Fréttablaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 45
ÞRIÐJUDAGUR 26. september 2006 21 Umræðan Grein eftir Ingólf Guðnason, formann sóknarnefndar, og Gylfa Haraldsson gjaldkera. Árið 1989 var ákveðið að ráða org-anista til starfa í Skálholts- prestakalli. Sama ár var gengið til samninga við Hilmar Örn Agnars- son. Hefur sú ákvörðun reynst vera hið mesta heillaspor fyrir samfélag- ið. Sr. Guðmundur Óli Ólafsson, þáverandi sóknarprestur, vann hug- myndinni brautargengi og hafði for- göngu um ráðninguna. Gert var sam- komulag um greiðslu launa organistans, þannig að Skálholtsstað- ur greiddi sem nemur 10 mánaðar- launum árlega, sóknirnar fjórar í Skálholtsprestakalli greiða ein mán- aðarlaun og Biskupstungnahreppur ein. Þetta samkomulag hefur sér- stöðu í íslenskum sveitakirkjum; almennt standa sóknir straum af launum organista. Í ljósi sérstöðu Skálholts sem dómkirkjustaður, bisk- upssetur og móðurkirkja kristni á Íslandi, en um leið fámennt og tekju- lítið prestakall, var sú ákvörðun tekin á sínum tíma og hefur ríkt full- ur skilningur á því fyrirkomulagi, sem nú er komin löng og farsæl hefð á. Ráðning organista sannaði fljótt gildi sitt fyrir kirkjustarfið. Pípuorg- el Skálholtskirkju tók að hljóma oftar og organistinn fékk því framfylgt með þrautseigju að það var stækkað til muna og telst nú vera afbragðs- hljóðfæri. Ekki leið á löngu þar til hann hafði stofnað öflugan kór, Skál- holtskór, sem söng í kirkjunum fjór- um og víðar. Kórinn vakti fljótt athygli fyrir vandaðan flutning og skemmtilegt efnisval og laðaði til sín landsþekkt söngfólk og hljóðfæra- leikara. Í dag er Skálholtskór einn virtasti kirkjukór landsins og nýtur bæði Skálholtsstaður, Skálholtsskóli og allur söfnuðurinn góðs af fjöl- breyttu starfi hans. Barna- og kammerkór Biskups- tungna var stofnaður af Hilmari Erni fljótlega eftir að hann kom til starfa. Kórinn hefur ekki formleg tengsl við Skálholtsstað heldur er hann rekinn af sjálfsaflafé. Samt njóta sóknar- börn, Skálholtsstaður og þjóðkirkjan þess í ríkum mæli hversu stórkost- legt starf þar fer fram. Álit tónlistar- fólks er að hann sé í hópi albestu barna- og unglingakóra á landinu. Sérlegur verndari Barna- og Kamm- erkórs Biskupstungna er Arndís Jónsdóttir skólastjóri, eiginkona vígslubiskupsins í Skálholti. Nú ber svo við að stjórn Skál- holts, þar sem vígslubiskup er í for- sæti, kallar formenn sóknarnefnda á sinn fund þann 14. september sl. Á þeim fundi tilkynnti stjórnin að Hilmari Erni hefði verið sagt upp störfum frá 1. október að telja með 3 mán. uppsagnarfresti. Um leið sagði stjórn Skálholts upp, fyrir sitt leyti, samstarfssamningnum sem fyrr er getið. Skýringin sem fylgdi var að stjórnin hafði ákveðið að leggja niður starf organista í núverandi mynd. Í hans stað hyggst stjórn Skál- holts ráða e.k. tónlistarstjóra sem hafa skal yfirumsjón með tónlistar- málum á Skálholtsstað, í nánum tengslum við m.a. embætti söng- málastjóra þjóðkirkjunnar, Tónskóla þjóðkirkjunnar og Sumartónleika í Skálholti ásamt Skálholtsskóla. Vitn- aði stjórnarformaður í röksemda- færslu sinni nánast orðrétt í greinargerð vegna úttektar söng- málastjóra þjóðkirkjunnar á tónlist- arstarfi í Skálholti, sem hann hafði verið beðinn um að gera fyrr á þessu ári og lá fyrir í drögum í júní s.l. „Hvað þið (þ.e. sóknirnar) gerið er ekki okkar mál,“ voru orð eins stjórnarmanns á fundinum, aðspurð- ur um framtíðarsýn stjórnarinnar á tónlistarstarf í prestakallinu. Okkur var einnig gert ljóst að á þessum fundi væru þeir ekki komnir til samninga. „Enginn samningsgrund- völlur við sóknirnar,“ „Við erum ekki hér til að semja við ykkur,“ voru orð sem dundu á okkur. Ekkert okkar vissi að búið væri að ákveða að hrófla við stöðu organistans, hvað þá að honum hafði þá þegar verið sagt upp störfum. Það má því nærri geta að okkur var brugðið við þessar fréttir. Vígslubiskup hefur sagt í fjöl- miðlum (Fréttablaðið 18. sept.) að ákvarðanir um að segja Hilmari upp störfum hafi verið gerðar í fullu samráði við sóknarnefndirnar. Þeirri fullyrðingu hafa allar sóknarnefnd- irnar mótmælt í bréfi til biskups Íslands og stjórnar Skálholts, sem vonlegt er. Einnig segir vígslubisk- up, m.a. í útvarpsviðtali á Rás 1 22. september og í Morgunblaðinu 20. sept., að væntanlegur tónlistarstjóri skuli fyrst og fremst aðlaga tónlist- arstarfið þörfum ferðafólks, Skál- holtsskóla og þeirra sem vilja dvelja á staðnum. Hann vék ekki einu orði að því að söfnuðurinn mætti búast við aukinni þjónustu þessa starfs- manns. Framganga stjórnar Skál- holts samkvæmt ofangreindu getur vart talist samboðin leiðtogum þjóð- kirkjunnar. Sérstakt áhyggjuefni eru klausur úr greinargerð Harðar Áskelssonar söngmálastjóra. Sá hluti í greinar- gerð hans sem fjallar um fjármuni er fara til organistastarfsins gæti beinlínis gefið ástæðu til að efast um ályktunarhæfni hans í starfi: „Ekki verður séð að þeir fjármunir sem kirkjan leggur sérstaklega til þessa starfsþáttar skili sér í blómlegra starfi í Skálholti en gengur og ger- ist.“ Þvílík öfugmæli! Þá segir Hörður í greinargerð sinni að það sé ástæða til að yfir- stjórn kirkjunnar endurskoði „ýmsa þætti í mótun dagskrár og fram- kvæmd Sumartónleika í Skálholti“. Framkvæmdastjóri Sumartónleika í Skálholti hafði engar spurnir fengið af því að verið væri að þinga um mál- efni Sumartónleikanna er ég innti hann eftir því fyrir skömmu. Íhlutun yfirstjórnar kirkjunnar í dagskrá Sumartónleikanna hlýtur að teljast vera róttæk aðgerð. Hvert er álit íslensks listafólks á slíkum vinnu- brögðum? Sóknarbörn bera mikinn kvíð- boga fyrir framtíðarstarfi í sóknar- kirkjum sínum. Við horfum fram á vetur án þátttöku Skálholtskórs í tón- listarflutningi. Við sjáum fram á að allt starf Barna- og Kammerkórs Biskupstungna leggist niður. Við búum okkur undir þá raun að gera börnum okkar grein fyrir ástæðum þess, og eins að ástsæll kórstjóri þeirra, félagi og trúnaðarvinur til margra ára hafi þurft að hverfa af vettvangi á miðjum vetri. Nú blasir við, að óbreyttu, að í Skálholti verður í hugum sóknarbarna ekki lengur sóknarkirkja heldur ferðamanna- kirkja, gistiheimili, leikvöllur kirkju- valdsins. Hefði stjórn Skálholts unnið til- lögur að breyttu fyrirkomulagi tón- listarstarfs í góðri samvinnu við núverandi organista, sóknarnefnd Skálholtssóknar og fulltrúa hinna sóknanna í prestakallinu, hefði án efa fundist farsæl niðurstaða þar sem kirkjan fengi áfram notið óum- deildra hæfileika Hilmars Agnars- sonar. Enn er von. Stjórn Skálholts getur ennþá dregið uppsögn Hilmars til baka og óskað eftir samvinnu við hann, sóknarnefnd og aðra hlutað- eigandi. Greinargerð frá sóknarnefnd Skálholtssóknar Öll börn eiga rétt á að geta greint á milli þess hvað má og má ekki gera við líkama þeirra. Talaðu við barnið þitt og upplýstu það um staðreyndirnar – því fyrr því betra. Barn sem þekkir muninn á réttu og röngu er betur í stakk búið til að neita, segja frá og komast óskaddað frá óeðlilegum kringumstæðum sem það vill ekki taka þátt í. Rjúfðu þögnina og fræddu barnið þitt – það er á þína ábyrgð Þögnin er Hvernig tölum við um þetta við börnin? Fáðu leiðbeiningar á www.blattafram.is. Ef velferð barns er í húfi hringdu í 112 „Ég vil ekki að einhver strjúki mér og verði góður við píkuna mína“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.