Fréttablaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 46
26. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR22
Umræðan
Forvarnardagurinn
Fimmtudaginn 28. september verður í
fyrsta sinn haldinn For-
varnardagur í grunn-
skólum landsins undir
heitinu Taktu þátt!
Varla fyrirfinnst sú
fjölskylda í landinu sem
ekki hefur fengið
óbragð af því þegar fjöl-
skyldumeðlimur leiðist
út af beinu brautinni. Á degi
hverjum heyrum við sláandi
fréttir af ungmennum sem hafa
orðið vímuefnavandanum að
bráð. Og víst er að ellefu ára barn
er ekki gómað af lög-
reglu með fíkniefni
nema þar standi að baki
fullorðnir einstaklingar
með skipulagða glæpa-
starfsemi. Íslenska
þjóðin hefur fengið sig
fullsadda af því að ráð-
ist sé í gróðaskyni og
með skipulögðum hætti
inn í líf barna og ungl-
inga og framtíð þeirra
og aðstandenda lögð í
rúst. Allt samfélagið
ber ábyrgð á að koma í
veg fyrir það.
Lögbundið forvarnarstarf
sveitarfélaga í landinu er sam-
tvinnað öðrum viðfangsefnum
þeirra og fer markvisst fram
innan veggja skólans, í æskulýðs-
starfi og með fjárframlögum
sveitarfélaga til æskulýðs- og
íþróttafélaga. Félagsmiðstöðvar
eru víðast hvar reknar af sveitar-
félögunum og þar er unnið mikil-
vægt starf í samvinnu við ung-
mennin enda sýna niðurstöður
rannsókna að þeir sem stunda
skipulagt æskulýðs- og tóm-
stundastarf verða síður fíkniefn-
um að bráð. Sveitarfélögin gegna
því mikilvægu hlutverki sem
einn hlekkur í forvarnarkeðj-
unni.
Allir sem koma að uppeldis-
málum innan samfélagsins eru
mikilvægir hlekkir í keðjunni og
þurfa að starfa sem ein heild. Öfl-
ugasta forvörnin hlýtur að vera
uppbygging einstaklingsins. Nið-
urstöður íslenskra fræðimanna
segja að þau ungmenni sem verja
í það minnsta klukkustund á dag
með fjölskyldum sínum séu síður
líkleg til að hefja neyslu fíkni-
efna. Í hraða neyslusamfélagsins
hljótum við foreldrar að geta
staldrað við og hugleitt þetta
alvarlega í stað þess að eiga á
hættu að eyða ómældum tíma
síðar í andvökur, gremju og sorg
þegar barnið okkar er horfið á vit
vímuefna.
Fórnarlömb vímuefna tilheyra
hvorki einni tiltekinni þjóðfélags-
stétt, eða stöðu. Börn og ung-
menni á Blönduósi eru í jafn mik-
illi hættu á að lenda í öngstræti
fíkniefna eins og ungmenni í
Reykjavík eða á Kópaskeri. Því
eru allir dagar ársins forvarnar-
dagar.
Þakka ber frumkvæði forseta
Íslands og þeim sem að deginum
standa fyrir að tileinka einn dag
ársins forvörnum og vekja þannig
enn frekar vitund og umræðu um
þennan málaflokk. Forvarnar-
dagurinn, 28. september, hefur
nú þegar vakið undirritaða til vit-
undar um mikilvægi þess að nú
sé lag með að aðilar frá félags-
miðstöð, heilsugæslu, félagsþjón-
ustu, lögreglu, kirkjunni og
grunnskólanum á Blönduósi komi
saman og vinni að hnitmiðari for-
varnaráætlun sveitarfélagsins.
Höfundur er móðir og bæjar-
stjóri Blönduósbæjar.
Öflugasta vörnin er uppbygging einstaklingsins
JÓNA FANNEY
FRIÐRIKSDÓTTIR
Umræðan
Símenntun
Í viku símenntunar er sér-staklega höfðað til fyrir-
tækja að tileinka miðvikudeg-
inum 27. september
fræðslumálum starfsmanna á
einn eða annan hátt.
Fullorðinsfræðsludeild Verzlun-
arskóla Íslands í samvinnu við VR
vill koma til móts við fyrirtækin og
bjóða öllu starfandi verslunarfólki
að kynnast því hvað fer fram í
tímum í verslunarfagnámi
skólans þennan dag. Fræðslu-
dagurinn er haldinn innan
veggja skólans. Settar verða
upp fjórar kennslustundir,
40 mínútur hver, þar sem
fagkennarar fjalla um fjár-
mál, vinnubrögð, sjálfsþekk-
ingu og siðfræði, en öll þessi
fög eru kennd í fagnáminu.
Fyrsta kennslustund hefst kl. 8.55
og sú síðasta kl. 11.20 og er fólki
frjálst að koma og fara að vild.
