Fréttablaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 51
ÞRIÐJUDAGUR 26. september 2006 27
[TÓNLIST]
UMFJÖLLUN
Puppy er fyrsta plata tónlistar-
mannsins Togga. Hann er 27 ára
gamall og er búinn að vera að
vinna að plötunni síðan 2004. Lögin
Turn Your Head Around og Heart
in Line hafa þegar fengið tölu-
verða spilun í útvarpi. Ekki veit ég
frekari deili á Togga, en platan er
unnin í nánu samstarfi við Bjarka
sem tekur hana upp og spilar á
ýmis hljóðfæri. Fjöldi annarra
tónlistarmanna kemur við sögu,
bæði hljóðfæraleikarar og bak-
raddasöngvarar.
Það er greinilegt að hér hefur
verið vandað til verka. Hljómur-
inn er óaðfinnanlegur, það hefur
verið nostrað við útsetningarnar
og öll vinna er til fyrirmyndar.
Umslagið er til dæmis mjög flott.
Tónlistin á Puppy er sambland
af trúbadorapoppi og indie-tónlist.
Það er greinilegt að Toggi er mjög
efnilegur lagasmiður og söngvari
því hér er fullt af flottum lögum.
Það er ekki neitt vont lag á plöt-
unni, en mín uppáhaldslög eru My
Baby Picked Me Up, Turn Your
Head Around, titillagið Puppy, Kill
the King, lokalagið Insomnia og
Sexy Beast sem merkilegt nokk
skartar „la la la“ viðlagi. Kannski
strákarnir í Jeff Who? séu búnir
að koma af stað tískubylgju? Ég
verð líka að hrósa Togga fyrir
flottar útsetningar. Notkunin á
bakröddum og strengjum er sér-
staklega vel heppnuð. Það er ekki
verið að ofgera hlutunum. Og
skemmtileg smáatriði setja svip á
sum lögin. Grúvið sem malar
undir í viðlaginu í My Baby Pick-
ed Me Up er t.d. ómótstæðilegt.
Puppy er frumsmíð sem er
langt yfir meðallagi. Það eina sem
hægt er að setja út á hana er að
tónlistin hljómar stundum aðeins
of lík einhverju sem maður hefur
heyrt áður. Toggi á enn eftir að
skapa sér sérstöðu. Hann hefur
hins vegar alla burði til þess að
gera það. Hér er greinilega alvöru
hæfileikamaður á ferð.
Trausti Júlíusson
Alvöru hæfileikar
TOGGI
PUPPY
Niðurstaða: Puppy er óvenju vönduð og vel
unnin frumsmíð. Toggi er greinilega mjög
hæfileikaríkur tónlistarmaður þó að hann eigi
enn eftir að skapa sér sérstöðu.
Yfir hundrað aðdáendum
rokksveitarinnar U2 gafst
kostur á að hitta írsku goðin
í tilefni af útgáfu ævisögu
sveitarinnar, U2byU2.
Hljómsveitin hefur verið starf-
andi í hartnær þrjátíu ár og hefur
gengið í gegnum ótrúlega hluti.
Félagarnir hófu feril sinn sem bíl-
skúrshljómsveit í Dublin sem sló
svo í gegn á heimsvísu þegar Bono
gerði allt brjálað á LiveAid tón-
leikunum árið 1986. Síðan þá hefur
frægðarsólin ekki sest og aðdá-
endur sveitarinnar hafa beðið
spenntir eftir að geta lesið um allt
sem hefur gerst á bak við tjöldin.
Bókin er 350 síður og hefur að
geyma yfir 150 ljósmyndir, sumar
sem hafa aldrei komið fyrir sjón-
ir almennings og eru fengnar að
láni úr einkasafni hljómsveitar-
meðlimanna. Hljómsveitin stóð
fyrir getraun á heimasíðu sinni
þar sem 150 aðdáendum gafst
kostur á að hitta hljómsveitar-
meðlimina augliti til auglitis og fá
árituð eintök af bókinni en auk
þess biðu hundruð fyrir framan
Waterstone-bókabúðina í þeirri
von að fá miða á þennan stór-
merka viðburð.
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var á undan fundi hljómsveit-
arinnar við aðdáendur sína var
söngvarinn Bono spurður út í þá
pólitísku baráttu sem hann hefur
staðið í undanfarin ár og hvort
hann ætlaði ekki að fara að hætta
henni. „Ég myndi miklu frekar
vilja vera með strákunum í
æfingahúsnæði og spila tónlist,“
sagði Bono. „Hins vegar sinni ég
þessari baráttu af því ég get það
og á að gera það. Hvað ætti ég
annars að gera við þessa fárán-
legu frægð?“ bætti söngvarinn
við.
Hljómsveitin er hvergi af baki
dottin þrátt fyrir að ævisagan sé
komin út. Hún er nú stödd í upp-
tökuveri ásamt Rick Rubin, sem
meðal annars hefur starfað með
Beastie Boys og Red Hot Chilli
Peppers, og vinnur að sinni tólftu
breiðskífu. Þá mun sveitin spila á
góðgerðartónleikum í Lousiana
Superdome þar sem safnað verður
peningum fyrir þeim hljóðfærum
sem glötuðust í fellibylnum Katr-
ínu á síðasta ári en það er gítar-
leikarinn The Edge sem hefur veg
og vanda að þeim sjóði. - fgg
Saga U2 eftir U2
DRENGIRNIR FRÁ DUBLIN Hafa verið að í þrjátíu ár og eru í óða önn að taka upp sína tólftu breiðskífu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES