Fréttablaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 45
ÞRIÐJUDAGUR 26. september 2006 21
Umræðan
Grein eftir Ingólf Guðnason,
formann sóknarnefndar, og
Gylfa Haraldsson gjaldkera.
Árið 1989 var ákveðið að ráða org-anista til starfa í Skálholts-
prestakalli. Sama ár var gengið til
samninga við Hilmar Örn Agnars-
son. Hefur sú ákvörðun reynst vera
hið mesta heillaspor fyrir samfélag-
ið. Sr. Guðmundur Óli Ólafsson,
þáverandi sóknarprestur, vann hug-
myndinni brautargengi og hafði for-
göngu um ráðninguna. Gert var sam-
komulag um greiðslu launa
organistans, þannig að Skálholtsstað-
ur greiddi sem nemur 10 mánaðar-
launum árlega, sóknirnar fjórar í
Skálholtsprestakalli greiða ein mán-
aðarlaun og Biskupstungnahreppur
ein. Þetta samkomulag hefur sér-
stöðu í íslenskum sveitakirkjum;
almennt standa sóknir straum af
launum organista. Í ljósi sérstöðu
Skálholts sem dómkirkjustaður, bisk-
upssetur og móðurkirkja kristni á
Íslandi, en um leið fámennt og tekju-
lítið prestakall, var sú ákvörðun
tekin á sínum tíma og hefur ríkt full-
ur skilningur á því fyrirkomulagi,
sem nú er komin löng og farsæl hefð
á.
Ráðning organista sannaði fljótt
gildi sitt fyrir kirkjustarfið. Pípuorg-
el Skálholtskirkju tók að hljóma oftar
og organistinn fékk því framfylgt
með þrautseigju að það var stækkað
til muna og telst nú vera afbragðs-
hljóðfæri. Ekki leið á löngu þar til
hann hafði stofnað öflugan kór, Skál-
holtskór, sem söng í kirkjunum fjór-
um og víðar. Kórinn vakti fljótt
athygli fyrir vandaðan flutning og
skemmtilegt efnisval og laðaði til sín
landsþekkt söngfólk og hljóðfæra-
leikara. Í dag er Skálholtskór einn
virtasti kirkjukór landsins og nýtur
bæði Skálholtsstaður, Skálholtsskóli
og allur söfnuðurinn góðs af fjöl-
breyttu starfi hans.
Barna- og kammerkór Biskups-
tungna var stofnaður af Hilmari Erni
fljótlega eftir að hann kom til starfa.
Kórinn hefur ekki formleg tengsl við
Skálholtsstað heldur er hann rekinn
af sjálfsaflafé. Samt njóta sóknar-
börn, Skálholtsstaður og þjóðkirkjan
þess í ríkum mæli hversu stórkost-
legt starf þar fer fram. Álit tónlistar-
fólks er að hann sé í hópi albestu
barna- og unglingakóra á landinu.
Sérlegur verndari Barna- og Kamm-
erkórs Biskupstungna er Arndís
Jónsdóttir skólastjóri, eiginkona
vígslubiskupsins í Skálholti.
Nú ber svo við að stjórn Skál-
holts, þar sem vígslubiskup er í for-
sæti, kallar formenn sóknarnefnda á
sinn fund þann 14. september sl. Á
þeim fundi tilkynnti stjórnin að
Hilmari Erni hefði verið sagt upp
störfum frá 1. október að telja með 3
mán. uppsagnarfresti. Um leið sagði
stjórn Skálholts upp, fyrir sitt leyti,
samstarfssamningnum sem fyrr er
getið. Skýringin sem fylgdi var að
stjórnin hafði ákveðið að leggja
niður starf organista í núverandi
mynd. Í hans stað hyggst stjórn Skál-
holts ráða e.k. tónlistarstjóra sem
hafa skal yfirumsjón með tónlistar-
málum á Skálholtsstað, í nánum
tengslum við m.a. embætti söng-
málastjóra þjóðkirkjunnar, Tónskóla
þjóðkirkjunnar og Sumartónleika í
Skálholti ásamt Skálholtsskóla. Vitn-
aði stjórnarformaður í röksemda-
færslu sinni nánast orðrétt í
greinargerð vegna úttektar söng-
málastjóra þjóðkirkjunnar á tónlist-
arstarfi í Skálholti, sem hann hafði
verið beðinn um að gera fyrr á þessu
ári og lá fyrir í drögum í júní s.l.
„Hvað þið (þ.e. sóknirnar) gerið er
ekki okkar mál,“ voru orð eins
stjórnarmanns á fundinum, aðspurð-
ur um framtíðarsýn stjórnarinnar á
tónlistarstarf í prestakallinu. Okkur
var einnig gert ljóst að á þessum
fundi væru þeir ekki komnir til
samninga. „Enginn samningsgrund-
völlur við sóknirnar,“ „Við erum
ekki hér til að semja við ykkur,“
voru orð sem dundu á okkur. Ekkert
okkar vissi að búið væri að ákveða
að hrófla við stöðu organistans, hvað
þá að honum hafði þá þegar verið
sagt upp störfum. Það má því nærri
geta að okkur var brugðið við þessar
fréttir.