Fræðslustundirnar verða því
skemmtilegri sem þátttaka gesta
er meiri en þó ber að geta þess að
enginn er þvingaður til þátttöku.
Fyrir hverja er verslunarfagn-
ám? Verslunarfagnám er ætlað fólki
á öllum aldri sem starfar í verslun
og hefur unnið við þau störf í a.m.k.
eitt ár. Námið tekur 1½ ár og hafa
þrír hópar nú þegar verið teknir
inn, þar af hefur einn hópur braut-
skráðst sem verslunarfagmenn.
Litið er á námið sem samstarfs-
verkefni starfsmanns, vinnustaðar
og skóla.
Markmið námsins er að auka
verslunarfærni starfsfólks, meðal
annars þjónustuvitund, vöruþekk-
ingu og verkkunnáttu. Að námi
loknu hefur starfsfólkið faglegar
forsendur til að taka að sér aukna
ábyrgð og verkefnastjórnun á
ýmsum sviðum verslunarinnar.
Nokkrar staðreyndir um versl-
unarfagnámið:
• Aldursdreifing er á bilinu 19-54
ára.
• Meðallengd starfsaldurs í verslun
er 5-6 ár.
• Ábyrgðarsvið starfsfólks er allt
frá því að vera almennir sölu-
menn yfir í stjórnendur.
• 80% brautskráðra verslunarfag-
manna hafa hlotið stöðuhækkun
eða breytingu á starfi.
• Námið gefur möguleika til frekari
menntunar. Verslunarfólk er
hvatt til að nota þetta tækifæri til
að kynnast fagnámi í sinni grein
og sækjast síðan eftir því hjá
vinnuveitanda að komast í námið
næsta haust þegar nýr umsækj-
endahópur verður tekinn inn.
Höfundur er verkefnastjóri
fullorðinsfræðslu í Verzlunarskóla
Íslands
Tækifæri fyrir verslunarfólk
HILDUR FRIÐ-
RIKSDÓTTIR
PALLBORÐSUMRÆÐUR
Háskólabíó kl. 14.00–15.00
WHAT IS STRATEGY?
Í nýjustu útgáfu European Foundation of Management Develop-
ment (EFMD) er Dr. Michael Porter talinn vera fremstur vísinda-
manna í heiminum á sviði stjórnunar og stefnumótunarfræða.
Þessari skoðun deila flestir sem um þessi mál fjalla. Allt frá því bók
hans „Competitive Strategy“ kom út árið 1980 hefur hann haft
gríðarleg áhrif á stjórnun fyrirtækja og stofnana um allan heim og
er enn leiðandi í allri umræðu um stefnumótun.
Í þessum fyrirlestri fjallar hann um hvað stefnumótun er – og einnig
hvað hún er ekki og rekur ýmsar ranghugmyndir manna um efnið.
Þetta er fyrirlestur sem enginn áhugamaður um stefnumótun og
stjórnun má láta fram hjá sér fara.
Sigurjón Þ. Árnason
Landsbankinn
Þórdís Sigurðardóttir
Dagsbrún
Baldur Pétursson
European Bank, London
Dr. Gylfi Magnússon
Háskóli Íslands
Hannes Smárason
FL Group
Skráning er hafin á www.capacent.is
Hótel Nordica kl. 7.30–11.00
THE COMPETITIVENESS
OF ICELAND
Michael Porter er forseti World Economic Forum sem gefur út
virtustu skýrslu heims um samkeppnishæfni þjóða – „Global
Competitiveness Report“. Dr. Porter hefur undanfarið unnið að
skýrslu um samkeppnishæfni Íslands og gerir hann grein fyrir
niðurstöðum sínum á ráðstefnunni. Þátttakendur fá skýrsluna í
hendur og eftir fyrirlesturinn verða pallborðsumræður.
Þessi rannsókn er hvalreki fyrir alla sem áhuga hafa á einhverju
eldfimasta umræðuefni síðustu missera og ára á Íslandi og á
eflaust eftir að vekja mikla athygli.
Prófessor Michael E. Porter, sem talinn er fremsti hugsuður heims á sviði stefnumótunar og
stjórnunar, heldur tvo fyrirlestra á Íslandi þann 2. október næstkomandi.
The Thinkers 50
er listi yfir fimmtíu helstu viðskipta-
hugsuði heims og Michael Porter er
þar í fyrsta sæti.
1. Michael PORTER
2. Bill GATES
3. CK PRAHALAD
4. Tom PETERS
5. Jack WELCH
Meira á www.thinkers50.com
Jón Sigurðsson
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
setur ráðstefnuna
Bjarni Snæbjörn Jónsson
Framkvæmdastjóri Capacent í Danmörku
Ráðstefnustjóri