Fréttablaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 44
26. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR12
Lundinn svífur léttur um loftið í leit að æti.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SJÓNARHORN
„Mínir dagar
eru þannig að
það eru aldrei
tveir eins,“ segir
Anna Guðný
Guðmundsdóttir
píanóleikari þegar
hún er spurð
hvernig hvunn-
dagurinn hennar
sé. „Það er auðvit-
að byrjað á því
að vakna. Ég hef
klukkuna stillta
á 7.10 og dorma
svo í tíu mín-
útur. Þá vek ég
unglinginn, fæ ég
mér djús og síðan
er keyrt af stað,
fyrst með hann í
skólann og svo fer
ég í líkamsrækt
sem ég stunda
hér í minni heimabyggð, Mosfells-
bæ. Eftir það er mikil tilhlökkun að
komast heim og fá sér kaffi. Þar
sem ég er fastráðin hjá sinfóníunni
fer ég á æfingar þar á morgnana,
þá er æft fyrir
tónleikana sem
jafnan eru á
fimmtudags-
kvöldum. Eftir
hádegið taka við
aðrar æfingar,
ýmist hér heima
eða annars staðar
því yfirleitt er ég
með mörg verk-
efni framundan
sem ég þarf að
undirbúa vel,“
segir Anna Guðný
sem meðal
annars er fastur
undirleikari hjá
stórsöngkonunni
Diddú. Meðfram
spilamennsk-
unni sinnir Anna
Guðný svo heimili
og fjölskyldu en
kveðst þó sleppa við eldamennsku.
„Ég er svo heppin að vera gift
góðum kokki sem sér um mat-
seldina og yfirleitt matarinnkaupin
líka,“ segir hún glaðlega.
HVUNNDAGURINN
Hlakkar til að komast í kaffið
ANNA GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR,
PÍANÓLEIKARI
Golden Gate-brúin var
vígð í lok maí árið 1937. Á
þeim tíma var hún lengsta
brú heims en í dag er
það Akashi-Kaikyo brúin í
Japan. Hún leysti af hólmi
ferju sem flutti bíla og
farþega yfir munna San
Francisco-flóa og var mikil
samgöngubót.
Brúin þykir ein sú falleg-
asta í heiminum og er hún
löngu orðin að tákni San Francisco-borgar. Fáir vita að hún á sér systurbrú í
Portúgal, en sú brú er minni og þykir ekki jafn falleg.
Golden Gate-brúin á sér dökka hlið. Frá vígslu bryggjunnar hafa um
1.300 manns stokkið fram af brúnni og framið sjálfsvíg. Einhverjar sögur eru
af fólki sem stokkið hefur og lifað, einn meira að segja synti sjálfur í land, en
dæmi eru um að fólk sem lifað hefur af fallið endurtaki stökkið.
Golden Gate-brúin
Outlet
Mörkinni 1
neðri hæð
• Mörkinni 1•
ALLT
á
500 kr.
fram á
laugardag