnuð með
eigin fé Landsbankans og eru í
samræmi við stefnu bankanna að
eflast á markaði fyrir alþjóðleg
innlán. - eþa
Landsbanki Íslands:
Lýkur við kaup
á Cheshire
STJÓRNMÁL Benedikt Sigurðarson,
kennari við Háskólann á Akur-
eyri, sækist eftir
að leiða lista
Samfylkingar-
innar í Norðaust-
urkjördæmi í
þingkosningun-
um í vor.
Benedikt, sem
er kennari og
uppeldisfræðing-
ur að mennt, var
skólastjóri Barnaskóla Akureyrar
í tólf ár en hefur unnið við
Háskólann á Akureyri undanfarin
níu ár. Benedikt var formaður
stjórnar KEA. - bþs
Benedikt Sigurðarson:
Sækist eftir
fyrsta sætinu
BENEDIKT
SIGURÐARSON
PAKISTAN, AP Pervez Musharraf,
forseti Pakistans, segist í
nýútkominni minningabók ekki
hafa átt neitt val um annað en að
styðja hernað Bandaríkjanna
gegn talíbönum í Afganistan.
Musharraf skýrði frá því í
síðustu viku að Richard
Armitage, þáverandi aðstoðar-
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, hefði hótað því að Banda-
ríkjamenn myndu „sprengja
Pakistan aftur á steinöld“.
Í bók sinni sem heitir „Í
eldlínunni“ lýsir Musharraf
samskiptum sínum við Banda-
ríkjamenn mun nánar.
- gb
Forseti Pakistans:
Lýsir hótunum
Bandaríkjanna