Fréttablaðið - 26.09.2006, Qupperneq 6
6 26. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR
KJÖRKASSINN
550 5600
Hringdu ef blaðið berst ekki
- mest lesið
Átt þú þér uppáhaldslið í
íslenskri knattspyrnu?
Já 48%
Nei 52%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Stundar þú reglulega líkams-
rækt?
Segðu skoðun þína á visir.is
25 ára afmælisvika
23. - 30. sept.
�����������������������������
���������
��������������������������������
�
����������������������������������������
STRANDFLUTNINGAR Það er engin
forsenda fyrir strandflutningum
hér við land, segir Sigurður Jóns-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
verslunar og þjónustu. Hann segir
forsvarsmenn aðildarfélaga sam-
takanna á sömu skoðun, þar með
talin flutningafyrirtæki.
Verið er að kanna á vegum sam-
gönguráðuneytisins hvort hugsan-
legt sé að taka upp strandsiglingar
við landið að nýju að einhverju
leyti. Í tengslum við endurskoðun
á samgönguáætlun sem nú stend-
ur og í kjölfar umræðna um álag á
vegakerfinu hefur Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra óskað
eftir því að málið verði kannað.
Efnt var nýverið til fundar í sam-
gönguráðuneytinu um hugsanlega
strandflutninga. Hann sátu meðal
annars fulltrúar nokkurra flutn-
ingafyrirtækja, Samtaka verslun-
ar og þjónustu, Siglingastofnunar
Íslands og ráðuneytisins.
„Það kom glögglega fram á
þessum fundi að það er engin for-
senda fyrir þessum strandflutn-
ingum,“ segir Sigurður. „Þarfir
eigenda farmsins sem flytja þarf
eru með þeim hætti að það er ekki
til staðar áhugi á að flytja hann á
sjó. Menn sögðu þó, í allri sann-
girni, að ef hugsanlega kæmi til
álita að greiða niður flutninga til
einhvers svæðis, þá væru það
Vestfirðir. Vegakerfið þangað
væri ónýtara heldur en í öðrum
hlutum landsins, þannig að það
gæti ef til vill réttlætt tímabundna
sjóflutninga þangað.“
Sigurður segir menn sammála
um, að setja þurfi fjármuni í veg-
inn í hundrað kílómetra radíus út
frá Reykjavík. Byggja þurfi
almennilegan veg til Akureyrar.
Upplýst hafi verið á fundinum að
leggja eigi töluverða peninga á
fjáraukalögum í veginn austur
fyrir fjall og einnig vesturleiðina.
„Flutningatækin sem við erum
að nota eru ekkert öðruvísi heldur
en gerist annars staðar í heimin-
um,“ heldur Sigurður áfram. „Allt
þetta tal um þungaflutninga er
bara bull. Það sem er lélegt hér
eru vegirnir. Þeir eru þröngir,
gamlir og illa byggðir. Vissulega
þola þeir þessa umferð ekki vel.“
Ráðgert er að aftur verði fund-
að um málið í ráðuneytinu og segir
Sigurður að þá verði sjónum beint
að þeim umbótum sem gera þurfi
á vegakerfinu.
„Við ætlum ekkert að ræða
meira um strandflutninga því við
teljum að þeir séu ekki raunhæfur
kostur. Það er búið að slá þá hug-
mynd út af borðinu hvað SVÞ og
flutningafyrirtækin varðar.“
jss@frettabladid.is
Engin forsenda fyrir
strandflutningum
Það er engin forsenda fyrir strandflutningum hér við land, segir framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Hann segir búið að slá hugmyndina út af
borðinu hvað varði SVÞ og flutningafyrirtækin. Einungis þurfi betri vegi.
SIGURÐUR
JÓNSSON Segir
búið að slá
hugmyndina um
strandflutninga út
af borðinu.
BJÖRGUNARMÁL Öryggisvika sjó-
manna var kynnt í gær um borð í
Sæbjörgu, skólaskipi Slysavarn-
arfélagsins Landsbjargar. Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra
setti vikuna formlega með ávarpi
og kom til athafnarinnar með held-
ur óvenjulegum hætti, en hann
var látinn síga niður á þilfar skips-
ins úr TF-LÍF, þyrlu Landhelgis-
gæslunnar. Öryggisvikan er nú
haldin í þriðja sinn í tengslum við
siglingardag Alþjóðasiglingar-
málastofnunarinnar.
