Fréttablaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 34
■■■■ { jeppar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■2
„Ég hef komið að skipulagningu
þessara ferða undanfarin þrjú ár, en
svona ferðir hafa verið farnar árum
saman. Kristín Sigurðardóttir, sem
var um tíma formaður Ferðafélags-
ins 4x4, kom þessu af stað á sínum
tíma,“ segir Agnes. Hún segir að
oft hafi karlpeningurinn sóst eftir
því að koma með í ferðirnar. „Það
hefur ýmsum brögðum verið beitt.
Karlmenn hafa skráð sig í ferðina
undir kvenmannsnöfnum, eða boð-
ist til að elda ofan í okkur í ferðinni
eða þrífa.“ Síðastliðin þrjú ár hefur
verið farið í skála Ferðafélagsins
í Setri undir Hofsjökli. „Þetta er
stærsti skálinn og þess vegna höfum
við valið hann. Það eru nokkrar
skemmtilegar leiðir að skálanum og
því er töluverð tilbreyting milli ára.
Í ár fórum við Kerlingarfjallaleiðina
og það var mjög skemmtilegt.
Í fjölmennustu ferðinni voru
sextíu og fjórar konur en það er
í það mesta. Það er þægilegast
þegar eru um fimmtíu konur,“ segir
Agnes. Hún segir miðað við að ekki
séu fleiri en tvær konur saman á
bíl. Í mörgum tilfellum eru eigin-
menn í 4x4 félaginu og hafa smitað
konurnar af áhuganum en svo eru
til dæmi þess að konur hafi dregið
menn sína inn í starfið.
Agnes segist hafa verið með bíla-
delluna frá því hún var barn. „Þegar
ég var yngri langaði mig að verða
bifvélavirki en var sagt að stelpur
ættu ekki að vera með smurningu á
fingrum og skít undir nöglum. Það
er alltaf einhver hópur sem þykir
þessi áhugi okkar kvenna skrítinn.
Við erum hins vegar á þeirri skoðun
að þetta sé sport fyrir alla fjölskyld-
una,“ segir Agnes.
Agnes Karen segir karlmenn hafa beitt ýmsum brögðum til að fá að komast með í kvenna-
ferðirnar. Þeir hafi meðal annars skráð sig undir kvenmannsnöfnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ATLI
Stór hópur kvenna sækir ferðirnar á ári hverju. FRÉTTABLAÐIÐ/ATLI
Ekki bara karlasport
Það eru ekki bara karlmenn sem hafa gaman af því að keyra kraftmikla bíla um fjöll og dali. Um nokkurra ára
skeið hefur hópur kvenna úr Ferðafélaginu 4x4 farið í árlega kvennaferð. Agnes Karen Sigurðardóttir er einn
skipuleggjenda ferðanna.
Eitt af því sem fylgir jeppaferðum á fjöll, er fjörið við að losa bílana úr sköflum. Þessi mynd er tekin í kvennaferð 4x4 árið 2004.
FRÉTTABLAÐIÐ/ATLI
H
in
rik
P
ét
ur
ss
on
l
w
w
w
.m
m
ed
ia
.is
/h
ip
Lysing_silfurfat_5x200mm
Við viljum að
þú náir árangri
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lysing.is
“Vi› vitum a› me› réttum tækjum og tólum
eiga vi›skiptavinir okkar meiri möguleika a›
ná árangri í sinni starfsemi. Okkar markmi›
er a› a›sto›a flá til gó›ra verka enda vitum
vi› a› velgengni okkar byggist á velgengni
vi›skiptavinanna.“
Gu›rí›ur Ólafsdóttir
Yfirma›ur fyrirtækjasvi›s