Vígslubiskup hefur sagt í fjöl-
miðlum (Fréttablaðið 18. sept.) að
ákvarðanir um að segja Hilmari upp
störfum hafi verið gerðar í fullu
samráði við sóknarnefndirnar. Þeirri
fullyrðingu hafa allar sóknarnefnd-
irnar mótmælt í bréfi til biskups
Íslands og stjórnar Skálholts, sem
vonlegt er. Einnig segir vígslubisk-
up, m.a. í útvarpsviðtali á Rás 1 22.
september og í Morgunblaðinu 20.
sept., að væntanlegur tónlistarstjóri
skuli fyrst og fremst aðlaga tónlist-
arstarfið þörfum ferðafólks, Skál-
holtsskóla og þeirra sem vilja dvelja
á staðnum. Hann vék ekki einu orði
að því að söfnuðurinn mætti búast
við aukinni þjónustu þessa starfs-
manns. Framganga stjórnar Skál-
holts samkvæmt ofangreindu getur
vart talist samboðin leiðtogum þjóð-
kirkjunnar.
Sérstakt áhyggjuefni eru klausur
úr greinargerð Harðar Áskelssonar
söngmálastjóra. Sá hluti í greinar-
gerð hans sem fjallar um fjármuni
er fara til organistastarfsins gæti
beinlínis gefið ástæðu til að efast um
ályktunarhæfni hans í starfi: „Ekki
verður séð að þeir fjármunir sem
kirkjan leggur sérstaklega til þessa
starfsþáttar skili sér í blómlegra
starfi í Skálholti en gengur og ger-
ist.“ Þvílík öfugmæli!
Þá segir Hörður í greinargerð
sinni að það sé ástæða til að yfir-
stjórn kirkjunnar endurskoði „ýmsa
þætti í mótun dagskrár og fram-
kvæmd Sumartónleika í Skálholti“.
Framkvæmdastjóri Sumartónleika í
Skálholti hafði engar spurnir fengið
af því að verið væri að þinga um mál-
efni Sumartónleikanna er ég innti
hann eftir því fyrir skömmu. Íhlutun
yfirstjórnar kirkjunnar í dagskrá
Sumartónleikanna hlýtur að teljast
vera róttæk aðgerð. Hvert er álit
íslensks listafólks á slíkum vinnu-
brögðum?
Sóknarbörn bera mikinn kvíð-
boga fyrir framtíðarstarfi í sóknar-
kirkjum sínum. Við horfum fram á
vetur án þátttöku Skálholtskórs í tón-
listarflutningi. Við sjáum fram á að
allt starf Barna- og Kammerkórs
Biskupstungna leggist niður. Við
búum okkur undir þá raun að gera
börnum okkar grein fyrir ástæðum
þess, og eins að ástsæll kórstjóri
þeirra, félagi og trúnaðarvinur til
margra ára hafi þurft að hverfa af
vettvangi á miðjum vetri. Nú blasir
við, að óbreyttu, að í Skálholti verður
í hugum sóknarbarna ekki lengur
sóknarkirkja heldur ferðamanna-
kirkja, gistiheimili, leikvöllur kirkju-
valdsins.
Hefði stjórn Skálholts unnið til-
lögur að breyttu fyrirkomulagi tón-
listarstarfs í góðri samvinnu við
núverandi organista, sóknarnefnd
Skálholtssóknar og fulltrúa hinna
sóknanna í prestakallinu, hefði án
efa fundist farsæl niðurstaða þar
sem kirkjan fengi áfram notið óum-
deildra hæfileika Hilmars Agnars-
sonar.
Enn er von. Stjórn Skálholts getur
ennþá dregið uppsögn Hilmars til
baka og óskað eftir samvinnu við
hann, sóknarnefnd og aðra hlutað-
eigandi.
Greinargerð frá sóknarnefnd Skálholtssóknar
Öll börn eiga rétt á að geta greint á milli
þess hvað má og má ekki gera við líkama þeirra.
Talaðu við barnið þitt og upplýstu það
um staðreyndirnar – því fyrr því betra.
Barn sem þekkir muninn á réttu og röngu er betur
í stakk búið til að neita, segja frá og komast óskaddað frá óeðlilegum
kringumstæðum sem það vill ekki taka þátt í.
Rjúfðu þögnina og fræddu barnið þitt – það er á þína ábyrgð
Þögnin er
Hvernig tölum við um þetta við börnin? Fáðu leiðbeiningar á www.blattafram.is.
Ef velferð barns er í húfi hringdu í 112
„Ég vil ekki að einhver strjúki mér og
verði góður við píkuna mína“