Í setningarræðu sinni mærði
ráðherra meðal annars vilja og
áhuga sjómannafélaga landsins til
að standa vel að öryggismálum.
Hann sagði þó mikilvægt að halda
öryggisviku sem þessa til að reka
áframhaldandi áróður fyrir auk-
inni þekkingu og þjálfun sjó-
manna. Sturla lagði áherslu á að
enn væri margt ógert í öryggis-
málum sjómanna og undirstrikaði
að það væri væri ekki einungis
ráðuneytið og útgerðirnar sem
þyrftu að vinna að þeim málum
heldur ýmsir aðrir í samfélaginu.
Eimskip færði Slysavarnar-
skóla sjómanna veglegar gjafir í
tilefni vikunnar, en fyrirtækið gaf
skólanum nýjan siglingarhugbún-
að, gám sem á að nýtast við reyk-
köfunarþjálfun og styrk að and-
virði 100.000 krónur til eigin
ráðstöfunar. - þsj
Sturla Böðvarsson setti öryggisviku sjómanna með óvenjulegum hætti:
Ráðherra seig niður úr þyrlu
EINBEITTUR VIÐ STÝRIÐ Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sagði mikilvægt að
halda öryggisviku sem þessa til að reka áframhaldandi áróður fyrir aukinni þekkingu
og þjálfun sjómanna. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÍTALÍA, AP Benedikt páfi sextándi
fundaði með leiðtogum múslima í
gær í þeim tilgangi að reyna að
sefa reiði múslima í hans garð
vegna ummæla hans um Múham-
eð spámann og íslamstrú. Sendi-
nefndir frá múslimalöndunum
Íran, Írak, Tyrklandi og Marokkó
mættu á fundinn, auk fulltrúa
múslima á Ítalíu og fleiri aðila.
Á fundinum, sem haldinn var í
sumarhúsi páfans nálægt Róm,
sagði páfi að „framtíð okkar“ ylti
á góðu sambandi milli kristinna
og múslima.
Páfi hélt fimm mínútna ræðu,
heilsaði síðan hverjum og einum
viðstöddum með handabandi og
spjallaði um stund við erindrek-
ana.
Hann minntist hins vegar ekk-
ert á ræðuna umdeildu sem hann
hélt í Þýskalandi 12. september
síðastliðinn, en í henni vitnaði
hann í orð keisara austrómverska
keisaradæmisins á fjórtándu öld
þess efnis að Múhameð spámaður
hefði aðeins fært heiminum illsku
og miskunnarleysi. Páfi hefur
beðist afsökunar á því að hafa
móðgað múslima en ekki á orðum
sínum og hefur það síður en svo
lægt öldurnar.
„Páfinn hefur lýst djúpri virð-
ingu sinni fyrir íslamstrú,“ sagði
Albert Edward, fulltrúi Íraka,
eftir fundinn. „Nú er kominn tími
til að láta kyrrt liggja og brúa
bilið.“ - smk
Benedikt páfi sextándi fundar með fulltrúum múslima:
Reynir að lægja öldurnar
BENEDIKT PÁFI SEXTÁNDI Fundaði í gær
með fulltrúm múslima. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STRANDFLUTNINGAR Sigurður bendir á að sú eftirspurn eftir strandflutningum sem
var fyrir hendi þegar Mánafoss sigldi á ströndina, síðasta áætlunarskipið sem það
gerði, væri að stórum hluta ekki lengur fyrir hendi með brotthvarfi kísilgúrsins.
LEYNIÞJÓNUSTA Steingrímur
Hermannsson og Jón Helgason,
dómsmálaráðherrar Framsókn-
arflokksins á tímum kalda
stríðsins, neita að hafa vitað af
rekstri leyniþjónustu hjá
stofnunum sem heyrðu undir
ráðuneyti þeirra. Þetta kom
fram í kvöldfréttum NFS í gær.
Sagnfræðingurinn Þór
Whitehead hefur unnið að
söfnun upplýsinga um rekstur
öryggis- eða leyniþjónustu á
tímum kalda stríðsins. Þær hafa
vakið ýmsar spurningar, meðal
annars um hvort vinstri stjórnir
á þessum tíma hafi haft vitn-
eskju um reksturinn. - sþs
Dómsmálaráðherrar Framsóknar:
Vissu ekki um
leyniþjónustu